Jazzblaðið - 01.04.1951, Side 14
stonhugh. Race var aftarlega í kosn-
ingunum í fyrra. Þriðji er Felix King
og fjórði píanistinn hjá Ray Ellington,
Dick Katz.
Jack Parnell er langfremstur á tromm-
ur, síðan koma hinir traustu hljómsveit-
armenn Peter Chilver og Eric Delaney.
Ray Ellington er áttundi.
Charlie Short er enn einu sinni
fremstur á bassa, svo koma þeir Col-
eridge Goode og Joe Muddel. Ivor Mair-
ants tekur nú aftur fremsta sætið á
guitar, en hann varð að láta það af
hendi til Pete Chilver í síðustu kosning-
um. Chilver, sem lítið hefur leikið á ár-
inu er þriðji nú. Laurie Deniz hjá Ray
Ellington er annar.
Tito Burns er fremstur á harmoniku,
Stephane Grappelly á fiðlu og Victor
Feldman á vibrafón. Ken Thorne hjá Vic
Lewis er fremsti útsetjarinn. Dankworth
er fimmti. Alan Dean er enn einu sinni
fremsti söngvarinn með þá Benny Lee
og Bob Dale næsta. Pearl Carr er aftur
á móti fremst í hópi söngkvenna og tek-
ur sæti Terry Devon, sem nú verður að
láta sér nægja annað sæti, en aðeins
örfá atkvæði skilja á milli þeirra. Söng-
flokkur er fremstur „The Keynotes".
Meðal „Swing“ hljómsveitanna eru
þrjú fyrstu sætin þannig: Ted Heath,
Vic Lewis og Gei-aldo. „Sweet“-hljóm-
sveit, þar er röðin aftur á móti: Ger-
aldo, Cyril Stapleton og svo Ted Heath.
Frá smáhljómsveitunum hefur verið
sagt frá framar.
Af framanrituðu vona ég, að þeir sem
einhvern áhuga hafa fyrir ensku jazz-
lífi hafi notið einhvers góðs. Allir þess-
ir menn, sem upp hafa verið taldir, eru
að sjálfsögðu vel þekktir í Englandi.
Þeir leika oft í BBC og munuð þið, sem
hlustið á jazzmúsík þaðan, áreiðanlega
hafa heyrt í þeim oft. S. G.
JIMMY DORSEY
Altósaxófón- og klarinetleikarinn og
hljómsveitarstjórinn Jimmy Dorsey er
fæddur árið 1904. Hann fór ungur að
læra á hljóðfæri ásamt bróður sínum
Tommy. Fyrsta hljóðfæri þeirra beggja
var kornet, en síðan tók Jimmy fyrir
þau hljóðfæri sem að framan getur og
Tommy skipti yfir á trombón.
Jimmy lék fyrst með hljómsveit, sem
bar nafnið „Scranton Sirenes", og var
Tommy einnig í þeirri hljómsveit ásamt
guitarleikaranum Eddie Lang.
Bræðurnir stofnuðu hljómsveit saman
árið 1928 og varð hún ein af frægari
jazzhljómsveitum sinnar tíðar. En sam-
komulagið var ekki sem bezt og eftir
nokkur ár stofnaði Jimmy eigin hljóm-
sveit, sem átti eftir að verða ein vin-
sælasta hljómsveit Bandaríkjanna.
Jimmy lék inn á margar plötur með
litlum hljómsveitum og með hljómsveit
þeirra bræðra. Plötur með eigin hljóm-
sveit eru þó langsamlega flestar, en þar
er Jimmy ekki sami góði jazzleikarinn
og á eldri plötunum. S. G.
14 #aȒUit