Jazzblaðið - 01.04.1951, Side 17
Jazzclub". Honum er útvarpað á hverj-
um fimmtudegi klukkan 22 og sér hinn
þekkti píanóleikari Börge Roger Hend-
riksen nú um þáttinn.
Sem stendur er aðeins eitt jazzblað
gefið út hér, sem ég hefi nefnt áður,
„Jazz Parade", en bráðlega kemur út
nýtt blað, sem á að heita „Musik Jour-
nalen“. í fyrra kom út lítið blað, sem
hét „Jazz Information“, en það varð því
miður að hætta útkomu sinni vegna
óviðráðanlegra orsaka.
En nú hefur fjárhagurinn verið rétt-
ur við og blaðið mun koma út aftur, en
nú undir því nafni, er ég nefndi áður.
Ritstjórar blaðsins verða þeir Hans Jör-
gen Pedersen og Bent Riis Olesen.
Plötuspursmálið í Danmörku er ekki
sem bezt, landið er fátækt af erlendum
gjaldeyri, og þar sem litið er á plötur
sem lúxusvöru, er innflutningur á þeim
ekki mikill.
Hins vegar höfum við verið heppnir
með heimsóknir amerískra jazzleikara.
Eftir stríðið höfum við heyrt í eftirfar-
andi stjörnum: hljómsveitum þeirra Don
Redman, Rex Stewart, Chubby Jackson,
Dizzy Gillespie, Louis Armstrong, King
Cole og Benny Goodman, auk stjarnanna
Coleman Hawkins, Jose White, Charlie
Parker, Roy Eldridge, Lena Horne, June
Richmond og söngkvartettinn Delta
Rhythm Boys.
Allar þessar stjörnur hafa haft mikil
áhrif á okkar eigin jazzleikara. Eftir
fremstu aðstæðum höfum við komið í
kring jam-sessionum með fyrrnefndum
hljóðfæraleikurum og frá þessum kvöld-
um eigum við óteljandi minningar sem
aldrei fyrnist yfir. — Segið svo að hinn
danski jazz sé l afturför.
Markmið hinna dönsku jazzvina er,
að auðvelda skilning og lærdóm á hin-
JOHN KIRBY
Framh. af bls. 12
nokkru leyti í klassíska stílnum (sbr.
framar í greininni), það þriðja er dans-
lagið „Peanut Vendor“ og hið fjórða er
jazzlag að nafni „Ripples".
Og síðan hverfur hljómsveit þessi af
jazzhimninum. Fram að þessu hefur
engin ámóta hljómsveit náð slíkri full-
komnun sem þeir. Það er ótrúlegt en
satt, að hljómsveit John Kirby var
algjörlega fullkomin jazzhljómsveit. —
Vonum við, að annar negri eigi eftir að
fylla skarðið sem myndaðist, þegar að
hljómsveit John Kirby leystist upp, það
eru mikil not fyrir slíka hljómsveit.
(S. G. þýddi).
VIÐBÓT
Því má skjóta hér aftan við, að John
Kirby gerði nú fyrir stuttu tilraun til
að endurvekja hljómsveit sína. Fékk
hann þá Shavers, Procope, Bailey, Kyle
og trommuleikarann Sidney Catlett (sem
annars eru allir fastráðnir í öðrum
hljómsveitum) til að æfa með sér og hélt
hann svo hljómleika í „Carnegie Hall”
í New York. Að sjálfsögðu komu fleiri
hljómsveitir fram á hljómleikunum, en
þrátt fyrir það var aðsókn lítil sem eng-
in og þessi virðingarverða tilraun Kirby
fór algjörlega út um þúfur. s G
um sanna jazz, jafnframt því, að tengj-
ast áhugamönnum í öðrum löndum með
samvinnu fyrir augum.
Það er okkar heitasta ósk, að í fram-
tíðinni fáum við að heyra meira um
jazzinn á íslandi og við getum komið
beinu sambandi á milli íslenzkra og
danskra jazzunnenda.
(Trausti Thorberg þýddi).
JaiMaíiÍ 17