Jazzblaðið - 01.04.1951, Side 23
stöðum. Þarna á búllunni ægði saman
skítugum mönnum og skeggjuðum, og
prúðbúnum mönnum eins og póstmann-
inum og mér. Því miður töluðu þeir
saman á ítölsku eins og von var, en
Póstmaðurinn sagði mér, að þeir töluðu
saman um allt mögulegt, allt frá því
hvernig þeir ættu að „redda“ húsaleig-
unni, upp í ástand og horfur almennt.
— Maður kom inn með harmoniku og
reyndi að stampa henni, annar hamaðist
við að búa til sígarettur úr stubbum,
sem hann hafði tínt í þeim tilgangi, en
póstmaðurinn og ég drukkum kaffi, sem
var svo sterkt og þykkt, að það rétt
rann úr bollanum, þegar maður hallaði
honum. Bezta kaffi í heimi, held ég. —
Við reyktum og ég spurði.
Á Ítalíu er of mikið af hljóðfæraleik-
urum og söngvurum. Atvinnuleysi er
mikið af þeim sökum og kaupið mis-
jafnt. Á öllum betri stöðum leika stórar
jazzhljómsveitir, en einkum þó á þeim
stöðum, sem ætlaðir eru ameríkönum
og öðrum ferðalöngum. Ég man eftir
einu kvöldi, þegar ég var á gangi við
Riviera ströndina, en fyrir miðju hinn-
ar ítölsku Rívíera stendur einmitt borg-
in, að ég rakst á stað, sem hét Nuevo
Lido. Þetta var staður, sem saman stóð
af vaggandi pálmum undir berum dökk-
bláum næturhimni. Lítil borð voru milli
trjánna á geysi „flottum" palli eða úti-
leiksviði, spilaði stór hljómsveit í amer-
ískum stíl. Meðfram allri ströndinni, og
hún er löng, eru slíkir staðir og hafa
flestir mjög góðar hljómsveitir. En al-
menningur á Ítalíu getur ekki veitt sér
slíkt, eins og að sækja þá, og því eru
þeir sjaldan fullir.
Ýmsar amerískar og aðrar erlendar
jazzhljómsveitir hafa leikið í hinum
stærri borgum — og verið vel tekið af
jazzistum, þar eins og annars staðar. í
Róm, sagði póstmaðurinn mér, spiluðu
oftast nær að staðaldri einhverjar er-
lendar frægar hljómsveitir í nætur-
klúbbunum. Hins vegar hefur almenn-
ingur í landinu furðu lítinn áhuga fyrir
jazz, sagði hann, enda er það ekki und-
arlegt, þar sem menn eins og Caruso og
Gigli eru einkum dýrkaðir, einkum sá
hinn síðarnefndi, og þarf engan að
undra það.
Ég kvaddi póstmanninn, því að hann
þurfti að fara til vinnu sinnar og hafði
hann sagt að ég mætti koma á póst-
húsið, ef ég væri í vandræðum með eitt-
hvað, og héldi að hann gæti hjálpað
mér.
MÚSIKÞÆTTIR
í erlendum útvarpsstöðvum apríl—júní,
sumartími.
GUÐMUNDUR KR. BJÖRNSSON tók saman
BBC — F. hádegi 19m. — E. hádegi 16—19—
25m. Kvöld 19—25—31m. Nótt 25—31—49m.
a—15 mínútur, b—30, c—45.
Sunnd.: 13.40 c Hljómsveit. 15.00 c Jazzlög
(finnskt, 25m). 17.00 b Jazzklúbburinn
mánaðarlega (danskt, 25 m.). 19,30 b Jazz
(franskt, 41—49m). 21.15 c Óskalög.
Mánud.: 14.15 c Nýjar plötur. 15.25 a Óskalög.
17.30 b Jazzhljómsveit. 18.30 b Vinsæl lög.
Þripjud.: 10,30 b Óskalög. 13.15 c V. Silvester.
22.00 c Nýjar plötur.
MiOvikud.: 10.30 b Vinsæl lög. 11.45 b Jazz
(plötur). 15.25 a Óskalög, 20.15 c Hljóm-
sveit. 21,45 a Hljómsveitir. 23.15 b Jazz-
hljómsveit.
Fimmtud.: 81.5 c V. Silvester. 12.15 a Óskalög.
17.30 b Tip-Top lög.
Föstud.: 21.15 b Jazz (plötur). 1.15 c hljóm-
sveit.
Laugard.: 10.30 b Óskalög. 12.30 a Hljómsveitir.
13.15 c Óskalög. 20.15 b „Afro-American
Bands" 8 þættir (VA-19m., en næst maí
eða júni 16m). 22.00 c V. Silvester. 23.15
b Jazz (plötur).
Light Programme—1500m (200 kc/s).
8.10—9.00 (mánud.-laugard.) Létt lög. —
17.00 (laug.) Jazz. 21.20—22.00 (mánud.-
föstud.) og 21.15—22.56 (laugard.) Hljóm-
sveitir.
„Midnight in Munich" kl. 23.05—24.00 (mánud.
miðvd. og föstud.) 48.70m. (6.16 mc/s) 10
kw. (Sama 312m).