Jazzblaðið - 01.04.1951, Side 24
ir DIZZY GILLESPIE hélt
hljómleika í Carnegie Hall fyrir
nokkru, þar sem hann kom
fram með strengjahljómsveit
þeirri, er hann lék inn á plöt-
ur með fyrir nokkru, og getið
var um í siðasta hefti. Prá
því að Parker fann upp á
þessu að koma fram sem ein-
leíkari og láta strengjahljóð-
færi aðstoða sig, hefur þetta
breiðzt nokkuð út. — Nokkru
eftir að Gillespie-plöturnar
komu á markaðinn var það
tilkynnt, að píanóleikarínn
Erroll Garner ætlaði að leika
inn á nokkrar plötur með
strengjum og fleiri ætla að
koma á eftir.
ÍT REINHOLD SVENSSON,
hinn blindi sænski píanóleik-
ari, er sennilega sá erlendi
jazzleikarinn, sem þekktastur
er í USA. — Plötur þær, sem
hann hefur leikið inn með
trlói í Svíþjóð og gefnar hafa
verið út í Bandaríkjunum, eru
mikið keyptar, og oft leiknar
1 útvarpsstöðvum víðsvegar um
Bandaríkin.
ir DUKE ELLINGTON hélt
hljómleika í The Metropolitan
Opera House i New York síð-
ast í janúar. Hljómleikarnir
vöktu geysimikla athygli og
fengu mjóg góða ctóma.
ir FLETCHER HENDERSON,
sem fyrir nokkru kom fram
með sextett í klúbbnum Cafe
Society í New York, liggur nú
veikur. Hægri hlið hans lam-
aðist, en vonir standa tíl um
að hann nái sér. — Guitarist-
inn Les Paul liggur veikur á
heimili sínu í Kaliforníu. —
Hann fékk slag.
ir MCM hljómplötufyrirtækið
hefur undanfarna mánuði
fastráðið nokkrar þekktar
hljómsveitir. Woody Herman
er hættur hjá Capitol og kom-
inn til MGM, Buddy DePranco
sem nýlega hefur stofnað stóra
hljómsveit mun leika inn fyrir
MGM, — og eins hefur Tex
Beneke hætt hjá Victor og
farið til MCM. Hljómplötu-
fyrirtæki þetta er eitt af yngri
plötufyrirtækjunum í Banda-
ríkjunum, en er þegar komið
í hóp hinna stærri (Decca,
Victor, Columbía, Capitol). —
Þeir Billie Eckstíne og George
Shearing eru báðir á samn-
ingi hjá MGM. Billie söng
fyrir nokkru inn á plötu með
aðstoð hljómsveitar Woody
Herman. Platan tókst sérstak-
lega vel og selst mikið.
ir HUDDIE LEDBETTER, —
hinn víðþekkti negrasöngvari,
upplifði það aldrei að lag, sem
hann hafði samið fyrir mörg-
um árum yrði þekkt. — Led-
better dó fyrir ári siðan, en
skömmu síðar náði lag hans
vinsældum og fór sigurför um
allan heiminn. Hvarvetna hef-
ur það verlð metsölulag. Lagið
heitir „Gooctnight, Irene", og
hefur það engu að siður átt
vinsældum að fagna hér sem
annars staðar í heiminum.
+■ PUTTE WICKMAN-sextett-
inn hinn sœnski mun jafnvel
fara til Ítalíu og leika þar
nœstu mánuði. — Afráðið er.
að danski jazz-fiðluleikarinn
Sören Christiansen fari með
hljómsveit sína til Spánar og
leiki þar í nokkra mánuði. —
Sören er með Svía í hljóm-
sveit sinni og hefur hljóm-
sveitin leikið í Sviþjóð um
langan tima.
ir GENE KRUPA hefur lagt
niður hina stóru hljómsveit
sfna og kemur nú aðallega
íram i sjónvarpi með lítilli
hljómsveit. — Síðustu fregnir
herma, að hann ætli að kaupa
mjólkurbú — en að sjálfsögðu
mun hann halda áfram að
spila!
ir BENNY CARTER er nú
með litla hljómsveit og hefur
hún leikið undanfarið í Chi-
cago. Hinn þekkti trombón-
leikari J. J. Johnson er með
honum i hljómsveitinni.
-A- DAVE BRUBECK, píanó-
leikari, sem er vel kunnur í
Kaliforníu, hefur verið með
tríó í Chlcago undanfarnar
vikur og mun sennilega leika
í New York á næstunni. Trió
þetta hefur vakið talsverða
athygli — stíll þess er einna
likastur Shearing-stilnum og
ber pianóleikur Dave þess vott
að hann hefur orðið fyrir
áhrifum frá Shearing.
+ PEE-WEE RUSSEL, hinn
gamalkunni Dixieland-klarinet
ari, liggur veikur á sjúkrahúsi
í Kaliforniu. Veikindi hans
munu stafa af því, að hann
hefur innbyrgt fullmikið af
alkóhóli um dagana. (Vonandi
skánar þeim gamla, svo að
hann geti byrjað aftur).
24