Jazzblaðið - 01.04.1951, Side 25
ir NORMAN STENFALT,
píanóleikari og útsetjari hjá
Ted Heat 1 Englandi er nú
hættur í hljómsveitinni.
ir HLJÓMSVEIT HARALDAR
GUÐMUNDSSONAR í Vest-
mannaeyjum er um þessar
mundir stœrsta danshljóm-
sveitin hér á landi. / hljóm-
sveitinni eru Vestmannaeying-
arnir Jimm, Haraldur, Gisli
Bryngeirsson, Gísli Brynjólfs-
son, Sigurður Guðmundsson
og Guðni Hermansen. Nj/lega
hafa Reykvikingarnir þeir Axel
Kristjánsson hassaleikari og
Árni Elfar pianólelkari bœzt
við i hljómsveitina. Magnús
Pétursson tók sœti Árna hjá
Birni R. þessar vikur, sem
hann verður í Eyjum. — Þrír
aðrir Reykvikingar hafa leik-
ið í Eyjum undanfarið, þeir
Árni ísleifsson, Guðni Guðna-
son og Bragi Einarsson. Hafa
þeir leikið í Sjálfstœðishúsinu
þar, ásamt tveimur Vest'-
mannaeyingum, þeim Páli
Steingrímssyni guitarleikara og
Sig. Þórarinssyni trommul.
KARL JÓNATANSSON er
á góðri 'leið með að fá góða
hljómsveit saman í Keflavík.
Með honum er ungur og efni-
legur guitarleikari og söngvari
frá Norðfirði að nafni Svavar
Lárusson, ungur trommuleik-
ari úr Keflavík, sem heitir
Alfreð Haraldsson, bassaleik-
arinn Páll Ólafsson, sem áður
i’efur leikið með Karli og
siðan hinn kunni keflvíski
harmonikuieikari Baldur Júl-
iusson. Karl leikur sjálfur á
saxófón og harmoniku.
★ / BORGARHLJÓMSVEIT-
INNI eru nú ekki nema fjórir
menn fyrri hluta vikunnar. —
Hljómsveitarstjórinn C. Billich
leikur yfirleitt ekki með þá, og
hefur Magnús Pétursson kom-
ið í staðinn. Hinir meðlimir
hljómsveitarinnar skipta vinn-
unni á milli sin. Á dansleikj-
um og öðrum skemmtunum
eru þeir hins vegar sex.
+ MYNDIN hér áð neðan er
af Þ. Ó. kvintettinum, sem
leikið hefur í Listamannaskál-
anum meiri hluta þessa vetr-
ar. — Á myndinni er talið að
ofan: Höskuldur Þórhallsson
trompet (og trommujleikari,
Guðni Guðnason harmoniku-
(og trommujleikari, Þórarinn
Óskarsson trombónleikari og
stjórnandi hljómsveitarinnar,
Bragi Einarsson tenór- og
klarinetleikari og Árni ísleifs-
son píanóleikari. (Þeir Árni,
Guðni og Bragi eru fyrir
nokkru farnir til Vestmanna-
eyja, eins og sjá má annars
staðar á þessari síðu, og komu
þeir Guðm. Norðdahl, Sigur-
geir Björgvinsson og Magnús
Pétursson í þeirra stað).
ÓSKAR CORTES hefur
stjórnað Ingólfscafé- (og Inðó
á laugardögum) hljómsveitinni
í vetur. Þó ekki beri mikið á
hljómsveit þessari í hljómlista-
lifinu, þá fylgist hún vel með.
Fáar hljómsveitir, ef nokkrar,
eru jafn fljótar að koma með
þau ný danslög, sem vinsældir
hafa hlotið. Löngu áður en
nokkur annar hér vissi um lög
eins og ,Orange couloured sky',
,Tennessee waltz', ,Mona Lisa‘
nokkur fleiri voru Cortes og
félagar hans farnir að leika
þessi lög.
AÐALFUNDUR FÉLAGS
ISL. HLJÓÐFÆRALEIKARA
var haldinn nokkru fyrir miðj-
an marz s.l. í stjórn félagsins
voru að þessu sinni kosnir:
Svavar Gests, formaður; Carl
Billich, gjaldkeri; Lárus Jóns-
son, ritari; Björn R. Einars-
son, formaður B-deildar, og
Bjarni Böðvarsson, formaður
A-deildar. — Fjármálaritari:
Páll Bernburg. — í prófnefnd
voru kosnir: Óskar Cortes,
formaður; Björn R. Einarsson
og Gunnar Egilson. í fjár-
öflunarnefnd: Páll Bernburg,
formaður, Hallur Símonarson
og Bragi Hlíðberg. í skemmti-
nefnd: Kristján Kristjánsson,
formaður; Guðm. R. Einars-
son og Einar Jónsson. Mjög
var fjölmennt á aðalfundi og
er áhugi meðlima mjög mikill
fyrir félagsstarfseminni. Árs-
hátið félagsins var haldin
nokkru eftir aðalfund og fór
aö \enju vel fram, þó að hún
hefði mátt vera fjölmennari.
NÝ DANSLÖG hafa m. a.
þessi komið út undanfarið: Eg
þekki eina unga mey‘ og
.Manstu kvöldið?' sem heita
upphaflega ,1 taut I saw a
puddy tat‘ og .Tennessee waltz'
^azzLLáií 25