Musica - 01.03.1949, Síða 14
Yfirleitt voru þessir hljómleikar söngstjóra, kór og
hljómsveit til mikils sóma, enn söngstjórinn hefði að
skaðlausu mátt æfa hljómsveitina betur fyrir hljóm-
leikinn.
T. A.
Beethovenhljómleikar Arna Kristjánssonar
í Austurbœjarbíó í febrúar
Viðfattgsejni:
Sonata í f-moll op. 3.
Allegro.
Adagio.
Menuetto.
Pristissimo.
Sónata í c-moll op. 3.
Maestoso. Allegro con brio ed appassionata.
Arietta. Adagio molto semplice e cantabile.
Sonata í f-moll op. 57.
Allegro assai.
Andante con moto.
Allegro ma non troppo.
Það eru til tvennskonar listamenn, þeir sem nota
tækni sína sér til frægðar, og þeir sem nota tæknina
sem hjálparmeðal til að ná því bezta úr viðfangs-
efnum sínum.
Arni Kristjánsson er einn af þeim síðarnefndu, hann
reynir aldrei að „brilliera“ á tækni sinni, heldur reynir
hann umfram allt að ná innri kjarna verksins fram.
'Eg held að túlkun Arna á hinum þrem sónötum
Beethoven hafi orðið öllum áheyrendum ógleymanleg,
því að hún var laus við ytra prjál, enn djúp og sterk.
Arni er stórbrotinn og alvarlegur listamaður, tækni
hans er mikil og ásláttur hans afar fallegur.
Þessir hljómleikar voru ógleymanlegir þeim er á
hlyddu, og vonandi sér Arni sér fært, að halda fleirri
sónötukvöld á næstunni.
T. A.
Engel (Gagga) Lund — Þjóðlagakvöld
Með aðstoð dr. Páls Isólfssonar.
Lög frá 10 löndum.
3. hljómleikar tónlistarfélagsins á starfsárinu 1948
voru flestum til mikillar ánægju.
Gagga Lund býr yfir miklum persónuleika, og þeim
sjaldgæfa hæfileika að gera hljómleika sína svo hlý-
lega og nærri því heimilislega að á hljómleikunum
geta taugarnar hvílst og maður getur „slappað af“ frá
önnum dagsins.
Fyrst þegar að Gagga Lund kom hingað barst ríkis-
útvarpinu beiðni um að söngur Göggu Lund væri
tekinn upp á hljómplötur og var það gert og urðu
margir fyrir vonbrigðum sem höfðu 'heyrt mestar
frægðarsögurnar af söngkonunni, og þarna liggur
einmitt leyndardómur hennar, það er ekki röddin
sem gerir meðferð söngkonunnar á lögunum ógleym-
anlega, og ekki túlkunin þó að hvortveggja sé gott
heldur persónuleikur söngkonunnar hlýja hennar og
innileiki.
Páll Isólfsson aðstoðaði söngkonuna dyggilega.
Orgeltónleikar dr. Páls Ísólfssonar í
Dómkirkjunni
Viðfangsefni:
Föstudaginn 22. okt.
G. F. Hiindel: Prelúdía og fúga, f-moll.
D. Buxtehude: Sálmaforleikur: Upp, skepna hver og göfga
glöð.
Max Reger: Benedictus (hinn blessaði).
Joh. Seb. Bach: Prelúdía og fúga, c-moll.
Sálmatilbrigði: Hver, sem ljúfan guð lætur ráða.
Max Reger: Toccata (d-moll) og fúga, D-dúr.
Föstudaginn 5. nóv.
Joh. Seb. Bach: Prelúdía og fúga, Es-dúr.
Sálmaforleikur: Jesú Kristi, þig kalla’ ég á.
Fantasia og fúga, g-moll.
Sálmaforleikur: Vakna, Síons verðir kalla.
Toccata og fúga, d-moll.
Föstudaginn 26. nóv.
César Franck: Choral pour grand Orgue nr. 3, a-moll.
Enrico Bossi: Invocazione, g-moll.
J. Bonnet: Variations de Concert.
Jón Nordal: Sálmaforleikur: Kær Jesú Kristi.
Páll ísólfsson: Passacaglia, f-moll.
Föstudaginn 17. des.
Joh. Seb. Bach: Prelúdía og fúga, C-dúr.
Prelúdía og fúga, B-dúr.
Sámaforleikur: Ofan af himnum hér kom ég.
Fantasia, G-dúr.
Pastorale, F-dúr.
Prelúdía og fúga, G-dúr.
Það er oft talað um, að orgelið hafi glatað vinsæld-
um sínum, og nöldrunarsjúkir svartsynismenn hafa
kveðið upp þann dóm, að unga fólkið sé spilt af
skemmtanafýkn og jazzi, og vilji ekki sjá klassiska
tónlist, a. m. k. ekk orgeltónlist, enn á orgeltónleikum
dr. Páls Isólfssonar brá svo einkennilega við, að
14 MUSICA