Musica - 01.03.1949, Síða 23

Musica - 01.03.1949, Síða 23
ancl um húsaskjól um nóttina, og sýnir honum jafn- framt nokkrar þeirra gersema sem hann hefir um borð í skipi sínu, jafnframt spyr hann Daland um hvort hann eigi dóttur, og er Daland játar því, spyr Hollendingurinn hvort Daland vilji gifta honum dóttur sína, og Daland sem hefir ekkert á móti að eignast svo ríkann tengdason, bindur það þegar fast- mælum. Skömmu síðar slotar veðrinu, og Daland og Holl- endingurinn sigla af stað heim á leið. 2. þáttur. I stórstofunni í húsi Dalans sitja stúlkurnar og spinna og syngja fjöruga söngva, aðeins Senta er fálát, hún horfir án afláts á mynd af Hollendingnum fljúgandi sem hangir þar á vegg. Ur 2. þœtti. Stúlkurnar stríða henni, enn Mary fóstra hennar álasar henni fyrir að vera of afskiftalaus við hinn trygga biðil hennar, veiðimanninn Erik. Enn Seta getur aðeins hugsað um myndina af hin- um óhamingjusama manni sem hefir haft svo mikil áhrif á hana, og biður Mary að syngja sönginn um Hollendinginn fljúgandi, enn er Mary neitar því, gerir Senta það sjálf: Dcemi: Stúlkurnar verða mjög hrærðar við söng Sentu, enn hún fellur í ljúfa drauma, og finnst að hún eigi að frelsa hinn óhamingjusama útlaga undan álaga dómnum. Þetta heyrir Erik sem í þessu kemur inn, og verður hræddur og reiður yfir þessum hugaburði Sentu, enn segir þeim að Daland sé á leiðinni á skipi sínu, og er stúlkurnar þjóta út, álasar hann Sentu fyrir að sitja alltaf fyrir framan myndina og hugsa aldrei um hann, og segir henni, að sig hafi dreymt, að Daland hafi komið með ókunnugan mann til húss sins, og hafi sá hinn ókunnugi haft Sentu á brott með sér á skipi sínu. Senta tekur þessu sem góðurn fyrirboða og bíður í eftirvæntingu komu föður síns, enn hinn óhamingju- sami Erik sem sér alla von hverfa þvtur í burtu. Þá opnast hurðin og faðir Sentu stendur fyrir utan ásamt manni sem hún þekkir sem hin sama og á myndinni. Daland segir henni nú frá bónorði hins ókunnuga manns, og lýsir mjög auðæfum þeim er hann á. Senta hlustar tæplega á hann, hún horfir á hinn ókunna mann, sem væri hún dáleidd, og þegar enginn segir neitt, fer Daland úr herberginu og skilur Sentu og Hollendinginn eftir. Hollendingurinn og Senta horfast í augu langa hríð, og svo fallast þau í faðma og skiftast á heitum ástar- orðum. Hollendingurinn aðvarar Sentu við örlögum þeim sem henni séu 'búin, enn Senta sver honum tryggð til dauðadags, og Hollendingurinn biður til himins um að Senta sé sú sem eigi að frelsa hann undan hinum illu álögurn. Daland kemur inn og sér, sér til mikiilár ánægju, að samningar hafa tekist með ágætum. 3. þáttur. Hjá ströndinni liggja skip, Dalands og Hollend- inigsinis fljúgandi hllið við hlið. A skipi Dalands er mikið fjör og þegar stúlkurnar koma með vín, vex kætin. Skip Hollendingsins liggur aftur á móti sveipað myrkri, enn er norðmennirnir taka að kalla hæðnislega til hollendinganna, færist brátt líf í áhöfnina og hún hefir upp óhugnanlegan söng og vindurinn tekur að blása í seglin. Norðmennirnir verða ofsahræddir og flýja undir dekk, enn skipshöfn álagaskipsins rekur upp hæðnishlátur og hverfur. Nú kemur Senta út úr húsinu í fylgd Eriks, sem ásakar hana fyrir að hafa svikið sig, Senta segist aldrei hafa lofað honum neinu. Þá kemur Hollendingurinn fram á sjónarsviðið, hann hefur hlustað á það er fór á milli Sentu og Eriks og hann skipar skipshöfn sinni að draga segl að hún, því hann heldur að Senta MUSICA 23

x

Musica

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Musica
https://timarit.is/publication/725

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.