Musica - 01.03.1949, Síða 25
johan Cristian.
themans er ólíkt athyglisverðari enn themað sjálft
sem er lítilfjörlegt í meira lagi.
ÆjiloI{ og síöustu ver\.
Er Bach dó, var aðeins lítill hluti verka hans kom-
inn út, tvö eða þrjú lítil hefti enn engin af fiðlusónöt-
um hans, toccötum, fantasíum, kóraLforleikjum, kons-
ertum eða variationum voru enn komin út, það beið
seinni tíma.
Hin smásálarlega gagnrýni og og illgirni er Bach
átti að mæta, gerðu að verkum, að hann dró sig
meira og meira tilbaka, enn heimilishamingja hans
gerði honum mögulegt að standast alla þá illgirni er
varð á vegi hans.
Með fyrri konu sinni Maríu Barböru átti hann
barnaflok auk þeirra barna er hann eignaðist með
seinni konu sinni Onnu Magdalenu, og öll voru þessi
börn tónelsk, honum til mikils unaðar. Það er sjald-
gæft að miklir Snil'lingar eignrst gáfuð börn, en
meðal 'barna Bach skara þrír sona hans framúr, þótt
þeir verði ávalt í skugga föður sins, voru þeir miklir
tónlistarmenn.
Þessir þrír synir hétu Wilhelm Friedman og Philip
Emanuel úr fyrra hjónabandi og Jóhan Christian úr
því síðara.
Wilhelm Friedman Bach var mestur þeirra bræðra
og eftirlæti föður síns.
Arið 1749 fékk Bach slag og tapaði þá sjóninni.
enn enskur augnlæknir er var á ferðinni skar hann
Philify Emanuel.
upp svo hann fékk sjónina aftur, nægilega snemma
til að sjá þá er hann elskaði, áður enn hann legði í
ferð þá hina löngu er allir eiga eftir að fara, enn
Bach hræddist ekki dauðann hann hafði lofsungið
dauðann, samið um hann ódauðleg tónverk og með
bros á brá lokaði hinn mikli meistari hinum þreyttu
augum, eftir gott dagsverk, eftir að hafa gefið mann-
kyninu fjársjóði sem eru ómetanlegir, fjársjóðir sem
hvorki möl né ryð fá grandað.
Sunnukórinn á ísafirði
Sunnukórinn á Isafirði er 15 ára. Kórinn hefir hald-
ið uppi fjölbreyttustu starfsemi alt frá stofnun sinni,
m. a. gengist fyrir uppfærslu tveggja óperettna á
ísafirði.
Hann hefur einnig farið söngför hingað til Reykja-
víkur og getið sér gott orð. Á Isafirði hefir hann
haldið fjölda opinberra hljómleika og sungið við
mörg tækifæri.
Jónas Tómasson tónskáld hefir frá upphafi verið
söngstjóri kórsins. Kórinn ráðgerir í sumar söngför
til Norðurlands, Akureyrar o. fl. staða. Að henni
lokinni hefir Jónas Tómasson í hyggju að láta af
söngstjórn 'hans og mun Ragnar H. Ragnar, sem ný-
lega hefir verið ráðinn kennari, Tónlistarskólans á
Isafirði, þá taka við henni. Ohætt er að fullvrða að
Sunnukórinn sé meðal fremstu blandaðra kóra hér
á landi.
MUSICA 25