Musica - 01.03.1949, Page 30

Musica - 01.03.1949, Page 30
MOLÁR Síðan Musica kom síðast út, hefir jazzinn mist tvo af sínum beztu mönnum, Stan Hasselgard er fórst í bílslysi í desember og Dave Though er dó eftir fárra daga veikindi í janúar. Hasselgard, átti að vera með hinni nýstofnuðu hljómsveit Benny Goodman, og hafði B. G. tekið miklu ástfóstri við þennan unga svía, auk þess sem hann var kosinn þriðji bezti klarinettieikarinn í Down Beat og Metronom kosningunum. Var frægðarbraut Hasselgard óvenjuleg og er mikill missir af honum. Dave Though var 44 ára að aldri þegar hann dó, og var álitinn einn af þrem beztu trommuleikurum Bandaríkjanna, enda hafði hann leikið með flestum af frægustu jazzhljómsveitunum þar. Dave hafði verið heilsulítill, svo að dauði hans kom ekki svo mjög á óvart. Trommur: 1. Shelly Manne. 2. Sonny Greer. 3. Don Lamond. Bassi: 1. Eddie Safranski. 2. Ghubby Jackson. 3. Oscar Pettiford. Gítar: 1. Oscar Moore. 2. Ifilly Bauer. 3. Johnny West. Utsetjarar: 1. Billy Strayhorn. 2. Pete Rugolo. 3. Sy Oliver. Söngvari- með hljómsveit: 1. A1 Hibbler. 2. Buddy Stewart. 3. Jack Hunter. Söngkona með hljómsveit: 1. June Christy. 2. Rosalind Patton. 3. Kay Davies. Stan Kenton ætlar að lcera lœ\nisfrœði. Stan Kenton hefir ákveðið að hætta hljómsveitar- stjórn og hefja læknisfræðinám. Kenton er eins og kunnugt er afar dutlungafullur, og er þetta ekki í fyrsta sinn, er hann ákveður að. hætta við hljómsveit sína, enn vinir hans segja að honum sé alvara í þetta sinn. Talið er að hljómsveitin muni halda áfram, undir stjórn Pete Rugolo útsetjara Kentons eða einhvers annars í hljómsveitinni. Plötuverkfallinu hefur nú verið aflétt í Bandaríkjun- um og er hljómsveitirnar nú önnum kafnar við að æfa undir plötuupptökur. Benny Goodman hefir nú stofnað nýja hljómsveit og er hún þannig skipuð:. Saxar: Mitchell Goldberg, Angelo Ciealesa, alto, Wardell Gray, Eddie Wasserman, tenor, Larry Moinelli, baritone. Trumpetar: Nick Travis, Doug Mettorme, Howard Reich, Al. Stewart. Trombone: Milt Bernhart, Eddie Bert, George Monte. Buddy Greco píano, Frank ifeecher gítar, Clyde Lombardi bassi og Sonny Igoe trommur. Söngvarar: Terry Swope, Greco og Goodman quintettinn. Útsetjarar: Jerry Valentine og Chico O. Farrell. Benny Goodman clarinett og stjórnandi. Amerísku blöðin segja að það borgi sig að fara 150 mílur til að hlusta á hljómsveitina. Við vonum að minnsta kosti að hún sé betri enn sú fyrri. Hinn frægi Bongo trommuleikari með Gillespie Chany Pozo var drepinn á bar einum í Harlem af náunga einum sem skaut að honum 7 skotum. Kathleen Windsor skáldkonan fræga er nú gengin í fylkingu fyrverandi eiginkvenna Artie Shaw, enn hún fékk fyrir skömmu skiinað eftir fjóra og háifrar- mínútu réttarhald, enn konur Artie Shaw hingað til hafa verið þessar: Lana Turner, Ava Gardner, Betty Kern, Jane Carns, Margaret Allen og nú að síðustu Kathleen Windsor, nú bíða blöðin í Bandaríkjúnum með óþreyju eftir hver verði no. sjö. 30 MUSICA

x

Musica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Musica
https://timarit.is/publication/725

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.