Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Patti húsgögn landsins mesta úrval af sófasettum Smíðum eftir þínum þörfum Íslensk framleiðsla Svefnsófar/ Stakir sófar Hornsófar/Tungusófar kr.149.900,- verð frá Bonn Aspen Verð Kr. 313.900,- Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is EVRÓPUNEFND ríkisstjórnarinnar hyggst nú útvíkka starf sitt og kalla eftir hagsmunamati almennings og fé- lagasamtaka í ljósi hugsanlegrar aðildar að Evrópusam- bandinu, ESB. Fyrri störf nefndarinnar lutu einkum að aukinni þátttöku stjórnmálamanna og embættismanna í hagsmunagæslu tengdri Evrópustarfi. „Þetta eru tímamót að mati okkar nefndarmanna. Það voru allir sammála um þetta, “ segir Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður, annar formaður nefndarinnar. Ágúst segir frumkvæðið að útvíkkun starfs nefndar- innar hafa komið frá nefndarmönnum sjálfum og hafi for- menn nefndarinnar rætt við forystumenn ríkisstjórnar- inar um að fara þessa leið. „Við ætlum ekki síst að kalla eftir mati þeirra samtaka sem ekki hafa verið í umræðunni hingað til, eins og til dæmis samtaka á vettvangi umhverfismála, jafnréttis- mála og lýðræðismála. Umræðan hefur verið svolítið ein- skorðuð við landbúnað, sjávarútveg og fjármálalífið. Við ætlum að ná til fleiri aðila,“ segir Ágúst. Hann tekur fram að þetta sé undanfari þess að skil- greina samningsmarkmið. „Umboð okkar nær hins vegar ekki til þess að samningsmarkmið séu skilgreind. Sú ákvörðun hefur ekki verið tekin. Þetta er hins vegar nauðsynleg vinna áður en kemur að slíkri skilgreiningu.“ Ágúst kveðst eiga von á að niðurstöður fáist snemma á næsta ári. „Síðan verður unnið úr þeim á vettvangi nefndarinnar. Ef við sækjum um aðild liggur að minnsta kosti þessi vinna fyrir. Hún gæti auðvitað flýtt fyrir ferlinu.“ Umboðið er útvíkkað  Evrópunefnd ríkisstjórnarinnar útvíkkar starf sitt í ljósi hugsanlegrar aðildar að ESB  Kallað eftir áliti almennings og félagasamtaka  Tímamót í starfinu Í HNOTSKURN »Í nefndinni um þróun Evr-ópumála, sem skipuð var 1. febrúar síðastliðinn, eru fulltrúar stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi, einn frá hverjum flokki. »Að auki býðst Alþýðu-sambandi Íslands, Sam- tökum opinberra starfsmanna, Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði Íslands að til- nefna hvert einn fulltrúa í nefndina. »Nefndin á að skila rík-isstjórninni skýrslu árlega. Hún starfar á vegum forsæt- isráðuneytisins en utanrík- isráðuneytið og sendiráð veita nauðsynlega aðstoð. Reuters ESB-leiðtogar Vinna Evrópunefndar ríkisstjórnar Íslands gæti flýtt fyrir hugsanlegu umsóknarferli. HEFÐ hefur skapast fyrir því hjá Skógrækt- arfélagi Reykjavíkur að borgarstjórinn opni jólaskóginn í Heiðmörk. Svo var einnig í gær er Hanna Birna Kristjánsdóttir mætti á svæðið en á undan henni voru m.a. komin þau Ingvar, Ingi- björg, Arnór Breki og Sólveig sem náðu sér í eitt gott jólatré. Helgarnar til jóla geta borgarbúar mætt í Hjalladal milli kl. 11 og 16 og fengið sér í leiðinni heitt kakó og kökur. Jólaskógurinn opnaður í Heiðmörk Morgunblaðið/Kristinn ÞEGAR bankarnir fóru í þrot í haust ákváðu eigendur Bruggsmiðjunnar á Árskógssandi að brugga ekki jafn- mikið af Jóla Kalda og þeir höfðu ráðgert. Jólabjórinn seldist hins vegar upp á þremur vikum hjá framleið- andanum þannig að hægt hefði verið að brugga meira, að sögn Agnesar Sigurðardóttur, eins eigendanna. „Við ætluðum upphaflega að brugga 26 þúsund lítra en út af ástandinu í þjóðfélaginu brugguðum við um 16 þúsund lítra eða 50 þúsund flöskur. Við reiknuðum alls ekki með svona viðtökum,“ segir Agnes sem bendir á að enn sé þó hægt að fá Jóla Kalda í sumum vínbúðum. Bruggsmiðjan á Árskógssandi hefur verið starfrækt í tvö ár og þeim tíma hafa verið seldar rúmlega 1,5 milljónir flaskna af ljósum og dökkum Kalda. Nú er verið að undirbúa útflutning á bjórnum til Færeyja og Noregs, að því er Agnes greinir frá. „Við flytjum bjórinn til Færeyja í jan- úar og hann á að vera kominn í vínbúðir þar 1. febrúar. Vonandi verður hann kominn í vínbúðir í Noregi 1. mars. Ef salan gengur vel í þessum löndum verður stefn- an mögulega sett á fleiri mark- aði.“ Keyptir hafa verið nýir tankar í bruggsmiðjuna sem verið er að tengja. Þar með verður hægt að auka ársframleiðsuna úr 300 þús- und lítrum í 500 þúsund. Að sögn Agnesar eru Íslendingar almennt hrifnari af ljósum Kalda en dökkum en Jóla Kaldi er dökkur bjór og bragðmikill. ingibjorg@mbl.is Teyga Jóla Kalda í kreppunni Kaldi Jólabjórinn er að seljast upp. VILHJÁLMUR Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, SA, segir úrvinnslu könnunar meðal félagsmanna á áhuga á aðild að Evrópusamband- inu í eðlilegum farvegi. Hann vill ekki staðfesta það sem Björn Bjarnason dóms- málaráðherra skrifar á vef sínum að 43% félagsmanna hafi verið hlynnt aðild að Evrópusambandinu, 40% andvíg og 17% óviss. Dóms- málaráðherra spyr á vef sínum hvers vegna niðurstaðan hafi ekki verið birt. „Mér finnst eðlilegt að tjá mig um það fyrst í framkvæmdastjórn og stjórn SA þannig að við fáum svig- rúm til þess að ráða ráðum okkar því að þessi mál hafa verið mjög viðkvæm innan samtakanna. Við erum að reyna að finna farsælan farveg fyrir þessi mál. ingibjorg@mbl.is Í eðlilegum farvegi Vilhjálmur Egilsson INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði í þættinum Vikulokin á Rás 1 í gær- morgun að hún og Geir H. Haarde hefðu rætt um breytingar sín á milli á ríkisstjórninni en vildi ekkert segja nánar um það. Sagði hún stjórnvöld verða að svara kalli um breytingar og vísaði þar til FME, Seðlabankans og ríkisstjórn- arinnar. „Við verðum að sýna vilja til að taka á þessum málum,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Jafnframt sagði hún líklegt að boðað yrði til þingkosninga áður en kjörtímabilinu lyki ef niðurstaða Sjálfstæðisflokksins á landsfundi í janúar yrði sú að efna ekki til við- ræðna við ESB. Svara verði kalli um breytingar ROBERT Dar- iusz Sobiecki, sem Hæstiréttur dæmdi nýverið í þriggja ára fang- elsi fyrir að nauðga stúlku á Hótel Sögu í fyrra, er enn ófundinn og eft- irlýstur af lög- reglunni á höf- uðborgarsvæðinu. Að sögn Páls Winkel fangelsismálastjóra var So- biecki í farbanni þar til hæstarétt- ardómur féll en hann gaf sig ekki fram er hefja átti afplánun. Lög- reglan tekur við upplýsingum um ferðir hans í síma 444-1100. Nauðgari ennþá eftirlýstur Robert Dariusz Sobiecki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.