Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 48
48 Minningar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 Aðventan er gengin í garð. Sjóflyksurnar falla, sindra í myrkrinu, þó er töfrablær mjallar- innar ekki eins áhrifaríkur og áður. Í hjartanu er tómarými. Tengdafaðir minn Björn Björnsson er fallinn frá. Hlýr maður sem sá jákvæðar hliðar lífsins, kom auga á kímnina þó að hún blasti ekki alltaf við öðrum. Björn sýndi öðrum fölskvalausa athygli og fylgdist vel með öllum í fjölskyldunni. Hann var sem akkeri hennar, stað- fastur, áreiðanlegur og alúðlegur. Áhugi hans á tækni var einber, hann fylgdist vel með og var ætíð með allar tækninýjungar á hreinu. Björn var ræðinn og það var alltaf gaman að heimsækja þau hjónin, það var sama hvert umræðuefnið var, hann hafði ákveðnar skoðanir á öllu og velti oft upp hlægilegum hliðum á tilverunni. Það var gaman að heyra þau ræða um þá daga sem hann var flugvirki og hún flugfreyja. Ég gat oft velst af hlátri yfir sögum af flugferðum þar sem eitthvað óvænt kom upp á. Á kveðjustundum eru ótal minn- ingabrot sem þjóta um hugann. Ég man eftir fyrstu heimsókninni sem ég kom í til Björns og Sissúar fyrir rúm- um 20 árum þar sem systkini manns- ins míns þutu um til að skoða þessa nýju kærustu og Björn virkaði ábúð- arfullur en hlýr. Heimsóknum þeirra að skoða litlu barnabörnin í Þingholt- unum sem hann lét sér annt um. Sím- tölum um miðjar nætur þar sem hann sinnti störfum umsjónarmanns okkar við LÍN þegar við bjuggum í Amer- íku, þegar hann kom og þegar gaf mér start á miðri umferðar- götu … Brot minninganna raðast saman í mynd af heilsteyptum manni sem hefur skipað stóran sess í lífi okkar ástvina hans. Veikindum sínum tók hann af æðruleysi. Við héldum að hann væri að kveðja fyrir tveimur ár- um en lífsgleði hans og létt lund urðu til þess að hann var valinn í meðferð sem fáir á hans aldri áttu kost á. Því fjölgaði þeim dýrmætu stundum sem við áttum saman. Undir það síðasta sló hann enn á létta strengi og sagði kímnislega að hann hefði það stórgott þó að hann væri að deyja. Það er gott að geta kvatt þennan heim án eftir- sjár og finnast maður hafa verið lukk- unnar pamfíll eins og hann komst að orði. Þroskaður er sá maður sem lítur yfir líf sitt, er sæll og fer sáttur inn í dauðann. Aðventan líður og jólin koma. Ég er sæl að hafa átt slíkan öð- lingsmann fyrir tengdaföður. Það er mikil gjöf að eiga góða að. Minning- arnar lifa með okkur sem eftir erum. Ég sé hann fyrir mér umvafinn ljósi almættisins í félagskap móður sinnar og föður í sannri jólagleði sem við sameinumst öll í. Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir. Kveðja frá Flugmálastjórn Ís- lands Með Birni Björnssyni er fallinn frá mikilhæfur maður sem unnið hefur að eflingu flugsins og þá einkum flug- öryggis í tæpa fjóra áratugi. Björn hitti ég fyrst fyrir rúmum áratug og þá sem deildarstjóra lofthæfideildar. Þar var á ferðinni maður sem hafði mikla reynslu, var meira en í með- allagi greindur og gaf af sér góðan þokka. Hann hafði áhyggjur fyrir hönd flugsins, að deildin hans væri ekki nógu öflug, á þessum tímum uppgangs og útrásar í flugi, til að leið- beina og hafa eftirlit með lofthæfimál- um. Það var ekki í eina skiptið að hann hafði áhyggjur í þessa veru en honum tókst betur en flestum að virkja þær áhyggjur til hagsbóta fyrir starfsemi Flugmálastjórnar og flugs- ins á Íslandi. Þá skildi hann afskap- Björn Björnsson ✝ Björn Björnssonfæddist í Hamborg í Þýskalandi 9. mars 1933. Hann lést á líkn- ardeild Landspítalans 29. nóvember síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Foss- vogskirkju 9. desem- ber. lega vel hina nýju strauma í eftirliti með flugmálum þar sem gæðastjórnun og ábyrgð þeirra sem vinna sjálfir verkin er lykilatriði. Björn mótaði ekki aðeins starfið hérlend- is heldur hafði tölu- verð áhrif á starfsemi flugöryggisstofnunar Evrópu, JAA, í kröf- um til viðhaldsstjórn- unar loftfara. Það var kannski ekki furða að svo væri, maður sem talaði fjögur tungumál eins og móðurmál sitt, alinn upp í Þýskalandi og Danmörku, menntaður í Englandi og starfaði ár- um saman í Bandaríkjunum. Það var eðlilegt að JAA kynni að meta fram- lag hans þegar kom að þessari merku samhæfingu flugöryggisreglna innan Evrópu sem urðu að vera í samhljómi við reglur Bandaríkjanna. Ég minnist þó best glettni Björns og hreinskipti hans og met það mikils þegar hann nánast húðskammaði yf- irmann sinn með réttu fyrir fram- komu við starfsmann í deild þeirri sem hann stýrði. Stjórnendur þurfa á slíkum starfsmanni að halda sem þor- ir að koma fram og rökstyðja mál sitt. Ég vil fyrir hönd Flugmálastjórnar þakka Birni Björnssyni fyrir hið mikla framlag hans að flugöryggis- málum þjóðarinnar um leið og ég fyr- ir hönd allra starfsmanna stofnunar- innar votta fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Við söknum Björns. Pétur K. Maack flugmálastjóri. Afi minn, þegar ég sé myndir af þér frá því þegar þú varst ungur minn- irðu mig helst á James Dean. Hví- líkur sjarmur. Ég ímynda mér að þú hafir komið frá Ameríkunni, heillað dömurnar með enskum slettum og sólgleraugum, gengið um í svörtum leðurjakka. Svo söngstu kannski í takt við Elvis Presley … og flaugst um háloftin. En frá því að ég man fyrst eftir þér varstu afi minn sem sagði sögur og ræddi heimsmálin. Sögurnar þínar frá seinni heimsstyrjöldinni þóttu mér svo spennandi, að þú hefðir virki- lega upplifað þetta. Vá! Morgun- stundir með ristuðu brauði og marm- elaði þínu. Stökkar vöfflur að hætti afa. Tárið úr öðru auganu. Msn. Húmorinn. Kaldhæðnin. Hláturinn. Faðmurinn. Hlýjan. Vísindatímaritin. Heimspekilegu samræðurnar. Rauði jeppinn. Saltpillurnar. Höndin þín. Brosið þitt. Þau eru ófá skiptin sem þú hefur verið til halds og trausts. Þú bjarg- aðir mér þegar ég var föst út í Chile. Manstu? Þú kallaðir mig alltaf Per- ústelpuna þína … Elska þig, afi minn. Alltaf. Þín Ragnheiður Harpa Leifsdóttir. Ég kynntist Birni fyrst þegar hann starfaði sem flugvirki og skoðunar- maður hjá Loftleiðum í New York og ég var eftirlitsmaður Flugmála- stjórnar sem kom þangað í eftirlits- ferðir nokkrum sinnum á ári. Fljótt varð mér ljóst að Björn bar af öðrum skoðunarmönnum Loftleiða og að þarna fór maður með einstaka hæfi- leika á sínu sviði, vel menntaður og með mikla reynslu. Þegar brýnt varð að ráða flug- virkja og skoðunarmann til Flug- málastjórnar gaf það því augaleið að ég reyndi að leggja snörur fyrir Björn og fá hann til þess að koma heim og taka að sér hið veigamikla starf að hafa eftirlit með lofthæfi allra ís- lenskra loftfara sem skoðunarmaður loftferðaeftirlitsins og sjá auk þess um viðhald og skoðanir flugvélar Flugmálastjórnar. Það tókst og hóf Björn störf hjá Flugmálastjórn árið 1974 og starfaði þar sem flugvirki, yfirskoðunarmað- ur og deildarstjóri lofthæfideildar í nærfellt 30 ár til loka starfsaldurs síns árið 2003. Næstu þrjú árin fram í október 2006 vann Björn auk þess í hlutastarfi að sérverkefnum fyrir Flugmálastjórn uns hinn illvígi sjúk- dómur hans kom í veg fyrir frekari störf. Öll sín störf hjá Flugmálastjórn vann Björn af þeirri kostgæfni sem einkenndi hann alla tíð. Samvisku- semi, heiðarleiki og sterk réttlætis- kennd voru hans aðalsmerki. Enginn, hvorki fyrr né síðar, dró í efa rétt- mæti ákvarðana hans og úrskurða er lutu að lofthæfi loftfara og flugvirkj- un almennt. Á því sviði stóð honum enginn framar. Við Björn vorum nánir vinir í nær því 40 ár og störfuðum saman hjá loft- ferðaeftirliti Flugmálastjórnar í 21 ár, þar til ég hvarf á braut til starfa erlendis í ársbyrjun 1995. Vinaböndin héldust þrátt fyrir að leiðir skildi í starfi og það var mér og konu minni því mikil gleði þegar Björn og Sig- þrúður komu í heimsókn til okkar í Namibíu árið 1998. Við ferðuðumst saman um þvera og endilanga Namibíu, í Etosha þjóð- garðinn með sínum ljónum, zebra- hestum og gíröffum, um krókódíla- slóðir meðfram landamærum Angóla, til Viktoríufossa í Zimbabwe og á fíla- og flóðhestaslóðum í Botswana. Slík ferð gleymist ekki frekar en minning- in um góðan dreng sem við kveðjum í dag. Blessuð sé minning hans. Kæra Sissú, við Lóla vottum þér og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúð. Grétar H. Óskarsson, fv. fram- kvæmdastjóri loftferðaeftirlits Flugmálastjórnar. Mér varð mikið um þegar Björn hringdi og sagðist vilja kveðja mig þar sem stutt væri eftir. Í samtalinu rifjuðum við upp tíma okkar saman sem vinnufélagar og vinir. En sem betur fer náðum við að hittast og kveðjast áður en yfir lauk. Björn var deildarstjóri lofthæfi- og skrásetningardeildar þegar ég byrj- aði hjá Flugmálastjórn árið 1997. Reyndist hann mér ákaflega vel sem yfirmaður og lærimeistari og með ár- unum myndaðist sterk vinátta. Þegar hann lét af störfum vegna aldurs leið aldrei sú vika að við töl- uðum ekki saman í síma um daginn og veginn. Björn var góður sögumaður og sagði mér ótal sögur tengdar sér og fluginu. Hann var ákaflega stoltur af fjölskyldu sinni og sendi mér myndir þegar ný barnabörn bættust í hópinn. Hann gaf mér góð ráð, mörg sneru að sparnaði, fyrri reynsla hafði kennt honum ráðdeild. Sumu hló ég að og þá sagði hann alltaf „oh, þið þetta unga fólk“. Nú er komið að leiðarlokum í bili. Ég kveð hann með söknuði. Fjölskyldu Bjössa votta ég mína dýpstu samúð. Ástrós Friðbjarnardóttir. Þegar ég fékk þær fréttir að Bjössi væri dáinn hefði það ekki átt að koma mér neitt á óvart. Það var samt áfall að heyra það. Þessi vinnufélagi og lærimeistari sem hafði kennt mér svo margt, vinur sem ég hafði oft leitað til, er nú farinn. Bjössi háði hetjulega baráttu við illvíga sjúkdóma og vann ótrúlega sigra en nú er þeirri baráttu lokið. Ég kynntist Birni Björnssyni þeg- ar ég hóf störf hjá Flugmálastjórn ár- ið 1989 í lofthæfideildinni sem hann stjórnaði. Ég hafði ekki mikla reynslu í faginu þá og ekki hafði ég komið ná- lægt eftirlitsstörfum. Ég fann fljót- lega eftir að ég byrjaði að vinna með Birni að þarna var ekki neinn venju- legur flugvirki á ferð. Hann var haf- sjór af fróðleik og hafði yfirburða- þekkingu á öllum málum sem tengdust flugöryggi og reyndar langt út fyrir það. Hann var afburða greindur, hafði sterka rökhugsun og var oft búinn að sjá hliðar á flóknum málum löngu áður en þær urðu okkur hinum sýnilegar. Fljótur að tileinka sér nýjungar og spekúleraði í mörgu. Á þessum árum vorum við bara tveir í lofthæfideildinni og sáum auk þess um viðhald og viðhaldsstjórnun flug- véla Flugmálastjórnar. Mikil þróun varð síðan í flugöryggismálum og starfsemi deildarinnar tók breyting- um eftir því. Ísland var stofnaðili að Flugöryggissamtökum Evrópu, JAA, 1990 og tók Björn þátt í mótun krafna um viðhald loftfara í Evrópu. Hann naut mikillar virðingar meðal þeirra fulltrúa sem komu að þessu starfi og átti þátt í því að skapa þá góðu ímynd sem Ísland hefur í flugöryggismálum meðal Evrópuþjóða í dag. Þótt Bjössi væri oft háalvarlegur var alltaf stutt í húmorinn hjá honum, hann kunni vel að segja sögur og af þeim átti hann nóg. Það var oft hlegið mikið þegar hann og Skúli Jón eða ef Gaui kom í heimsókn og þeir komust í sögugírinn saman. Hann gat verið stríðinn en samt ótrúlega hlýr per- sónuleiki og mikill sjarmör. Þegar ég hugsa til baka kemur svo ótalmargt upp í hugann; þegar við vorum að vinna í Kónginum úti í skýli, oft um helgar, vorum að lesa saman yfir handbækur viðhaldsfyrirtækja eða bara að spá í brauðuppskriftir. Bjössi var svo samviskusamur að hann átti oft erfitt með að skilja vandamálin eftir í vinnunni. Stundum hringdi hann í mig heim um helgi og þurfti þá að ræða mál sem við höfðum verið að vinna með. Þá var hann búinn að vera að funda með sjálfum sér eins og hann kallaði það. Ég lít á það sem forréttindi að hafa fengið að kynnast Bjössa, að hafa unnið með honum og ekki síst að hafa fengið að læra af honum. Betri skóla hefði ég ekki getað fengið. Ég kveð Bjössa með söknuði og bið Guð að styrkja Sissú og börnin í sorg þeirra og missi. Sigurjón. Þegar stóra systir mín kynnti kær- asta sinn Björn Björnsson fyrir fjöl- skyldunni skildi ég vel að hún væri hrifin af honum. Hann var myndar- legur, mikill heimsmaður með litrík- an æviferil. Hann hafði áhuga og skoðanir á flestu milli himins og jarð- ar. Hann var duglegur að kynna sér mál ofan í kjölinn og skorti aldrei fjöl- breytt umræðuefni. Björn ólst upp í Þýskalandi á stríðsárunum. Hann gekk í barnaskóla í Hamborg, Kaup- mannahöfn og Sauðárkróki. Flug- virkjanám stundaði hann í Englandi og gekk stundum undir nafninu enski Björn meðal flugvirkja vegna þess að hann var eini íslenski flugvirkinn sem ekki var menntaður í Bandaríkjun- um. Sérgrein hans var rafkerfi flug- véla. Eftir að hann skildi við fyrri konu sína dvaldi hann í fjögur ár í Bandaríkjunum þar sem hann gætti hagsmuna Loftleiða hjá viðhaldsfyr- irtæki þeirra. Fyrstu árin eftir að systir mín og hann giftust vann hann hjá fyrirtækinu Blossa við bílaraf- magnsviðgerðir. Árið 1974 réð hann sig til Flugmálastjórnar og starfaði hjá Loftferðaeftirlitinu út sína starfs- ævi. Björn upplifði og sá margar hlið- ar mannlífsins. Það sem mér fannst gera Björn svo ákjósanlegan félaga var af hversu miklum áhuga og starfsgleði hann nálgaðist hvert verkefni, smátt sem stórt. Nákvæmur og fastur á sínum skoðunum en líka léttur í lund, ráð- þæginn og sveigjanlegur. Hann setti fjölskyldu sína og vini í forgang, var líflegur í vinahópi en kærði sig ekki um að láta bera á sér í mannfjölda. Þegar við hjónin heimsóttum hann á sjúkrahús þar sem hann lá og vissi að aðeins fáir daga væru eftir af hans lífi tók hann okkur óbugaður og sýndi sem fyrr óbilandi áhuga á lífinu og til- verunni. Fyrr en varði var þetta orðin þægileg stund umræðna um heima og geima. Hann komst hjá því eins vel og mögulegt var að leggja sinn kross á sína nánustu. Þann fyrirvara sem hann fékk í sínu veikindastríði nýtti hann til þess að búa eins vel og hann gat um hnútana fyrir framtíð konu sinnar. Raunsæið brást honum aldrei. Hann kvaddi með þeim orðum að hann hefði notið þess tíma sem lífið gaf honum og sætti sig við málalok. Snorri Zóphóníasson og fjöl- skylda. Kveðja frá Flugstoðum Björn Björnsson var hæfileikarík- ur og fær fagmaður á sviði flugtækni, sem lagði ríkulegan skerf til flugör- yggismála á Íslandi á þeim þremur áratugum, sem hann starfaði hjá loft- ferðaeftirliti og síðar flugöryggissviði Flugmálastjórnar. Það voru forrétt- indi að eiga hann að sem ráðgjafa um hvaðeina sem varðaði flugöryggis- mál, því þekking hans og reynsla á því sviði var einstök. Hann kunni skil á nánast öllum atvikum, sem komið höfðu upp í íslenskri flugsögu enda var minnið óbrigðult. En fyrst og fremst var Björn góður drengur, sem ánægja var að starfa með á sviði flugsins og ræða við um landsins gagn og nauðsynjar. Hann var um margt óvenjulegur maður enda mót- aður af lífsreynslu sem hann öðlaðist á uppvaxtarárum sínum í Hamborg og síðar Danmörku í síðari heims- styrjöldinni. Honum voru atburðir veraldarsögunnar á þeim árum mikið umræðu- og áhugaefni, ekki síst hin dramatísku örlög Þýskalands og þýsku þjóðarinnar. Viðtal við Björn í Ríkisútvarpinu fyrr á þessu ári um upplifun hans á þessu tímabili var af- ar áhugavert og fræðandi. Unun var að hlusta á Björn og Úlfar Þórðarson, trúnaðarlækni Flugmálastjórnar, ræða atburði þessa tíma, en sá síð- arnefndi þekkti vel til mála í Þýska- landi á þessum árum. Voru þá jafnan höfð uppi gamanmál, því báðir höfðu þeir yndi af skondnum sögum og höfðu gaman af því að leita uppi fágæt þýsk orð og orðtök til að skemmta sér og öðrum yfir. Björn Björnsson var maður sem hafði mikinn áhuga á öllu því sem hann tók sér fyrir hendur og lagði sig allan fram við að leysa flókin verkefni. Hann hafði þessa fínu blöndu af skarpskyggni, rökhugsun, kímni og kaldhæðni, sem gerir menn að áhuga- verðum félögum í starfi og leik. Við fyrrverandi samstarfsmenn hans hjá Flugstoðum þökkum honum góða og eftirminnilega samfylgd og vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Þorgeir Pálsson. Elsku amma Malla. Nú ertu farin og við söknum þín, við mun- um allar góðu stund- irnar sem við áttum saman á Holtsgötunni og svo í sveitinni á Heiðarbrún, og höfum við verið að rifja þær upp síðustu daga. Við hlæjum og grát- um. Þetta eru góðar minningar og geymum við þær í hjörtum okkar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Málhildur Sigurbjörnsdóttir ✝ Málhildur Sig-urbjörnsdóttir fæddist í Reykjavík 24. júlí 1935. Hún lést 29. nóvember síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Foss- vogskirkju 9. desem- ber. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Saknaðarkveðjur. Þín Svavar Örn, Gylfi Snær, Reynir Viðar, Birna Björg og Karl Cesar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.