Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 55
Auðlesið efni 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008
Hér má sjá þegar bræðurnir
Stekkja-staur og Gilja-gaur,
voru við Sólheima-jökul að
prófa kyndlana sem þeir
notuðu til að vekja á sér
athygli þegar þeir færðu sig
nær manna-byggðum.
Að ýmsu er að huga hjá
sveinunum í að-draganda
jólanna og var ekki annað á
þeim að heyra en þeir væru
enn spenntari en venju-lega
fyrir jóla-hátíðina sem nú fer
senn í hönd.
Í Þjóð-minja-safninu er
mikil stemning þessa dagana
enda kíkir jóla-sveinn í
heim-sókn á hverjum degi til
jóla. Þá eru jóla-sveinarnir
einnig mikið á ferðinni í
Dimmu-borgum í
Mývatns-sveit þar sem börnin
geta hitt þá.
Jólasveinar á leið til
byggða með blys í hendi
Morgunblaðið/RAX
ALÞINGI sam-þykkti síðast-liðinn
fimmtu-dag lög um hækkun gjalda á
áfengi, tóbaki, olíu og bílum auk
kílómetra-gjalds og vöru-gjalds af
ökutækjum og elds-neyti.
Fjár-mála-ráðherra segir að þessi
gjöld hafi rýrnað miðað við þróun
vísi-tölu neyslu-verðs og hækkunin sé
innan þeirra marka.
Sem dæmi má nefna að
rauð-víns-flaska sem kostaði 1.498
kr. mun kosta 1.536 kr. eftir hækkun.
Stór bjór-kippa sem kostaði 1.452 kr.
mun kosta 1.536 kr.
„Við erum ekki komin á
leiðar-enda, ég held að það sé fjarri
því. Þetta er eitt skref af mörgum.
Vonandi þurfum við ekki að taka fleiri
svona stór en þau geta verið af öðru
tagi,“ sagði Geir Haarde.
Gylfi Arn-björns-son, forseti ASÍ,
segir að svona hækkanir fari beint
inn í lánin okkar og efast um að
ríkis-sjóður hafi tekjur af þessu þegar
upp er staðið.
Gert er ráð fyrir sparnaði á ýmsum
sviðum en ríkis-stjórnin segir að hann
eigi að koma sem minnst niður á
velferðar-kerfinu, mennta-kerfinu,
heilbrigðis-kerfinu og lög-gæslu.
Skattar hækkaðir á
áfengi, olíu, bíla og fleira
Morgunblaðið/Þorkell
Skattahækkanir Spara þarf á ýmsum sviðum í ríkis-fjármálum.
Einar mestu óeirðir sem átt
hafa sér stað í Grikk-landi
geisuðu um helgina.
Þúsundir mót-mælenda létu
reiði sína í ljós vegna þess að
15 ára drengur lést eftir að
hann var skotinn af
lög-reglunni. Mót-mælendur
réðust á banka og verslanir í
Aþenu og í borginni
Þessa-lóníku og hafa valdið
miklum skemmdum.
Tveir lög-reglu-menn hafa
verið reknir og einn
lög-reglu-stjóri.
Innan-ríkis-ráðherra landsins
bauð fram af-sögn sína en
hún var af-þökkuð af
forsætis-ráðherranum.
Alls-herjar-verkföll voru í
Grikk-landi síðast-liðinn
miðviku-dag og víða köstuðu
mót-mælendur
bensín-sprengjum og grjóti að
lög-reglu-mönnum sem
reyndu að skerast í leikinn.
Átök í
Grikklandi
Eiður Smári Guðjohnsen,
leik-maður Barce-lona, og
Margrét Lára Viðarsdóttir hjá
Val voru út-nefnd
knatt-spyrnu-fólk ársins í
ár-legu leik-manna-vali
Knatt-spyrnu-sambands
Íslands. Þetta er í fimmta
sinn sem KSÍ stendur að
þessu vali og í fjórða sinn
sem þau Eiður Smári og
Margrét Lára verða fyrir
valinu.
Veigar Páll Gunnarsson,
leik-maður Stabæk í Noregi,
og Hólmfríður Magnúsdóttir
úr KR urðu í öðru sæti og í því
þriðja þau Grétar Rafn
Steinsson, Bolton, og Dóra
María Lárusdóttir, Val.
Margir aðilar koma að
valinu, meðal annars
fyrr-verandi lands-liðs-menn,
þjálfarar og forystu-menn í
knatt-spyrnu-hreyfingunni.
Í um-sögn á heima-síðu KSÍ
segir meðal annars um Eið
Smára að hann hafi verið í
eld-línunni með stór-liðinu
Barce-lona sem hafi í haust
borið höfuð og herðar yfir
önnur lið á Spáni. Í um-sögn
um Margréti Láru segir meðal
annars að hún hafi verið
lykil-maður í liði
Íslands-meistara Vals sem og
í íslenska
kvenna-lands-liðinu, sem
tryggði sér sæti í loka-keppni
EM 2009.
Knattspyrnufólk ársins
Margrét Lára
Viðarsdóttir.
Eiður Smári
Guðjohnsen.
Kristján
Jóhannsson
óperu-söngvari
segir í bígerð að
fjöl-skyldan flytji
til Íslands, eftir að
hafa búið á Ítalíu
um árabil.
Eigin-kona hans,
Sigurjóna
Sverrisdóttir,
hefur hug á að
hefja hér nám í
leik-stjórn næsta haust.
„Hún kemur örugg-lega heim
og ég fylgi senni-lega með ef
ég fæ eitthvað bita-stætt að
annast sjálfur,“ segir hann.
Kristján hefur gert samning
við Senu um að fyrir-tækið
sjái um út-gáfu á öllu hans
efni á Íslandi auk þess að sjá
um tón-leika-hald hans hér á
landi og önnur umboðs-mál. Í
samningnum felst meðal
annars að Sena gefur
út þrjá diska með
Kristjáni á næstu
þremur árum. Stefnt
er að því að
ferils-plata hans
komi út á næsta ári
og tvær nýjar plötur í
fram-haldi.
Stór-tón-leikar með
Kristjáni eru líka í
deiglunni á næsta
ári.
„Sena verður með alla
út-gáfu mína á Íslandi, bæði
nýja og endur-útgáfu,“ segir
Kristján sem er staddur á
Ítalíu um þessar mundir.
„Það koma jafnvel út tvær
plötur á næsta ári, ein
óperuplata sem ekki hefur
heyrst áður á Íslandi og síðan
verða þrjár létt-klassískar
plötur endur-unnar í eitt
líklega tvö-falt albúm.
Kristján á heimleið?
Kristján
Jóhannsson
Sjö voru hand-teknir eftir að
um þrjátíu manns ruddust inn
í Alþingis-húsið síðast-liðinn
miðviku-dag og vildu á
þing-palla. Hópurinn kallar
sig Aðgerð Aðgerð og
til-gangurinn var að stöðva
starf-semi þingsins en
mót-mælendurnir vilja
ríkis-stjórnina burt.
Atburðurinn á sér ekki
for-dæmi og búist er við hertri
öryggis-vörslu á Alþingi í
framhaldinu. Hópur fólks
fylgdi hinum hand-teknu á
lög-reglu-stöðina. Þar var
þeim boðið inn og svaraði
lögregla spurningum um
hand-tökurnar og við-brögðin í
þing-húsinu. Fólkinu var
sleppt úr haldi um kvöldið.
Óeirðir við
Alþingishúsið
Netfang: auefni@mbl.is