Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 24
Eftir Einar Má Guðmundsson Við brugðumst vel við og sýndum heimili okkar. Gesturinn hugsaði: Þið búið vel. Fátækrahverfin eru innra með yður. Þannig yrkir sænska skáldið Tóm- as Tranströmer (þýð. Njörður P. Njarðvík) og má segja að þarna birt- ist sannleikur ljóðsins, sá lífskjarni þess sem engin svið önnur ná yfir. Enginn veit hvað gerir ljóðið að handhafa þess sannleika sem ekki er hægt að orða með öðrum aðferðum. Ekki heimspekin, ekki guðfræðin, ekki rökvísin, því síður stjórnmálin geta sagt þann sannleika sem ljóðið virðist taka á hælinn. Þar koma til töfrar, töfrar tungumálsins. Töfrar þess byggjast á hugsuninni en ljóð verður til þegar hugsun og tilfinningar renna saman. „Það er fátt fréttnæmt í ljóðum. Engu að síður deyja margir á ömurlegan hátt vegna skorts á því sem þar er að finna,“ orti annað skáld, William Carlos Williams, sem líka var læknir og vissi nákvæmlega um hvað hann var að tala. Það segir því meira um nútímann en ljóðið hve fáir leita það uppi. Það nýtur ekki mikils fylgis í skoðanakönnunum og það hefur lengi gengið atvinnulaust í þjóðfélagi yfirborðsmennskunnar. En það segir ekki alla söguna, því ljóðið vaknar við furðulegustu aðstæður og nær máli. Ekkert ósvipað og mótmæli fólksins. Ljóðið er barátta gegn tómleikanum og leit að innihaldi í lífinu. Hið ný- liðna góðæri, tímabil frjálshyggj- unnar, var líf án ljóðlistar, innihalds- laus eltingarleikur við tómleikann. Þannig hljómar grafskrift þess. Svona gæti ég haldið áfram að prjóna, en hvað með fátækrahverfin? Búa þau innra með okkur? Hvernig mælum við slíkan viðskiptajöfnuð? Er mikil verðbólga í sársaukanum? Hver er kauphallarvísítala gleðinn- ar? Eða eigum við frekar að spyrja: Hvað varð um umhyggjuna í ríki- dæminu? Leiddi hagkerfi frjáls- hyggjunnar, sem nú er að líða undir lok, okkur burt frá samúð og sam- stöðu? Hvernig fór stóra kakan, sem æðsti postuli frjálshyggjunnar, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, talaði svo mikið um, í maga og hverj- um er ætlað að þrífa upp eftir þær meltingartruflanir sem hún hefur valdið? Annað fólk, af öðru þjóðerni, kom inn og vann störfin. Hvernig lit- um við á þetta fólk? Hvernig tókum við því? Sagði einhver: Þetta eru bara útlendingar. Við losum okkur við þá þegar vinnan er búin? Heyrð- um við aldrei þetta viðhorf? Hvernig hefur hælisleitendum verið tekið, okkar minnstu bræðrum? Hefur séra Pálma Matthíasson sagt lögreglu- og dómsyfirvöldum að vera góð við þá? Hvernig væri að biskupinn segði Út- lendingastofnun að fara út á Reykja- nes og faðma að sér nokkra flótta- menn? Ætlar forsetinn að bjóða þeim í mat á Bessastöðum einsog Mörthu Stewart og fjármálafurs- tunum? ... Í Heimsljósi eftir Halldór Laxness segir: „Vinur, sagði Annar Heldri- maður og faðmaði skáldið. Það er bú- ið að loka Bánkanum. Einglendíngar hafa lokað Bánkanum. Það var og, sagði skáldið. Og hvernig stendur á því að einglendíngar hafa lokað Bánkanum, sagði Annar Heldrimað- ur. Það er af því að það eru aungvir peníngar leingur í Bánkanum. Júel er búinn að tæma Bánkann. Júel er búinn að sólunda öllu því fé sem eing- lendingar lánuðu þessari ógæfusömu þjóð af hjartagæsku. Júel hefur sökt öllu fé einglendinga útí hafsauga. Þessvegna er búið að loka bank- anum.“ Ef umhyggjan var lítil í ríkidæm- inu, hvernig verður hún þá í fátækt- inni sem við okkur blasir? Nú þegar Júel er búinn að tæma bankana. Góð- ærið var ekkert hjá öllum. Við sáum ellilífeyrisþega hírast í kompum, úti- gangsfólk sem átti hvergi höfði að halla, heimilislaust fólk. Lág laun voru út í hött og meðallaun rétt dugðu til að borga skuldir og fram- fleyta fjölskyldum. Jafnvel þótt flatskjáir væru í lágmarki og engin hjólhýsi eða laxveiði. Það er alveg á hreinu að fólkið á lægstu launun var ekki eyða peningunum sem streymdu hingað af ICESAVEreikn- ingunum. Ég ætla ekki að lýsa yfir sakleysi mínu en ég hafði aldrei heyrt minnst á þessa ICESAVE reikninga fyrr en sett voru á mig hryðjuverkalög. En talandi um sam- stöðu: Til var fólk sem sagði að Bón- us væri besta kjarabótin og leit á Jó- hannes í Bónus sem Hróa Hött alþýðunnar. Einhverjir hvísluðu um vafasama viðskiptahætti en aðrir sögðu að það mætti bara leggja niður verkalýðsfélögin því Bónus sæi um þetta; og virðist sumum að sú hafi orðið raunin. Alla vega sitjum við uppi með máttlitla verkalýðshreyf- ingu, sem í stað verkalýðsbaráttu hefur litið á viðskiptalífið sem sinn vettvang og spilað með lífeyri fólks- ins, oft af fullkomnu ábyrgðarleysi. En ekki bara það: Við sitjum líka uppi með Bónus auðkýfingana og alla hina Júelana sem búnir eru að setja landið á hausinn en bíða eftir að hremma það á ný. Hvað ef einhver birti heilsíðuauglýsingu þar sem skorað er á fólk að versla ekki í Bón- us, bara með svipuðum hætti og eig- andi Bónus blandaði sér í síðustu kosningabaráttu? ... Viðskiptalífið virðist ætla að fara sínu fram og fólk spyr hvað tök hefur þetta lið á stjórnmálaflokkunum? Auðjöfrunum er alveg sama þó nær- veru þeirra sé ekki óskað. Þeir troða sér inn um dyrnar og láta greipar sópa. Síðan er skuldum þeirra velt yfir á okkur, börn okkar og barna- börn. Talað er um þúsund milljarða frá Baugsveldinu og síðan eru það ICESAVEreikningar Landsbank- ans. Þeir tala um eignir á móti. Hverjar eru þessar eignir? Aftur kemur Halldór Laxness til skjalanna en nú er það þessi lýsing úr Vefaranum mikla frá Kasmír: „Í lok illæranna má altaf gánga að því vísu að ísmeygilegur longintes með gull í munni læðist innum bakdyrnar í baunkunum. Það er Örnólfur El- liðason. Hann fer utanað því með ákaflega hæverskum orðum hvort ekki muni vera hyggilegra að bánk- arnir tæmi fjárhirslur sínar handa fyrirtækjum hans en ríkið verði gjaldþrota. Hann stíngur uppá því með djúpri virðíngu fyrir almenníngi hvort ekki geti komið til mála að sér mætti leyfast að fara oní vasa hvers mannsbarns á landinu og hnupla þriðjúngnum af gildi hverrar krónu, svo Ylfíngur geti haldið áfram að braska.“ Eigum við að líkja ICESAVE- reikningunum við ritstuld? Segjum ef íslenskur rithöfundur hnuplaði verki ensks rithöfundar eða hol- lensks. Bókin væri það vinsæl að ís- lenska rithöfundinum græddist stórfé, að vísu ekki á mælikvarða ís- lenska þotuliðsins, en bara svona venjulegan mælikvarða. Þegar upp kæmist hæfust málaferli og þá yrði höfundurinn að sæta ábyrgð ekki þjóð hans. Þetta á að gilda um ICE- SAVEreikningana. Ábyrgðin á að vera hjá Landsbankanum og þeim Kapítalismi undir Einar Már Guðmundsson MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 Fjölskylduhjálp Íslands Jólasöfnun Fjölskylduhjálpar Íslands er hafin Þúsundir fjölskyldna eiga um sárt að binda fyrir jólin. Þeir sem eru aflögufærir fyrir þessi jól geta lagt inn á reikning Fjölskylduhjálpar Íslands 101-26-66090 kt. 660903-2590 Tökum á móti matvælum og fatnaði alla miðvikudaga að Eskihlíð 2-4 frá kl. 12.00 til 18.00. Símar 551 3360 og 892 9603 LAURA ASHLEY Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646 Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga frá 11-18 40% afsláttur af Jólavöru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.