Morgunblaðið - 14.12.2008, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 14.12.2008, Qupperneq 18
18 Tengsl MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 Anna Sigríður „Gunnar er annar sonur minn, fæddur ’71. Hann var ákaflega ljúfur og glaðlegur frá upphafi, en þó sýndi hann snemma að hann gat verið harður af sér. Þegar hann var barn, fékk hann eyrnabólgur hvað eftir annað, hann kvartaði þó ekki né grét, ekki fyrr en vall út úr eyranu á honum og hljóðhimnan sprakk. Allt frá barns- aldri hefur hann verið uppá- tektarsamur prakkari og hann hef- ur alltaf haft gaman af að stríða og grínast. Þegar hann var smástrák- ur stalst hann fram úr rúminu á hverju kvöldi. Það gerði eldri bróð- ir hans hinsvegar aldrei heldur lá hann í sínu rúmi og tilkynnti: „Gunnar er kominn framúr rúm- inu“. Gunnar fór að dyragættinni og beið þar, ef enginn kom til að stoppa hann, fór hann fram í stofu og slökkti á sjónvarpinu. Svo hljóp hann beint upp í rúm aftur! Þetta dundaði hann við þegar hann var rétt nýfarinn að ganga. Hann hefur aldrei verið mjög háður okkur for- eldrum sínum, hann varð snemma vinmargur og eignaðist ungur vini fyrir lífstíð.“ Dýpri skapgerð á sviðinu „Hann var varla kominn af barnsaldri þegar hann ákvað að verða leikari. Ég man að hann og vinir hans lögðu á minnið heilu kaflana úr áramótaskaupinu, sjón- varpsþáttum og kvikmyndum og höfðu það eftir í tíma og ótíma. Hann var ungur þegar hann kom fram í óperunni La Bohème í Þjóð- leikhúsinu ásamt eldri bróður sín- um. Honum fannst leikhúsheimurinn strax mjög heillandi. Kannski var það þessi reynsla sem kveikti í hon- um eða að minnsta kosti ýtti undir leikaradrauminn. Ég kynntist hon- um allt öðruvísi eftir að hann fór að leika, þá sýndi hann meiri dýpt í skapgerð og tilfinningum en ég átti að venjast. Hann varð svo snemma jákvæður og glaður en á sviðinu hef ég séð hann bæði særðan og reiðan. Hann er mjög hug- myndaríkur einsog sjá má á sjón- varpsþáttunum Sigtinu sem hann samdi ásamt yngri bróður sínum og vinum. Ég hef persónulega mjög gaman af þeim þáttum.“ Leitaði gleðinnar í golfi „Hann byrjaði ungur að stunda golf, var bara 9 ára gamall þegar hann fór að fara með ömmu sinni á golfvöllinn. Ellefu ára fór hann holu í höggi og svo aftur, þegar hann var skiptinemi í Bandaríkjunum. Hann lætur hluti oft yfir sig ganga, einsog fram hefur komið, þá á ég við að hann sætti sig stundum við of margt. Þegar hann var skiptinemi í Bandaríkjunum lenti hann hjá miður góðu fólki. Hann hefði getað skipt en vildi það ekki. Pabbi hans heimsótti hann og leizt ekki á. En Gunnar tók þá ákvörðun að þreyja, hann hafði eignaðist sína vini í golfliði skólans sem hann var í og var ánægður þar. En hann varð aldrei hluti af fjölskyldunni sem hann bjó hjá. Þegar hann fór að heiman, var hann bara svona mátulega snyrtilegur í umgengni einsog gerist með unglinga, en þarna fyrir vestan ákvað hann að hafa herbergið sitt alltaf fínt og strokið til að vinna upp á móti draslinu á heimilinu þar sem hann var og þar átti hann sitt athvarf. Hann hefur aldrei haft samband við þessa fjölskyldu í Bandaríkjunum síðan. Mér hefur ekki alltaf fundizt gott hvað hann lætur yfir sig ganga, en sannarlega sýnir hann það oft að hann hefur bein í nefinu. Hann gengur ákveðinn fram í því sem hann vill sjálfur og þótt hann sé umburðarlyndur með afbrigðum, þá lætur hann alls ekki ganga alveg yfir sig. Hann getur líka sett fólki mörk, en þegar hann gerir það brosir hann blíðlega og segir: Hing- að og ekki lengra, þetta gengur ekki. Þá þýðir heldur ekkert að ætla að ganga lengra með hann. Ef hann tekur stefnuna á eitthvað fer hann þangað hægt og rólega. Hann hefur alltaf verið bjartsýnismaður, miklu bjartsýnni en ég. Þegar mér finnst hann of bjartsýnn og fer að vara hann við þá horfir hann bara blíðlega á mig og segir: „Mamma mín veiztu, það hefur alltaf borgað sig fyrir mig að vera bjartsýnn og ég fer ekki að breyta til núna.““ Ótrúlega utan við sig „Þegar ég varð sextug fórum við öll fjölskyldan til Ítalíu og þar kom í ljós þessi gríðarlegi áhugi hans á vespum. Þegar við hin fórum heim, urðu þau hjón eftir og heimsóttu verksmiðjuna sem framleiðir vesp- ur. Þar sannfærði Gunnar framleið- endurna um að það yrði að flytja vespur til Íslands og að bezt færi á því að hann gerði það sjálfur. Ég veit að það er ekki allt komið í ljós sem býr í Gunnari. Hann býr yfir svo margháttuðum hæfileikum einsog reyndar bræður hans líka. Það kæmi mér ekki á óvart þó að þeir ættu eftir að hasla sér völl á nýjum sviðum. Gunnar getur stundum verið ótrúlega utan við sig. Þegar ég tala við hann í síma verð ég alltaf að spyrja hann hvort hann sé við tölv- una eða að horfa á sjónvarpið, því ef svo er, þá er hann bara með hálfan hugann við samtalið og stundum dettur hann alveg út úr því. Hann er kallaður prófessor Drövel í fjölskyldunni vegna þess hve utan við sig hann getur verið. En svo er hann ótrúlega einbeittur þegar hann vill það við hafa.“ Hann er alltaf til staðar „Þeir bræður gera endalaust grín að mér fyrir það hversu auðtrúa ég er og skemmta sér yfir því hve illa mér gengur að muna nöfn og hvað ég fer vitlaust með nöfn á erlend- um leikurum og bíómyndum. Þegar þeir segja mér skröksögur getur fokið í mig rétt þegar ég fatta það að þeir voru að grínast, en svo er það oftast ég sem hlæ manna mest. Þegar Gunnari líður illa er hann hljóðlátur og alvarlegur. En ég man ekki til þess að hafa séð hann reiðast illa nema þá leikandi á leik- sviði. Það er auðvelt að láta sér þykja vænt um Gunnar, hann er svo góð- ur drengur. Svo er hann líka ótrú- lega góður pabbi. Hann á þrjú börn og sýnir bæði kærleik og ábyrgð gagnvart þeim. Ég fer stundum til hans að spjalla og þá tölum við saman tímunum saman um allt milli himins og jarðar. Hann er góður sonur, kemur alltaf vel fram við okkur foreldra sína og er alltaf til staðar fyrir okkur. Við eigum af- skaplega kærleiksríkt samband.“ Uppátektarsamur prakkari Morgunblaðið/Golli Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is Mæðginin Anna Sigríður Pálsdóttir dómkirkjuprestur og Gunnar Hansson leikari rækta með sér falleg og náin tengsl. Hann flytur inn vespur og ýtir stöðugt við móður sinni, hversu vel hún tæki sig út á einni slíkri; sérstaklega í hempunni. En þótt hún vilji allt fyrir drenginn sinn gera, þá hefur hann ekki unnið prestinn í þessu máli. Hún fæddist 16. júlí 1947, dóttir Sigrúnar Ástrósar Eiríksdóttur, verzlunarmanns, og Páls Ísólfssonar, tónskálds og dómorganista. Hún lauk kennaraprófi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1968, embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands í október 1996 og námi í handleiðslu og hand- leiðslutækni frá Endurmenntun Háskóla Íslands 2000. Hún var myndmenntakennari við Barnaskóla Garða- bæjar 1969-1971; einnig við Hvassaleitisskóla frá 1970-1973. Búsett í London árið 1973-1975. Kennari við Æfingadeild Kennaraháskólans frá 1975-1985. Hóf störf hjá fjölskyldudeild SÁÁ í janúar 1985 og starfaði við meðferðarheimilið að Fitjum á Kjal- arnesi og hefur líka flutt fyrirlestra og haldið nám- skeið erlendis um alkóhólisma og fjölskyldutengsl. Prestur Grafarvogsafnaðar 1997 til þess að hún var valin prestur í Dómkirkjunni, þar sem hún hóf störf í byrjun október 2007. Hún er móðir Árna Páls (kvikmyndagerðarmanns), Gunnars (leikara) og Ragnars (grafísks hönnuðar) Hanssona. ANNA SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.