Morgunblaðið - 14.12.2008, Side 22
22 Samfélagsmál
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
P
aul Hawken er staddur
hér á landi ásamt öðrum
þekktum umhverf-
isverndarsinna, John
Picard. Hawken þykir
vera einn atkvæðamesti fræða- og
athafnamaður á sviði sjálfbærrar
þróunar, tengslamyndunar og
sprotavaxtar. Hawken er eftirsóttur
ráðgjafi út um allan heim og hefur
hjálpað stöndugum fyrirtækjum og
opinberum stofnunum að umbreyta
afstöðu sinni og ímynd. Hann hefur
ýmsar hugmyndir um framtíð Ís-
lands, lands sem hann segir standa á
tímamótum í bankakreppunni.
„Sú staðreynd að stór hluti efna-
hags Íslands byggðist á einni at-
vinnugrein gerði landið sérstaklega
viðkvæmt fyrir kreppunni og banka-
starfsemin var heldur ekki stöndug.
Það má segja að Íslendingar hafi
verið með of mörg egg í einni og
sömu körfunni og eggin voru heldur
ekki góð. Vöxtur íslensku bankanna
var áhættusamur og byggðist á sí-
felldri útlánaaukningu,“ segir hann.
„Þetta er líka viðvörun til Íslands
hvað varðar álframleiðslu. Hug-
myndin um að opna landið fyrir
tveimur álverksmiðjum í viðbót
stendur fyrir sömu hugsuninni og
áður, of mörg egg í sömu körfu,“ út-
skýrir Hawken, sem spyr hvort Ís-
lendingar vilji horfa fram á veg eða
til baka.
Álið áhættufjárfesting
„Fólkið sem segir Ísland þurfa að
hugsa um umhverfið en þurfa líka að
fá störf núna í áliðnaði er að horfa til
lausna fortíðarinnar. Ég held því
fram að umhverfið sé hin hagnýta
framtíðarfjárfesting en álið sé
áhættufjárfesting. Í heiminum fjölg-
ar sífellt fólki sem deilir minni gæð-
um. Fiskur, vatn, jarðvegur, matur
og orka fer sífellt minnkandi á ein-
stakling. Ennfremur eru líka stöðugt
færri óspilltir staðir. Íslenskur áliðn-
aður felur það í sér að nota græna
orku, sem er sjaldgæf orka í heim-
inum, og nota hana til að niðurgreiða
starfsemi stórra alþjóðafyrirtækja
næstu 30-40 árin. Af hverju í ósköp-
unum ætti Ísland að vilja selja þessa
orku í langtímasamningi þegar eft-
irspurnin eftir grænni orku og því
sem hún getur skapað á aðeins eftir
að aukast? Af hverju ætti Ísland að
leggja framtíð sína undir það að búa
til bjórdósir? Þetta er ekki fjárfest-
ing sem að mínu áliti á eftir að skapa
öryggi fyrir Íslendinga,“ segir Haw-
ken og ítrekar að Íslendingar ættu
að nota orkuna í eitthvað annað.
Landið verður verðmætara
„Ísland á tvær auðlindir, landið og
fólkið sjálft. Landið á aðeins eftir að
verða verðmætara vegna sérstöðu
þess og hreinleika,“ segir hann og
heldur áfram: „Ísland er góð upp-
spretta vitneskju, nýsköpunar, hug-
myndaauðgi, athafnamennsku og
menntunar og þetta á heldur að nið-
urgreiða.“
Hann segir áskoranirnar sem Ís-
land mætir vera í takt við þær sem
aðrar eyþjóðir þurfi að takast á við.
„Eylönd þurfa að vera útsjónarsam-
ari en meginlandsþjóðir. Þau þurfa
að hugsa um útflutningsiðnað og
þekkingu. Íslensk fyrirtæki geta til
dæmis flutt út þekkingu í sambandi
við jarðhita. Þau eru meðal þeirra
bestu í heiminum vegna þess að þau
byrjuðu snemma.“
Hann segir eyþjóðir vera meðvit-
aðri um inn- og útflutning. „Eylöndin
geta náð lengra fyrr vegna þess að
þau eru meðvituð um að þau þurfa að
flytja inn bensín og matvöru. Þjóð-
irnar hafa hvata til þess að verða
sjálfum sér nægari. Á meginlandi
Evrópu eða í Bandaríkjunum, Kan-
ada og Mexíkó eru hlutir fluttir fram
og til baka án þess að fólki spái í það.
Þú getur alltaf komið ruslinu þínu
fyrir einhvers staðar.“
Hawken segir framtíðina vera í
grænni tækni (cleantech) og segir
hana vera ört vaxandi svið í fjárfest-
ingum. Áhættufé hefur leitað í slíka
sjóði undanfarin ár og hafa þeir
margir gefið góða ávöxtun. „Það er
sprenging í sambandi við tækni sem
er frumleg og sniðug, sparar orku og
efni og er minna mengandi. Það er
leið framtíðarinnar. Mér þykir það
leitt að það skuli ekki vera álið. Græn
tækni snýst um að endurskipuleggja
iðnaðarstarfsemi í heild sinni. Ísland
þarf að ákveða núna hvort það vill
færast nær þessari framtíð eða fjár-
festa í því sem skapar hugsanlega
skammtímaöryggi.“
Græn tækni er framtíðin
Umhverfisverndarsinninn, frumkvöðullinn og
rithöfundurinn Paul Hawken er staddur hér á
landi í boði Bjarkar Guðmundsdóttur og vefs-
ins Nattura.info. Hann hefur ýmsar hug-
myndir um framtíð Íslands og varar Íslend-
inga við að veðja aðeins á einn álhest.
‘‘UMHVERFIÐ Á EFTIR AÐSKAPA MARGFALTFLEIRI STÖRF EN ÖLLNÁMUFYRIRTÆKI Í
HEIMINUM Á NÆSTU
FIMM TIL TÍU ÁRUM
SJÁLFBÆR þróun er venjulega
skilgreind sem þróun sem gerir
okkur kleift að mæta þörfum okk-
ar, án þess að stefna í voða mögu-
leikum komandi kynslóða á að
mæta þörfum sínum.
Skilgreiningin hér að framan er
ættuð úr svonefndri Brundtland-
skýrslu, sem birt var árið 1987 í
bókinni Sameiginleg framtíð vor.
Skýrslan var afrakstur alþjóð-
legrar nefndar sem Gro Harlem
Brundtland, þáverandi forsætis-
ráðherra Noregs, veitti forstöðu
en hlutverk nefndarinnar var fara
yfir stöðu umhverfismála í heim-
inum og gera tillögur um aðgerðir
til að sporna gegn ofnýtingu og
hnignun náttúruauðlinda.
Hugmyndin um sjálfbæra þróun
felur ekki í sér kröfu um skilyrð-
islausa vernd náttúrunnar heldur
snýst málið einfaldlega um velferð
komandi kynslóða. Til langs tíma
hlýtur velferð að byggjast á sam-
spili og jafnvægi náttúrulegra,
efnahagslegra og félagslegra
þátta.
Nánari upplýsingar og frekari
fróðleik er að finna á environice.is.
Sjálfbærni fyrir komandi kynslóðir
Skeifan, Smáralind, Kringlan, Hafnarfjörður, Selfoss, Vestmannaeyjar, Egilsstaðir, Akureyri, Ísafjörður
Aðeins
2.740kr. áður 5.480 kr.
Aðeins
1.495kr. áður 2.990 kr.
Aðeins
1.745kr. áður 3.490 kr.
Aðeins
2.240kr. áður 4.480 kr.
Aðeins
2.495kr. áður 4.990 kr.
Aðeins
1.995kr. áður 3.990 kr.
sparaðu
50%
sparaðu
50%
sparaðu
50%
sparaðu
50%
sparaðu
50%
sparaðu
50%
Tilboðin gilda frá 11.12.08 til 16.12.08. Til þess að koma í veg fyrir að samkeppnisaðilar nýti sér tilboðin til innkaupa fyrir eigin verslanir má
hver og einn viðskiptavinur aðeins versla þrjár bækur af einstaka titli.
Sag
a
Bal
durs
Brjá
nsso
nar
Töf
ram
ann
s