Morgunblaðið - 14.12.2008, Síða 26

Morgunblaðið - 14.12.2008, Síða 26
26 Bækur MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 M b l1 06 41 95 Síðumúla 3 · Reykjavík · 553 7355 Opið 11-18 virka daga, 11-17 lau. og 13-17 sun. Gjafabréf Gjöfin hennar Frábært úrval af undirfatnaði: Lepel, Lejaby, Charnos, Elixir, Panache, Masqurade, DM, Pastunette. Aðhaldsundirföt: Miraclesuit, NN- Bodyslimmer. Vinsælu Modal náttfötin - margir litir Glæsilegt úrval af sloppum, velúr, flís, satín Glæsilegur silki- og satínnáttfatnaður Frábært úrval Opið alla daga til jóla Opið í dag, sunnudag, kl. 13-17 Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is H eildarsafn sálma og ljóða Sigurbjörns Ein- arssonar biskups kom nýlega út hjá Skál- holtsútgáfunni. Sig- urbjörn, sem er eitt mesta sálma- skáld Íslendinga á síðari tímum, lést í ágústmánuði síðastliðnum. Árið 1996 kom út bókin Sálmar og ljóð Sigurbjörns biskups sem Frið- rikskapella gaf út og er löngu upp- seld. Á þeim árum sem liðin eru frá þeirri útgáfu höfðu margir sam- band við Sigurbjörn og óskuðu eft- ir að bókin yrði endurútgefin og í hana bætt ljóðum og sálmum eftir hann frá árunum 1996-2008. Sig- urbjörn hóf söfnun á því efni en þegar hann veiktist í júlí á þessu ári kom það í hlut tveggja sona hans, Einars og Karls, að ljúka söfnuninni ásamt Eddu Möller, framkvæmdastjóra Skálholtsútgáf- unnar. Hin nýja og aukna útgáfa á sálmum og ljóðum Sigurbjörns ber heitið Eigi stjörnum ofar og er upphaf eins sálma Sigurbjörns: Eigi stjörnum ofar á ég þig að finna, meðal bræðra minna mín þú leitar, Guð. Að sögn Einars Sigurbjörns- sonar er þessi sálmur einn þekkt- asti sálmur föður hans og hefur meðal annars verið hluti ferming- arfræðslu þjóðkirkjunnar frá 1975. Meistari tungumálsins Einar segir föður sinn alla tíð hafa haft mikinn áhuga á skáld- skap. „Hann var alinn upp við sög- ur og ljóð. Amma hans, sem ól hann upp, kunni mikið af kvæðum sem hún fór gjarnan með. Þar skip- uðu sálmar og vers mikinn sess, ekki síst sálmar Hallgríms sem pabbi lærði ungur og lifði með alla ævi. Hann var mjög vel að sér í verkum okkar helstu skálda og gat farið með kvæði þeirra. Hann las ætíð mikið af ljóðum og fylgdist mjög vel með ljóðskáldum, ekki síst þeim ungu. Hann vitnaði iðu- lega í ljóð, til dæmis í predikunum sínum. Sjálfur var hann mikill meistari tungumálsins og mjög ljóðrænn í framsetningu. Hann fékkst við ljóðagerð þegar hann var unglingur og einhver skáld- skapur er til eftir hann, meðal ann- ars í skólablaði Menntaskólans í Reykjavík, þar á meðal kerskn- isvísur. Elsta ljóð hans í bókinni nefnist „Að kvöldi“ og birtist fyrst í Tíma- ritinu Jörð árið 1934. Sjálfur sagði pabbi að hann hefði að mestu hætt að yrkja þar til hann tók sæti í nefnd sem vann að útgáfu sálma- bókarinnar sem kom út árið 1972 en í þeirri bók er fjöldi sálma eftir hann, bæði frumortir og þýddir. Mér skildist alltaf á pabba að Tóm- as Guðmundsson skáld, sem sat í nefndinni með honum, hefði hvatt hann til að yrkja. Eftir að hann lét af embætti orti hann marga sálma og ljóð, ekki síst að beiðni tón- skálda eða kórstjóra sem vantaði texta við tónverk eða lög og fengu hann ýmist til að yrkja eða þýða. Í viðbætur við sálmabókina sem út komu 1991 og 1997 bættust margir sálmar við eftir hann. Yngsta ljóð hans í bókinni er þýðing á sálmi sem ortur var 1523 og er talinn elstur lútherskra sálma. Það var kona sem orti hann, Elísabeth Cruciger, og var sálmurinn í fyrstu íslensku sálmabókinni 1555 og líka í Grallaranum. Sálmabókarnefnd þjóðkirkjunnar bað pabba að þýða hann að nýju í febrúar 2008. Og þannig er um marga sálma hans að þeir eru þýðingar á sígildum sálm- um sem margir höfðu verið þýddir á 16. öld en pabbi færði í nýjan búning.“ Söngræn ljóð Þegar Einar er spurður um ein- kenni á ljóðum föður síns segir hann: „Þau eru hefðbundin og þar er farið eftir íslenskum brag- reglum. Þeir eru blátt áfram og á einföldu máli eins og dr. Margrét Eggertsdóttir lýsir í inngangi sín- um að ljóðabókinni. Pabbi hafði líka mjög gott eyra fyrir tónlist og ljóð hans eru mjög söngræn og oft miðuð við tiltekin lög sem söng- stjórar eða tónlistarfólk hafði beðið hann að yrkja við eða hann orti við lag sem hann hafði sjálfur heyrt og hrifist af. Í predikunum sínum var hann alltaf mjög persónulegur og talaði beint til fólks. Í ljóðum sín- um og sálmum er hann jafn per- sónulegur og hrífur aðra með sér.“ Talaði beint til fólksins Morgunblaðið/Árni Sæberg Kveðskapur biskups „Mér skildist alltaf á pabba að Tómas Guðmundsson skáld hafi hvatt hann til að yrkja,“ segir Einar Sigurbjörnsson. Morgunblaðið/RAX Skáldið Sigurbjörn Einarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.