Morgunblaðið - 14.12.2008, Qupperneq 29
urnar þegar sokkurinn er farinn að
slitna og prjóna nýjan framleist.
Prjónamorð með
fingravettlingum
Sjálf lærði hún að hekla þegar
hún var um tíu ára gömul. Hún
heklaði slefsmekki á bróður sinn,
sem þá var nýfæddur. „Það fyrsta
sem ég man eftir að hafa prjónað
er jólasveinn. Þetta var hólkur og
ég gerði hann upp úr mér,“ rifjar
hún upp með bros á vör. Brosið
hverfur þó þegar hún minnist
handavinnu í 11 ára bekk. „Við vor-
um látin prjóna fingravettlinga!
Finnst þér það ekki andstyggilegt?
Þetta varð áreiðanlega til að drepa
niður framtíðarprjónaáhuga hjá
meirihlutanum af þeim sem í þessu
lentu,“ segir hún en það þarf varla
að taka það fram að það eru engar
uppskriftir að fingravettlingum í
bókinni.
Ragnheiður fór að prjóna meira
eftir að hún varð bakveik, þegar
hún bjó í Stokkhólmi og þurfti að
vera frá vinnu. „Halldóra hvatti
mig til að prjóna meira og taka
myndir af því sem ég prjónaði. Þá
byrjaði ég með prjónabloggið mitt
lesprjon.blogspot.com. Þetta var
mín eigin iðjuþjálfun.“
Hún segir að prjónið hafi gert
henni gott en sjálfstraustið fjari út
með því að vera frá vinnu lengi og
vera með verki. „Prjónið var alveg
rosalega góð þerapía og ég ráðlegg
öllum sem þurfa að ganga í gegnum
eitthvað svipað að gera þetta,“ seg-
ir hún og má sannarlega mæla með
prjóni í atvinnuleysinu, sem fer nú
vaxandi.
Ragnheiður og Halldóra fóru að
gæla við hugmyndina um útgáfu
bókarinnar fyrir tveimur og hálfu
ári. „Við vildum deila gleðinni og
frelsa fleiri sálir! Mesta áskorunin
fyrir mig var að skrifa niður upp-
skriftir, aðferðir og lýsingar. Hall-
dóra er betri í því enda vön kerf-
isbundnum vinnubrögðum í
líffræðinni. Fyrstu myndirnar tók-
um við síðan úti í Svíþjóð fyrir einu
og hálfu ári en það var ekki fyrr en
í lok október sem við ákváðum að
gefa bókina út núna.“
Til þess fengu þær m.a. til liðs
við sig Helgu Jónu Þórunn-
ardóttur, eiganda hannyrðaversl-
unarinnar Nálarinnar við Lauga-
veg en bókin fæst m.a. þar.
„Margar uppskriftirnar voru
prjónaðar úr garni sem fæst ekki á
Íslandi. Við fengum hana til að
mæla með garni sem gæti hentað í
staðinn því sumir vilja fá nákvæm-
ar upplýsingar um slíkt.“
Ragnheiður og Halldóra hvetja
þá sem prjóna flíkurnar í bókinni
eða fá góðar hugmyndir úr henni til
þess að mynda afraksturinn og
senda myndir og upplýsingar á
prjoniprjon@gmail.com. Þær ætla
í kjölfarið að birta myndir á blogg-
inu og segja frá. Allt gert til þess
að breiða út prjónaboðskapinn.
kis
‘‘VIÐ VILJUM HVETJAFÓLK TIL AÐ FÁ TILFINN-INGUNA FYRIR PRJÓNIOG FRELSA ÞAÐ ÚR
VIÐJUM UPPSKRIFT-
ANNA OG FÁ ÞAÐ TIL AÐ
PRJÓNA ÞAÐ SEM ÞAÐ
LANGAR Í. FÓLK NÁLG-
AST PRJÓN OFT AF
HRÆÐSLU OG LOTN-
INGU OG LEGGUR EKKI Í
AÐ BYRJA.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008
RAGNHEIÐUR hvetur áhuga-
sama til að mæta á prjónaviðburði
til að fá stuðning. Hún segir
Handprjónasambandið jafnan vera
með fjölsótt prjónakaffi einu sinni
í mánuði á Amokka í Kópavogi.
Sjálf stendur hún fyrir prjóna-
kaffi, sem er jafnan annan hvern
laugardag í Nálinni við Laugaveg
á milli 9.30 og 12. Vegna jóla og
áramóta verður næsta prjónakaffi
þó ekki fyrr en 10. janúar en þá
verður þemað hvað fór í eða kom
upp úr jólapökkunum. „Það er
gaman að sjá hvað hinir eru að
gera og maður fær margar hug-
myndir,“ segir Ragnheiður um
prjónakaffið.
Til viðbótar hefur verið haldið
prjónaglögg á Kaffi Hljómalind
við Laugaveg á miðvikudögum frá
kl. 19 nú í desember. Meðfylgjandi
myndir voru teknar á síðasta
prjónaglöggi. Ilmur Dögg Gísla-
dóttir er skipuleggjandi uppá-
komunnar en hún heldur enn-
fremur úti síðunni prjona.net.
Hún segir það skemmtilega iðju
að prjóna saman. „Bæði er gaman
að deila því með öðrum hvað er á
prjónunum og einnig er hægt að
fá góð ráð og hjálp ef maður er
strandaður í erfiðri uppskrift,“
segir hún en á prjónasamkomum
er sitthvað skrafað. „Líkt og
venjulega þegar farið er á kaffihús
er skrafað um allt milli himins og
jarðar. Af hverju að sitja einn
heima yfir prjónunum þegar hægt
er að hitta aðra og prjóna!“
Ilmur byrjaði að prjóna fyrir al-
vöru um 16 ára aldurinn og „voru
það þá aðallega peysur með las-
kaúrtöku og fékk ég iðulega að-
stoð móður minnar við herlegheit-
in. Síðast kláraði ég húfu úr
léttlopa“, svarar hún aðspurð.
Hún hvetur alla til að mæta á
Hljómalind og segir um að gera að
koma snemma en næsta prjónag-
lögg verður miðvikudaginn 17.
desember.
Morgunblaðið/Kristinn
Samvera Það var mikið skrafað á prjónaglögginu á Kaffi Hljómalind í vik-
unni en þar skiptast prjónakonur líka á góðum ráðum.
Prjónað saman
Morgunblaðið/Kristinn
Með á prjónunum Ilmur Dögg
Gísladóttir byrjaði að prjóna af
alvöru 16 ára gömul.
Garðaprjónssjal Upplagt fyrir byrjendur. Prjónað á grófa prjóna
sem gerir það opið létt og fljótunnið.
Hekluð blóm Þessi eru kjörin gjöf að sögn Ragnheiðar. Hægt er að búa til
nælu eða festa blómin á teygju.
Gjöfin