Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1971, Blaðsíða 11
Og ræður þá einfaldur meirihluti. Hlutkesti ræður, ef at-
kvæði eru jöfn. Aðalfundur getur sett stjórnina af í heild
með vantrauststillögu og þarf tiilagan 2/3 atkvæða fund-
armanna á aðalfundi. Endurskoðaðir reikningar félags-
ins og félagssjóða skulu lagðh' fram. Kosnir skulu 2
endurskoðendur og einn til vara. Ennfremur skal kosinn
bókavörður. Aðalfundur skal leggja samþykki sitt á
gjaldskrár, er samþykktar hafa verið á starfsárinu.
7. gr.
Aðalfundur ákveður liið árlega félagsgjald meðlim-
anna í félagssjóð. Nýir félagar greiða fullt gjald fyrir það
ár, er þeir ganga í félagið, ef upptaka fer fram fyrir 1.
janúar, en 1/2 gjald, ef þeir eru samþykktir síðar. Heim-
ilt er stjórninni að lækka félagsgjöld um allt að 2/3, ef
eftirfarandi aðstæður eru fyrir hendi:
1. Veikindi.
2. Félagi starfar ekki að tannlækningum.
3. Dvöl erlendis.
4. Sérstakai’ ástæður, sem stjórnin metur
hverju sinni.
Ef félagsmaður skuldar 1 árs tillag um áramót, skal
gjaldkeri gera honum aðvart um það í ábyrgðarbréfi.
Geri skuldunautur ekki skil innan þriggja mánaða, er
hann þar með genginn úr félaginu, og skal þá strikast
út af meðlimaskrá þess. Sá, er gengur úr félaginu, en
óskar upptöku aftur, getur því aðeins gerzt meðlimur á
ný, að hann greiði allar skuldir sinar við félagið.
8. gr.
Félagið samþykkir codex ethicus fyrir stéttina og er
hver félagsmaður skyldur til að fylgja ákvæðum hans.
9. gr.
Gerðardómur sker úr öllum deilum er rísa kunna meðal
9