Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1971, Blaðsíða 21
SKIPULAGNING OPINBERRAR
TANNLÆKNISÞJÓNU STU
Tillögur Tannlæknafélags íslands
Undanfarið hefur mikið verið rætt um væntanleg af-
skipti hins opinbera af tannlæknisþjónustu hérlendis.
Því miður hefur ekki verið leitað álits eða aðstoðar
Tannlæknafélags Islands við undirbúning hinna ýmsu
tillagna.
Tannlæknafélagið hefur eftir föngum kynnt sér þessi
mál með öflun upplýsinga um tilhögun og reynslu ann-
arra þjóða og komizt að raun um, að Norðmenn virðast
hafa einna skynsamlegasta fyrirkomulagið, enda liafa
þeir hlotið mikla reynslu á löngum tíma.
Leggja þeir aðaláherzluna á, að hið opinbera veiti sem
flestum á 3-18 ára aldri tannlæknisþjónustu, og að auki
íbúum þeirra héraða, sem einangruðust eru.
Við leyfum okkur því að leggja fram eftirfarandi til-
lögur til skipulagningar opinberrar tannlæknisþjónustu
hérlendis:
Hið opinbera stefni að því að veita reglubundna tann-
læknisþjónustu á eigin tannlæknastofum með fastráðnu
starfsliði, eftirtöldum aðilum:
1. Börnum og unglingum 2-16 ára á öllu landinu.
Skal sú þjónusta veitt endurgjaldslaust.
2. Ibúum dreifbýlisins, þar sem erfitt er að fá sjálf-
stætt starfandi tannlækna til starfa. Sú þjónusta
skal veitt gegn gjaldi.
Kostir kerfisins eru, að börnin fá reglulegt eftirlit með
tönnum sínum, á þeim aldri, sem tannskemmdir eru
tíðastar. Venjast þau strax á að finnast slíkt sjálfsagt.
Þegar hið opinbera sleppir af þeim hendinni, eiga þau
19