Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1971, Blaðsíða 53
ÁVARP
í tilefni útgáfu bráðabirgðadagskrár 36 :a móts
Skandinavíska tannlæknafélagsins, sem halda á í
Reykjavík í júnímánuði 1972.
Góðir félagar.
Skandinavíska tannlæknafélagið hyggst nú halda
næsta tannlæknamót félagsins í Reykjavík á komandi
sumri.
Stjórn félagsins hefur, allt frá því er síðasta mót fé-
lagsins fór fram í Stokkhólmi árið 1969, þar sem ákveð-
ið var, að Island yrði næsti mótsstaður, unnið markvisst
að öllum undirbúningi þessa tannlæknamóts, og notið
til þess óskoraðs stuðnings allra þeirra félaga Tann-
læknafélags Islands, er til hefur verið leitað.
Eru þannig ýmsar nefndir i fullu starfi og önnum
kafnar við að undirbúa og sinna hinum margvíslegustu
verkefnum, er varða undirbúning og framkvæmd móts
þessa, svo að allt megi sem bezt takast.
Til þess að tryggja fjárhagslega afkomu þessa tann-
læknamóts sem bezt, hefur stjórnin tvivegis leitað til
Alþingis um nokkurn fjárstyrk. Félagið fékk engan ár-
angur af viðleitni sinni í fyrra skiptið, en nú er ný um-
leitan hefur verið lögð fram, vonumst við í stjórninni
til þess, að liáttvirt fjárveitinganefnd Alþingis sjái sóma
sinn í að styðja þetta eitt elzta norræna akademíska
stéttarfélag með einhverri fjárupphæð, líkt og háttur
hefur verið á hj á frændum vorum á hinum Norður-
löndunum.
Rektor Háskólans hefur verið svo hjálpsamur að leyfa
afnot af húsakynnum Háskóla Islands þessa þrjá daga,
sem mótið á að standa. Ber slíkt sannarlega að þakka.
51