Árdís - 01.01.1933, Blaðsíða 6
4
Inngangsorð.
Til lesendanna:
Ársriti því er hér birtist i fyrsta sinn, vil eg leyfa mér að
fylgja úr lilaði með örfáum orðum. Það er gefið út af Bandalagi
lúterskra kvenna i Vesturheimi og vitanlega er ætlun ritsins, að
styðja að málefni félagsins sem er fyrst og fremst viðhald og úl-
lireiðsla lútersk kristindóms meðal íslendinga í Vesturheimi. En
félagið hel'ir einnig sett sér að styðja af fremstu kröftum að upp-
eldismálum, mentamálum og ýmsum öðrum þeim málum, sem konan
hlýtur æfinlega að hafa mikil afskifti af.
íslenzkar konur hér í landi hafa jafnan látið sig kristindóms-
málin miklu skifta. Á sviði kirkju- og kristindómsmála hafa þa;r
unnið mikið verk og að þeim málum vill bandalag lúterskra kvenna
enn vinna miklu meira, en ]nið hefir hingað til gert, og það vonar,
að þetta Iitla ársrit geti orðið hjálparmeðal í þá átt.
Uin efni ritsins í þetta sinn skal eg vera l'áorð. Hvað það
snertir verður ritið að mæla með sér sjálft. En með þeirri reynslu
sem íslenzkar konur hafa af þeim efnum, sem hér er um að ræða,
sýnist ekki ósennilegt, að þær hefðu eitthvað til þeirra að leggja í
opinberu riti sein þess er vert að vera á lofti haldið.
Þegar á fjárhagshliðina er litið, geri eg ráð fyrir að mörgum
sýnist misráðið, að leggja út i ]ietta fyrirtæki, svo lítið sem það þó er.
Alt það litla sem hér er gefið út á íslenzku mun eiga heldur erfill
uppdráttar. Eg geri mér beztu vonir um að þetta litla ársrit lendi
ekki í fjárþröng, ekki í þetta sinn að minsta kosti. Dálítið af auglýs-
ingum helir fengist fyrir ritið, sem borgar töluvert upp í útgáfukostn-
aðinn og eg treysti því, að nægilega mikið af ritinu seljist, lil að
borga það sem á vantar. Ritið verður selt fyrir mjög litið verð og
eg treysti því, að margir verði til að kaupa það, og treysti eg þar
sérstaklega á konurnar. Eg vona að þeim þyki sér ekki uin of
iþyngt, þó þær séu beðnar að kaupa þetta litla rit fyrir fáein sent.
Bandalag lúterskra kvenna sendir frá sér þetta litla ársrit með
þeirri eiidægu ósk, að það megi verða lesendunum til gagns og gleði.
—Guðríin Jolinson.