Árdís - 01.01.1933, Blaðsíða 33

Árdís - 01.01.1933, Blaðsíða 33
31 í þessu lilfelli gæti svo l'arið, að hinn útrekni illi andi sendi sjö aðra sér verri, sem gerðu síðara ásigkomulagið verra hinu fyrra. Er þetta spursmál, sérstaklega það livað gefa skyldi i staðinn, svo yfirgripsmikið, að ekki er mögulegt að fara út í það hér, og verð eg því að skilja við þá hlið málsins. Síðan eg gekk i kvenfélagið, hefir það að sækja fundi þess verið mér uppspretta mikillar og sannrar ánægju. Þar hefi eg orðið að- njótandi svo mikillar gestrisni, hlýleiks og margskonar velvildar, sem mest má verða. Sama hefi eg heyrt fjölda félagssystra minna segja. Hafa því kvenfélagsfundir ómetanlegt gildi fyrir mig og fleiri. Þó er nú eitl i sambandi við fundina sem mig langar til að vekja máls á, ekki til aðfinzlu, heldur til umhugsunar, og það er þetta: Mér finst að konurnar, senr bjóða fundunum lieim lil sín leggi vanalega alt of mikið á sig í sambandi við þá. Þær veita svo ríkulega og rausnarlega að nærri er um of. Enda hefi eg þekt til þess, að konur sem mjög stórum heimilum hafa að sinna, eða konur sem farnar eru að eldast og lýast, treysta sér ekki til að bjóða heim fundunum af því fyrirhöfnin sem þeim fylgir er svo mikil. Ekki er út á það að setja sem liggur til grundvallar fyrir því að vilja taka svo stórkostlega vcl móti fundarkonum. Það er ósvikin ís- lenzk gestrisni. En keyri hún úr hófi kemur hún ekki að tilætluðum notum. Eg hefi þegar lítillega tekið það fram, að æskilegt væri, og mögulegt að spara tíma á sumum sviðum kvenfélagsstarfseminnar, en nota hann á öðrum sviðum. En hvernig ættum vér ]>á helzt að nota þann tíma, og aðrar aukastundir sem vér getum gel'ið til félagsstarfa? Fyrst það er aðal tilgangur kvenfélaganna að stuðla að kristi- legum framförum og þroska, og fyrst kristilegt líl'erni er ávöxtur andlegs lífs, finst mér að við þurfum að einhverju leyti að snúa okkur heint að andlegum efnum, okkur til uppbyggingar. Auðveld- asta leiðin til árangurs er sjálfsagt sú að nota blöð og bækur sem fjalla um kristileg félags- og velferðarmál, sem nú eru uppi á ten- ingnum. Til þess að afla sér fróðleiks i þeim efnum, þyrfti hver okkar að taka sér ofurlílinn tíma til lesturs, daglega, vikulega, eða hvernig sem kringumstæðurnar helzt leyfa, en reglubundinn tíma, hvað afskamtaður sem hann hlyti að vera. Þó er aðgætandi að bækur og blöð eru mismunandi að verðleikum, og því nauðsynlegt að vera vandlátur með valið. í því að velja heppilega gætu lelags- systur hjálpast að, og eg efast ekki um að prestar vorir, sem eðli- lega eru mikið kunnugri þessum málum en við erum, myndi vera lúsir að leiðbeina oklcur. Fullviss er eg um það, að ef við gerðum verulega tilraun til þess, gætum við hagað vanalegum fundarstörfum okkar á enn hag-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.