Árdís - 01.01.1933, Blaðsíða 37

Árdís - 01.01.1933, Blaðsíða 37
35 nokkur foreldri geta óskað sér.— Þetta barn hefir mikið verk að vinna: Annaðhvort eykur það gleði hinna einmana foreldra sinna, eða veldur þeim óumræðilegs sársauka. Áhrif Jjess verða annaðhvort til að inýkja og græða eða til að herða og særa.—Þetta litla barn kallar; það kallar til i'öður eða móður þegar þau finna mest til þess hve einmana þau eru. Það biður þau að starfa, starfa fyrir einmana og allslausu börnin, sem þau þekkja til. Það eru svo mörg börn, scm enga foreldra eiga, og mörg fleiri börn, sem eiga þannig foreldra, að þau væru ekkert ver stödd þó þau ættu enga. Og litla barnið, sem aldrei fæddist biður alt einmana í'ólk að hjálþa einmana börnunum. Þá gleymist einstæðingsskapurinn; munaðarlausu börnin taka á sig mynd litla barnsins, sem aldrei fæddist. II. Næst fór eg í herbergi sem snéri móti vestri. Nal'n þess var “Endurminning.” Þangað skein kvöldsólin og gullnir geislar hennar fyltu það með undurfögrum ljóma. Þar svaf “litla barnið sem dú.” Það er aðdáanlega hrífandi, undur fagurt.—Barn, sem verður alla tið barn—barn, sem aldrei vex upp.-—Má eg segja ykkur stutta sögu, sem sunnudagsskóla kennarinn minn sagði einu sinni? Sagan er svona: Fjárhirðir átli erfitt með að koma hjörðinni yfir mjóa brú, sem lá yfir tært vatnsfall; hinum megin voru indælir hagar, þangað varð hjörðin að ná. Loks tók hirðirinn eitt litla lambið, bar það i fangi sér yfir brúna. Móðir þess kom umsvifalaust á eftir hunbinu sínu og lienni fylgdi svo öll hjörðin.—Þessi frásaga hefir mér oft komið i hug þegar eg hugsa um “litla barnið, sem dó.”—Og þetta elskulega, litla barn hefir mikið verk að vinna. Við munum frásöguna um Josephine Butler:—Foreldrarnir voru i skemtiferð um Evrópu og litla dóttirin slcilin eftir heima. Loks koma þau heim—vagnskrölt heyrist—dyrnar opnast—litla stúlkan hleypur að stiganum—myrkur—dettur—eitt sárt hljóð og svo— þögnin. Við inunum hve átakanlega móðirin lýsir þessari heimkomu, hvernig mörg ár liðu og hún var yfirkomin af sorg og vonleysi. Þar til loks að litla dána stúlkan hennar kallaði hana til starfs, til að helga líf sitt öllum vinalausum stúlkum, sem höfðu vilst af leið. Allir, sem þekkja starf þessarar miklu konu, þakka Guði fyrir “litla barnið scm dó.”—Gleymum því ekki að þetta litla barn kallar,—um hvað er það að biðja? Ekki um tár, hcldur um þjónustu. III. Næst kom eg í herbergið, sem snéri móti suðri. Þar var yndis- lega bjart, þar naut hádegissólar. Nafn þess er “Rauuveruleiki.” Þar sval’ litla barnið, sem lifir. Hvað hann er skemtilegur og aðlaðandi. Mig furðar ekki þó fólk hafi spurt “hvaða efni er í litlum drengjum? En öll svörin eru skökk. Það er aðeins þrent, sem þessi litli stúfur samanstendur af: forvitni, framgirni og ímyndunarafl. Og allir þessir eiginlegleikar verða honum til blessunar, ef rétt er á haldið. Það var forvitni, sem leiddi landkönnunarmenn um ókunn höf og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.