Árdís - 01.01.1933, Qupperneq 8
Félagssamtök íslenzkra lúteskra kvenna
í Veáturheimi
Infjibjörg ./. Olafsson.
íslendingar hafa nú búið i þessari álfu nærfelt sexliu ár og
hafa lagt sinn skerf til ýmsra íramfaramála. Fjölda félaga hafa
j)eir stofnað sín á milli með j>ví augnamiði að hrinda áfram ein-
hverju sérstöku áhugamáli. Munu þau félög svo mörg að mann
myndi undra ef tæki væru til að skýra frá þeim öllum. Um félags-
samtök íslendinga á ýmsum sviðum hefir áður verið skrifað en
íatt hefir verið sagt eða ritað uin félagsstarfsemi kvenna. Vestur-
íslenzkar konur hafa aldrei látið mikið á sér bera; um störf þeirra
hefir enginn hávaði verið gerður, enda hafa flest þeirra verið
unnin í kyrj)ey á yfirlætislausan hátt.
Hin fyrstu landnámsár voru konunum íslenzku ægilega erfið;
i ömurlegum húsakynnum, umkringdar af skógi og villidýrum
striddu margar þeirra einar jneð barnahópinn mánuðum saman,
meðan menn þeirra voru að leita sér atvinnu í fjarlægð. Hefir
mér oft fundist að ])essum landnámskonum hafi aldrei verið gel'in
sú viðurkenning sem þær áttu skilið. Ekkert var eðlilegra en J)að að
þegar að árin liðu og ofurlítið rofaði til að þá voru margar gáfaðar
og mikilhæfar konur svo lamaðar af erfiðleikunum, sjúkdómsstriði
og barnamissir, að þær nutu sín aldrei. Þær drógu sig í hlé frá
j)ví að starfa í félögum, en héldu áfram að vinna og þjóna í skugg-
anum, og lögðu sig fram til ])ess að gera börn sin hæf til að verða
])jóðarhrotinu vestur-íslenzka til sóma.
Með örfáum undantekningum hafa öll félög vestur-íslenzkra
kvenna verið mynduð ineð þvi augnamiði að hlynna að kirkjulegu
starfi og líkna bágstöddum. Á stríðsárunum voru nokkur félög
mynduð lil að hlynna að hermönnunum. Munu þau nú öll hafa
hætt starfi nema Jóns Sigurðssonar félagið í Winnipeg.
Árið 1883 gera vestur-íslenzkar konur sín fyrstu félagssamtök,
að svo miklu leyti sein eg veit. Það sumar var myndað kvennfélag
i Vikurhygð—nú Mountain-bygð—í Pembina County, N. D. Var
það markmið félagsins “Að styðja eftir inætti góð og nytsöm fyrir-
tæki meðal íslendinga, einkum i kristilegum skilningi.” Var þetta
félag stofnað af Mrs. Þórdísi Björnson, er var forseti ])ess um langt
skeið. Mun hún hafa sint því starfi frá sjúkraheði sínu hin síð-
ustu ár sin. Fjörutíu konur gerðust meðlimir þess í byrjun. Var þvi
])á skift i þrjár deildir eftir afstöðu, og voru deildirnar nefndar
austur- suður- og vestur-deild. Bera skýrslur með sér að þar hefir
verið starfað af mesta myndarskap frá byrjun. Eftirtektarvert er
það, að þetta elzta félag Vestur-íslenzkra kvenna hyrjar starf sitt