Árdís - 01.01.1933, Page 13
11
Árið 1905 var kvenfélagið “Baldursbrá” stofnað í Baldur,
Manitoba. Hefir það starfað að kristindómsmálum og ýmsum öðr-
um velferðarmálum bygðarinnar.
Ivvenfélagið “Viljinn” í Mozart, Sask., var stofnað 1908 af
frumbyggjara konum þeirrar bygðar. Frumkvöðull stofnunar þess
mun hafa verið Guðríður Johnson, nú til heimilis í Winnipeg.
Störfuðu félagslconur af miklum dugnaði, og settu ekki fyrir sig
þó hvorki væru símar, járnbrautir, né önnur þægindi. Með sam-
vinnu “Good Templars” bygði það samkomuhús í Mozart og nú
hefir kvenfélagið keypt hlut G. T. í því og á það eitt.
Árið 1909 var kvenfélag Augustínussafnaðar myndað. Hefir
Jiað félag starfað á sama hátt og önnur safnaðarkvenfélög; hel'ir
gefið sæti, orgel, prédikunarstól og altarisáhöld í kirkju safnaðarins
á Kandahar. Á stríðsárunum hlaut það heiðursviðurkenningu fyrir
starf í þarfir Rauða Kross félagsins. Minnist konan, sem samið hel'ir
skýrslu þess lelags á það með fögrum orðum, að þó nú sé litið um
inntektir félagsins sökum kreppunnar, hafi l'undir þess þó mikla
þýðingu, þar sem konum gefist tækifæri “til að gleyma annríki og
áhyggjum í bili.”—Vildi eg mega bæta þar við að það hefir ekki
verið alllítill þáttur í starfi allra kvenlelaga; fundir þeirra eiga að
vera þannig að hver meðlimur lari þaðan styrkari og færari fyrir
hið tilbreytingarlausa starf sem bíður hennar heimafyrir.
Iívenfélagið “Björk” að Lundar, Manitoba, var stofnað 10.
apríl, 1910. f byrjun starl'aði það aðallega að líknarstarfi. Tólf
árum síðar gerðist það safnaðar-kvenfélag. Tilheyra því nú um
þrjátíu meðlimir.
Árið 1910 var kvenfélagið “Fjallkonan”, í Langruth, Manitoba,
myndað með tuttugu og sex meðlimum. Tilgangur þess var að
hjálpa á ýinsan hátt Rauða Ivross starfinu og vann það með miklum
áhuga meðan á stríðinu stóð. Eftir stríðslok vann það að ýmsum
bygðarmálum. 10. nóv., 1924, var boðað til fundar til að ræða hvort
ekki væri hægt að gera þá breytingu sein myndi líkleg til að auka
áhuga og bæta við tölu meðlima. Var þá samþykt að breyta nal'ni
og stefnu félagsins. Er það nú “Kvenfélag Herðubreiðarsafnaðar.”
Hefir það starfað með dæmafáum dugnaði hin síðari ár og lagt fram
mikið fé til kirkjubyggingar og fleira.
Vorið 1923 mynduðu konur í Árnesi i Nýja fslandi félag, til
styrktar hinum lútcrska söfnuði bygðarinnar. Var það myndað með
tólf meðlimum. Mun það hafa starfað eftir föngum.
Árið 1922 var kvenfélagið “Tilraun” myndað að Vogar, Mani-
toba fyrir tilhlutun séra Adams Thorgrímssonar. Var tilgangur
þess að stuðla að þvi að kristilegt sal'naðarlif gæti blómgast í bygð-
inni.