Árdís - 01.01.1933, Side 21
19
Þar fossinn á við fjalla-gljúfrin tal
Og fjólum vaggar himin-runninn l)lær.
Þar máninn skín um miðja næturstund
Og mærum geislum slær á háf og grund.”
Þar byggir Drottinn, foldar hörnum fjær,
Því fimbul-heilög lil’ir eigi ró
f glaumi manna, gullnum veigum nær,
Þar gígjan deyfir synd er undir hló.
f einverunnar heim þú fundið fær
Hið fagra mál er Guð þér sjálfur bjó.
Þar máttu hvíla Guðs við góðan barm,
Sem glaðast barn á ljúl'um móður-arm.”
Það, er vér fyrst og fremst óskum að börnum okkar falli í skaut,
er að þau verði hamingjusöm. öll okkar barátta við uppeldi þeirra
hefir áreiðanlega það augnamið að þau eignist hina sönnu lífsgleði.
Þess vegna getum vér eigi betur byrjað uppfræðslu þeirra en með
því að setja þau við kné náttúrunnar og kenna þeim að elska og
dást að henni, kraftaverkinu er endurtekur sig daglega, en er þó
altaf jafn hrífandi, ef vér aðeins viljum sjá og hugsa.
Því er það að þegar Jón litli kemur með kafloðinn fiðrildis-orm
i litlu, feitu lúkunni, kófsveittur og með tindrandi augum og vill
vita hvað þetta sé, þá megum við ekki segja: “Fleygðu ótætis orm-
inum, Nonni, hann bítur þig;” því um leið sáum við frækorni
hræðslu og tortryggni í huga Jóns litla, og hann fer að halda að
það sem hann sér i kring um sig sé ekki “hnrla gott.” Réttara væri
að segja: “Farðu varlega með litla orminn; hann á eftir að verða
að stóru fiðrildi með rauðum og gulum vængjum,” og við höfum
gróðursett í huga barnsins hugmyndina um að alt er lifir hefir
sama rétt til lífsins, jafnframt því er við höfum, aukið áhuga hans til
að læra meir um fiðrildis-orminn.
Eða ])egar Hulda litla kemur hlaupandi með fangið fult af
tigris-liljum, fegurstu viltu blómunum er vaxa í Manitoba, og við
svo skömmu seinna finnum þær liggjandi úti fyrir dyrunum, þá verð-
um við með gætni og án þess að meiða viðkvæmar barnstilfinning-
arnar, að benda henni á, að ef hún hefði ekki tekið svona margar
liljur, þá hefðu miklu fleiri vaxið næsta ár, sem nú myndu aldrei
vaxa, af því þessar fengu ekki að ljúka lífsstarfi sínu. Það er undir-
staðan undir sanna föðurlandsást að neita sér um augnabliks gagn
eða gaman vegna þess, sem er bezt fyrir alla.
Það er ekki nauðsynlegt að segja mikið um þessa hluti við
börnin. Eitt eða tvö orð er nóg til að benda hugum þeirra í rétta
átt og auka hjá þeim löngun til að leita sjálf að svari við leyndar-
dómum þeim, er þau sjá alt í kring um sig.