Árdís - 01.01.1933, Qupperneq 41
39
þau seni snerta heimilið og barnauppeldið. Vér erum allar óvanar
að láta í Ijósi skoðanir vorar frammi fyrir almenningi og þurfum
því að iðka það hér, því þá l'yrst höfum vér not af þessum sam-
verustundum.
Eitt af þvi sem tekið hefir verið til umræðu á undanförnum
þingum eru hæna iðkanir á heimilum. Þótt oss kunni að finnast
að árangurinn af því hafi verið lítill, skulum vér ekki láta hugfallast,
því gott orð og gott verk getur lifað þó vér ekki veitum því eftir-
tekt. í maí-hefti “Sameiningarinnar” er kafli sem nefndur er “Á
víð og dreil'.” Þar er sagt frá félagi sem nú er tuttugu og fimm ára
gainalt og kallar sig “The Family Altar League of America.” Augna-
mið þess lelagsskapar er að efla og útbreiða heimilis-guðrækni. Þeir
sem mynduðu þennan félagsskap litu þannig, á að heimilis-guðrækni
væri eitt af því allra nauðsynlegasta til viðhalds og eflingar kristi-
legu lífi í samtíðinni. Og þeir beina starfi sínu að því að koma
fögrum og viðeigandi trúariðkunum á heimilum. Væri ekki við-
eigandi fyrir oss að eyða ofurlitlum tíma á þessu þingi til að tala um
þetta sameiginlega.
Bindindismál. Það er svo tengt uppeldismálum, að naumast
er hægt að tala um það frá öðru sjónarmiði á þingum vorum. Good
Templars og aðrir bindindismenn standa uppi ráðþrota; þrátt fyrir
áhuga þeirra og samtök virðist óleyfileg vínbruggun og óleyfileg
vinsala slöðugt fara vaxandi. i Bandaríkjunum hafa þessir lög-
brjótar bundist svo sterkum böndum og myndað með sér svo öflug-
an félagsskap að framleiðslu þeirra er líkt við bíla framleiðslu Henry
Ford og annara stærstu iðnaðarfélaga í landinu. f marz-hefti
“Vanity Fair” er fróðleg grein um þessa lögbrjóta og starfrækslu
þeirra. Er þar sagt að þeir lial'i í þjónustu sinni beztu fjársýslu-
menn, lögmenn og banka. Fyrir fáum dögum las eg í öðru Banda-
rikjablaði, sem heitir “Baltiinore Sun” að í Chicago væri lögreglu-
mönnum ekkert kaup borgað, og þó sýndust þeir hafa eins mikið
af lífsþægindum og aðrir og aldrei kvörtuðu þeir um peninga-
kreppu. Eftir því sem þetta blað segir, eru það jiessir svokölluðu
“bootleggers” sem sjá þeim og skylduliði þeirra borgið. Þegar annað
eins og þetta getur átt sér stað i siðuðu landi, er bindindismál orðið
erlitt viðfangsefni. En hvar eru upptökin að jiessu böli? Ætli það
megi ekki í flestum tilfellum rekja það til heimilanna? Oft leiðast
unglingar, sem alist hafa upp á góðum heimilum út i óreglu, orsakir
til þess geta verið margvíslegar, en ol't mun vanræksla í smámunum
vera um að kenna. Þar í liggur hættan inesta. Það er svo oft að
foreldrar eru svo hrifin af börnum sínum að þau vanrækja að at-
huga hvar þau eru veikust fyrir og vanrækja að veita þann styrk
sem þarf til að standa á móti þeirri veiklun.
Félagsskapur barnanna er eitt þýðingarmikið atriði i uppeldi
þeirra. Ef þeim er kent í byrjun að velja sér góða félaga er ekki