Árdís - 01.01.1933, Side 42
40
mikil hætta á að þau síðar lendi í vondum félagsskap. Vér komum
aldrei nálægt hinu góða án þess að hljóta blessun af.
Það er ekki síður nauðsynlegt fyrir foreldra að kenna dætrum
sínum viðbjóð á vínnautn en sonum sínum. Ungur maður sagði
eitt sinn við mig: “Við piltarnir erum eins og stúlkurnar vilja að
við sjéum. Ef þær meta ekki meira félagsskap þeirra manna sem
vanda framferði sitt í öllu, en hinna, sem koma fram sem druknir
dónar, þá er það hvorki viðvörun fyrir þá, sem það gera, eða upp-
örfun fyrir hina, sem manndóm sýna.”
Mér fanst svo mikill sannleikur í þessum orðum að það opnaðist
fyrir mér nýtt útsýni á þessu máli. Ef stúlkur væru kröfuharðari
um framferði pilta myndu færri þeirra koma fram fyrir þær ölv-
aðir.
En bindindi er nauðsynlegt í fleiru en vínnautn, þó meira sé
talað um hættuna af ofnautn áfengis en hættuna sem opinberir dans-
salir leiða af sér, þá er þó engu síður ástæða fyrir mæður að vara
dætur sínar við þeirri hættu. Mér dettur ekki í hug að halda því
fram, hvorki hér né annarsstaðar, að dansinn geti ekki verið sak-
laus skemtun, eg veit að margir skemta sér við dans á saklausan
hátt. En á þessa opinberu danssali koma oft piltar sem hafa ilt í
huga, margar stúlkur fara þangað með vinstúlkum sínum og fara
svo heim aftur með einhverjum piltinum sem þær hafa máske hitt
þarna i fyrsta sinn og þekkja engin deili á. Ekki ómögulegt að
hann hafi þá líka pelaglas í vasanum.—Þeir, sem þeklcja dá-
lítið til þess sem fram fer í réttarsölum bæjarins, hafa hugmynd
um afleiðingar slíkra skemtana. Þó vitum við allar að aðeins lítill
hluti af allri þeirri ógæfu kemur nokkurntíma fyrir lög og dóm.
Önnur hætta fyrir ungar stúlkur eru keirslutúrar með ókunn-
ugum mönnum. Það er algengt á kveldin að sjá glæsilegar bif-
reiðar staðnæmast þar sem stúlkur eru á gangi og þeir sem í bílunum
sitja bjóða stúlkunum kurteislega keyrslu. Sjúkrahúsið, sem sálu-
hjálparherinn hefir umsjón með hér í bænum gæti gefið skýringar
um afleiðingu sumra þessara keyrslutúra. Máskc mæður stúlkn-
anna, sem fót sinn hafa l'est í þessu neti, hafi aldrei varað þær við
hættunni. Hver móðir ætti að vera vakandi yfir að vara stúlkur
sínar við hinum mörgu hættum, sem hætt er við að verði á leið
þeirra.
Friðarmál er það mál, sem allur heimurinn ætti að vinna að.
Siðan stríðið ógurlega endaði fyrir 14 árum hefir allur heimurinn
óskað eftir varanlegum frið. Hafa flestir bygt sínar lriðarvonir á
“The League of Nations.” Tilgangur þess er að ráða til lykta á
friðsamlegan hátt ágreiningsmálum þjóðanna. Aðal stöðvar þess eru
i hinni fögru og friðsælu borg Geneva. Þaðan berst friðar boðskapur
þess út um allan heim. Líka hefir kristin kirkja lagt mikið til
friðarmála, með því að auka skilning og umburðarlyndi á milli