Árdís - 01.01.1933, Page 45
43
Margir íslenzkir láterskir söfnuðir hafa sína sunnudagsskóla
og önnur unglingafélög er tengja ungmenni sín og tryggja fram-
tíðarstarf safnaðanna.
Það er alkunnugt að það eru íslenzkar bygðir er hafa litla—
næstum enga—prestsþjónustu, og þar sem er ekki safnaðarlíf er lítil
uppl'ræðsla höfð fyrir unglinga í kristindómsfræðum.
Með þetta í huga byrjaði hið sameinaða kvenfélag lúterskra
safnaða þetta kristindómsstarf—réttara kallað “Kristindóms nám-
skeið.
Vorið 1929 voru hréf send af skrifara þessa félags til íslenzku
bygðarinnar, er liggur norður við Manitobavatn, frá Siglunesi
og norður að Silver Bay. Var okkur tilkynt að litil kristileg upp-
fræðsla liafi verið veitt börnum þar nema af veikum mætti mæðra
á heimilum sínum. Þessi bréf buðu að senda had'a kristindóms-
kennara um þriggja vikna tíma í júlí mánuði. Var boði þessu vel
tekið og þegið með þökkum.
Miss Jennie Johnson, og Miss Guðrún Bildfell, miðskólakenn-
arar í miklu áliti í Winnipeg, fóru norður til Ashern og þaðan til
Siglunes.
Þar komu tuttugu og fjögur börn, námfús og glöð að fá að heyra
sögu Jesú Ivrists og læra bænir og sálma. Á Darwin skóla (Oak
View P. O.) komu fimtán börn og sýndu sama vilja að læra um
frelsara sinn. Mörg al' þessum börnum komu margar mílur dags
daglega og var það í fyrsta sinn er l'Iest þessi hörn hölðu komið á
sunnudagsskóla.
í júlí, 1930, tóku tvær stúlkur þetta starl' að sér—þær Miss
Ingibjörg Bjarnason frá Winnipeg, kennari við Lundar alþýðu-
skólann, og Miss Evangeline Vigdís Olafson, kennari við Arborg,
dóttir séra Sigurðar Olafssonar.
Þetta sumar bættist við þriðja héraðið—Silver Bay—og kendu
þær sjö daga í hverjum stað.
Á Siglunési innrituðust tuttugu og fimm börn, á Oak View
tuttugu og þrjú börn, og við Silver Bay tuttugu og sjö börn. Sjötíu
og fimm börn fengu tilsögn i kristnum fræðum, lærðu bænir og sungu
sálma. Þessi börn sýndu frábæran áhuga, námfýsi og þakklæti til
þeirra, er unnu þetta góða verk.
önnur þessi stúlka, Evangeline Vigdís Olafson var, áður en árið
leið, komin heim til sins himneska föðurs.—Blessuð sé minning
hennar!
Þetta sama sumar fór Miss Guðrún Marteinson til Árnes, stofn-
aði sunnudagsskóla mcð þeim börnum er þar voru, heimsótti for-