Árdís - 01.01.1933, Síða 46
44
eldra barnanna og fékk tvær stúlkur er lofuðust til að halda áfram
þessu góða starfi.
Sumarið 1931 fóru þær Miss Jónína Olafson, og Miss Louisa
Bergson til Ashern og þaðan til þess sama staðar er var liúið að
starfa tvö sumurin áður. Fylgdu þær nákvæmlega sama formi og
áður. Það mætti bæta hér við, að kona nokkur áleit það þess vert að
senda tvær dætur sínar tuttugu mílur (frá Wapah) og yfir vatn
og borga fyrir verustað þann tíma sem þær gátu notið kenslu hjá
Miss Olafson og Miss Bergson.
Þetta síðasta sumar, 1932, bauðst félagi þessu tvær stúlkur frá
Baldur—Miss Ellen Frederickson og Miss Þora Oliver, báðar kenn-
arar á alþýðuskólum.
Skýrslur um starf þetta, síðan það var l'yrst byrjað 1929, hafa
verið lesnar á kvenþingi og birtar í Sameiningunni á hverju ári.
Þessar skýrslur bera með sér frábæran áhuga fyrir þessu starfi
og trygging góðrar uppskeru frá því svæði er hefir verið gróðursett
í þessari bygð þessi undanfarin ár.
Þrír alþýðuskólakennarar í bygð þessari hafa tekið að sér að
halda áfram með þetta starf þá mánuði er þær kenna þar þetta ár.
Þessar góðu stúlkur heita Miss Ástrós Johnson, kennari við Darwin
skóla; Miss Vigdís Sigurðson að Vogar P. O.; og Miss Levina Milne,
ensk stúlka er kennir á Silver Bay. Bauðst hún að halda áfram
sunnudagaskóla starfi þann tíma, er hún kennir þar. íslenzk stúlka
úr því héraði hefir einnig boðist í þetta verk, Bína Johnson, dóttir
Árna og Jónu Johnson á Silver Bay.
Sunnudagsskóla blöð, til þessa brúkuð og þeim útbýtt til barna
við sumarkenzlu, og alt sunnudagsskóla lesmál sent til þessara barna
á veturna, hefir verið gel'ið góðfúslega af skólaráði sunnudagsskóla
Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg.
Vill hið sameinaða kvenfélag nota þetta tækifæri til að þakka
af alúð sunnudagaskóla Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg fyrir
þessa miklu hjálj), er mun bera svo mikinn, og blessunarríkan ávöxt.
Beiðni kom á siðasta þingi þessa kvenfélags, að senda starl's-
konur til annara íslenzkra bygða, er hafa litla prestþjónustu, og þá
als enga kristilega uppfræðslu fyrir börn. Guð gefi að starfsmenn
gefi sig að þessu góða verki svo að þetta verði mögulegt.
Berum svo þetta mál í hjörtum vorum; látum það vera sérmál
hverrar kristinnar konu í kirkjufélagi voru og biðjum fyrir því
að það megi aukast og ná til fleiri íslenzkra barna og gróðursetja
elsku á Krist í hjörtum þeirra. Við sem mæður þekkjum barns-
hjartað og vitum, að alt það fræ, sem sáð er í Guðs nafni, ber sína
uppskeru á varanlegan hátt. Guð gefi að börn allra íslenzkra mæðra
beri ljós Jesú Krists hátt og skært—þá er einskis að kvíða og fram-
tíðarsæla barna vorra er trygð.