Árdís - 01.01.1938, Síða 13
•$ll'
GÓÐUR JARÐVEGUR
(Erindi i'lutt á þingi Bandalags lúterslcra kvenna, 1938)
Eftir Louise Gislason.
Guðs orð er frækorn furðu smátt,
Sem l'elst í hjartans leynum,
En aftur getur orðið hátt,
Ef að því hlúa reynum.
Þegar eg var beðin að tala nokkur orð á j)essu þingi, þá heldur
færðisl eg undan því, sagði að eg væri mjög óvön ræðuhöldum, og
svo vissi eg ekki hvaða málefni eg gæti mögulega talað uin. Þá sagði
vinkona mín við mig: “Það er hezt þú talir eitthvað um sunnudags-
skóla málið, því það er næst hjarta þinu.” Eg fann að þetta var satt,
og afréð því, að reyna að segja nokkur orð viðvíkjandi því máli. Eg
býst ekki við að gela komið með nokkuð nýtt, skemtilegt né fróðlegt,
cn eg vona, að þetta erindi mitt mætti verða til þess að vekja ykkur
til umhugsunar um það, að einmitt i þeim víngarði er mikið verk að
vinna. Mig tangar til að hvetja ykkur ál'ram og áminna ykkur, að
sunnudagsskólastarfsemin þarf óskifla krafta okkar og bamir. Við
þurfum að standa á verði og hlúa að þeim góða jarðvegi, sem okkur
er fenginn upp í hendurnar, þvi það er enginn minsti vali á því, að
uppskeran l'er eftir því, hvað mikið við leggjum í sölurnar í starfi
voru i kristindómsfræðslu, fyrst á heimilunum og svo á sunnudags-
skólunum. Starfseini vor á því sviði er hlekkur, sem bindur þá
yngri við þá eldri, og þann hlekk má ekki brjóta.
Á vorin sáum við í garðana okkar; við vöndum útsæðið og reyn-
um að undirbúa jarðveginn. Svo þegar litlu plönturnar koma upp úr
moldinni, þá tínum við illgresið, verjum plönturnar frosti, og gerum
alt sem i okkar valdi stendur að hlúa að þeim, svo garðurinn inegi
verða seinna okkur til gagns og gleði. Má nú ekki tilfæra þetta upp
á sunnudagsskólana? Ekki ríður minna á því að vanda sig i þeim
garði, ef uppskeran á að verða góð, og það er eg viss um, er einlæg
ósk okkar allra.
“Starfa með bæn og biðlund.
Blessast þá alt þitt ráð;
Vísl mun þeim vel er biður
Veitast alt af náð.”
Heimilin öll, undantekningarlaust, þurfa að hjálpa þessu máli
áfrain. Ef vel á að ganga, þurfa börnin að njóta tilsagnar alla daga
vikunnar. Það er ekki nóg að þeim sé sagt til bara á sunnudögum.
11