Árdís - 01.01.1950, Side 8

Árdís - 01.01.1950, Side 8
6 ÁRDÍ S Já, ættjarðarást og frelsisþrá er fyrst og æðst í huga hvers ís- lendings. Og af því að ættjarðarást fylgir ýmislegt annað, og að mannsandinn er svo margbreytilegur, villist hún oft út á öfga brautir, því frelsisþrá íslendinga hefir ávalt verið eitt þeirra sterk- asta einkenni. Þessir öfgar eru ekki aðeins að hitta þar, en hafa fleyg-t höftum sínum víða um heim og gert glundroða. En þetta lag- ast þegar jafnvægi kemst aftur á hugsunarhátt þess fólks sem horfir áfram, og kann að meta sitt frelsi — hve dýrmæt er eignin. Nú eru íslands synir og dætur að „auðga landið og styrkja þess hag“. Með sinni mannfæð og sínu litla pundi er þjóðin samt örugg og stórhuga eins og forfeðurnir forðum daga. Alla reiðu hafa störf- in verið létt því Ljósafoss sendir sinn kraft inn á heimilin og gerir mögulegt að vinna á klukkustundum það sem áður útheimti mörg dagsverk. Húsmóðirin blessar þennan kraft sem náttúran hefir lagt henni í hendur og sem hefir svo „létt hennar störf“. Allur útbúnaður við aflkerfið að Ljósafoss er með nýjasta sniði, bæði bygging og maskínur; enda hefir Steingrímur Jónsson, yfir orkufræðingur þar, ferðast víða um önnur lönd sér til upplýsingar og hjálpar við starf sitt. Lengi voru hverirnir ónotaðir; þeirra hvíta gufa lagði upp úr jörðinni, en menn áttu enn enga hugsjón um það ótakmarkaða afl sem var í þeim fólgið. En íslenzk skáld höfðu altaf hvatt þjóðina til framkvæmda. Skáldið syngur: „Nú er dagur við ský heyr hinn dynjandi gný. Nú þarf dáðrakka menn — ekki blundandi þý, Það þarf vakandi önd — það þarf vinnandi hönd til að velta í rústir og byggja á ný“. Og loks rann upp sá dagur að „Hitaveita Reykjavíkur“ tók til starfa. Saga hitaveitunnar hefst með byggingu og leiðslu pípu línu frá gömlu þvottalaugunum árið 1930, og er notað enn í dag. Seinna var byrjað að bora að Reykjum í Mosfellssveit og sumaraði 1939 var gerður samningur við danska verkfræðinga að hafa umsjón með verkinu: með því að þeir höfðu um leið útvegað lán í Danmörku fyrir þetta mannvirki. Svo skall á stríðið, og eftir að Danmörk var hertekin var erfitt að fá efni til verksins. Þá var leitað til Ameríku. Tvisvar var skip- um með efni frá Ameríku sökkt. En allir sem að þessum málum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.