Árdís - 01.01.1951, Blaðsíða 42

Árdís - 01.01.1951, Blaðsíða 42
40 ÁRDÍS Minningarnar streymdu í huga minn, minningar sem hver um sig mundi vera nóg efni í smásögu. Ég mintist fagurs vor- morguns — það var sunnudagur. Við hjónin kölluðum á drenginn okkar og gáfum honum úrið. Við vorum áreiðanlega eins ham- ingjusöm yfir því að við gátum klofið þessa tiltölulega stóru útborg- un eins og drengurinn var að fá úrið. Ég sá glaða svipinn, þakklætið og aðdáunina, sá svo skýi bregða fyrir gleðina í svipnum, augun næstum hrædd og sorgþrungin horfa á okkur: „Mamma! Pabbi! JNú hafið þið gert of mikið fyrir mig. Þið hafið ekki efni á þessu?“ Svo sá ég heiðskíruna og sólskinið í augunum þegar við báðum hann að njóta úrsins með góðri og glaðri meðvitund. Hnappana fékk ég fyrstu jólin sem ég var heitbundin manni mínum. Þeir voru jólagjöf frá honum, með gleym-mér-ei á hvít- um emalínflöt. Fyrir sjö árum hafði ég látið þá í skyrtuermar sonar míns, þá var hann fangi í þýzkum herbúðum. Ég þráði að senda honum eitthvað sem hann vissi að væri mér dýrmætt. Bréf fékk ég aldrei leyfi til að skrifa honum. Ég vissi að litla blómið talaði sitt mál, mál sem þýzku fangaverðirnir ekki skildu. Ég lagði úrið að eyra mínu, það gekk hægt og rólega, var byrjað að mæla tímann aftur. Það lifði, lifði eftir öll þessi ár í fanga- og herbúðum. Ósjálfrátt varð ég að spyrja sjálfan mig um hvað úrið gæti sagt mér af ilsku, hatri og hefnd, af vonbrigð- um, sorg og neyð, af vonum, vilja og sigri, ef það hefði getað sagt sögu sína. Ég leit spyrjandi á mann minn: „Það er til þín, þú átt að bera það á meðan þú lifir“. Hann sagði mér að það hefði komið með póstinum þá um kvöldið. Hann vildi bara ekki láta mig vita um það íyr en allir voru komnir í ró. Ég lagði handleggina um háls hans og þrýsti kossi á sorgmæddu augun. Hugurinn var svo sár, svo sár — þó var ég hamingjusöm í sorg minni. Ég hafði íengið táknið sem ég hafði þráð í öll þessi ár og þetta sama kvöld beðið um að fá. Ég vildi ekki yfirbugast af tilfinningum mínum í nærveru manns míns — það gat verið nógu erfitt fyrir hann samt. Ég þráði að sjá syni mína og gekk inn í herbergi þeirra. Þeir yngstu sváfu vært og rótt, en um leið og ég hallaði hurðinni að dyra- stafnum og kveikti lítið ljós opnaði elzti drengurinn augun. Hálf- sofandi breiddi hann út faðminn á móti mér og hvíslaði jarðar- innar fegursta nafni: „Móðir mín“. Hér var gott að vera. Hér gat ég verið eins lítil og veik sem ég hafði þörf á. — „Mamma, þetta er kveðja frá honum til þín. Það er þakklætisvottur fyrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.