Árdís - 01.01.1951, Page 61

Árdís - 01.01.1951, Page 61
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna 59 chewan; Guðbjörg Þórunn Sigríður, og María Solveig Sigurbjörg, báðar á heimilinu í Winnipeg. Þessi mikilhæfa kona, bæði áður en hún giftist og einnig síðar, hlífði sér aldrei við heimilisstörfin, en í viðbót við þau leysti hún af hendi mikið af vel unnu félagslegu starfi. Hún og fólk hennar fylgdu íslenzku Lútersku kirkjunni að málum af einlægni og áhuga. Hún var fyrst starfandi í félagsskap ungra kvenna, í Fyrsta Lúterska söfnuði. Með frjálsum, glöðum vilja lögðu þessar ungu stúlkur krafta sína saman til að efla söfn- uðinn og styrkja hann fjárhagslega. Snemma á árum fór hún einnig að gefa sig að bindindisstarf- semi. Hún gjörðist meðlimur í stúkunni Heklu og vann þar af kappi. Er stundir liðu fram, var hún kosin í stórstúku Good Templara í Manitoba. Hún vann áhrifaríkt starf í stórstúkunni í mörg ár. Hún talaði norsku og gat bjargað sér í sænsku. Það var að minsta kosti einn þáttur í því að hún komst í kynni við sænskt fólk í Winnipeg og stuðlaði að því að á meðal þeirra mynduðust sænskar Good Templara stúkur. Á þessum árum var félagsskapur á vegum íslenzku Good Templaranna, sem nefndist Harpa. Hún var líknarfélag til að veita hjálp í fátækt og sjúkdómi. Mrs. Thomsen starfaði þar af lífi og sál, og bar starf hennar, þar sem annars staðar, góðan ávöxt. Á dögum Jóns Bjarnasonarskóla vann hún af trúmensku og velvild í kvenfélaginu, sem styrkti Jóns Bjarnasonar skóla. Með þakklæti vil ég minnast þess hér, að allar þrjár dætur þeirra hjóna, sem náðu skólaaldri, stunduðu nám í þeim skóla. Þó þetta sé ófullkomin frásögn af æfi Mrs. Thomsen, er samt með þessu sýnd nokkur mynd af nytsömu og farsælu æfistarfi; en sú mynd eignast aukna og fagra drætti við athugun hins dásamlega kærleika, sem hún veitti ástvinum sínum, foreldrum, systrum, eiginmanni og dætrum. Unaðslegt var að koma á heimili þeirra hér í Winnipeg, því þar voru allir samtaka í gestrisni og sérhverju öðru góðu. Mrs. Thomsen hafði víst sæmilega heilsu meirihluta æfi, en fékk slag 1948 og lifði við vanheilsu eftir það. Hún fékk hvíldina 12. maí, 1950. Hún var jarðsungin frá Fyrstu Lútersku kirkju, af séra Valdimar J. Eylands, 16. maí, og jörðuð í Brookside grafreit. Hana lifa: eiginmaður, Lorens Thomsen, þrjár dætur áður nefndar; og ein systir, Mrs. Halldóra Petrína Bjarnason. Ein al- systir, Mrs. Jóhanna Margrét Johnson, og hálfsystir, Mrs. Thorunn Lee, voru áður dánar. Blessuð sé minning þessarar góðu konu. Rúnólfuur Marteinsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.