Morgunblaðið - 18.01.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.01.2009, Blaðsíða 1
1 8. J A N Ú A R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 16. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is TENGSL:ÁRNI OG BRYNDÍS ÍSFOLD LEIKA TÓNLIST PÓLITÍK OG ASHLEYYOUNGBestur þrisvar á árinu ÓLÍKAR LEIÐIR UM HEIM EINHVERFU TÍSKA Hvað verður heitt 2009? SUNNUDAGUR Morgunblaðið/RAX Innilokun Birgir Páll Marteinsson situr í fangelsinu á Litla-Hrauni. Hann hlaut 7 ára dóm í Færeyjum fyrir aðild sína að Pólstjörnumálinu, en allir sem til málsins þekkja segja hlut hans í því miklu minni en ráða má af svo þungum dómi. Birgir Páll stundar fjarnám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst og vill þess vegna fá að afplána dóminn þar sem hann fær greiðari netaðgang. | 12 100 dagar frá hruninu Farið yfir atburði síðustu mánaða frá því neyðarlögin voru samþykkt. »30 Betri yfirsýn þegar reykurinn hverfur Geir H. Haarde forsætisráðherra fer yfir atburðina og framtíðina »32 Skipta út þeim sem sigldu skútunni í strand Gylfi Magnússon vill að þeir axli ábyrgð sem stýrðu þjóðarskútunni »32 „ÞEGAR þrjár stórar byggingar falla til jarðar gýs upp mikill reykmökkur, sem menn sjá ekki út úr fyrst í stað. Þegar rykið sest og reykurinn hverfur fá menn betri yfir- sýn. Ég tel að við séum fyrir nokkru komin inn í það ástand. Framundan er þá annar fasi, sem er að byggja upp og endurreisa,“ segir Geir H. Haarde forsætisráð- herra í viðtali um bankahrunið í Morgunblaðinu í dag. Í liðinni viku voru 100 dagar síðan neyðarlögin voru sett. Á grundvelli þeirra var bankastarfsemi í landinu við- haldið eftir hrun Glitnis, Kaupþings og Landsbankans. At- vinnulíf í landinu varð við hrunið fyrir gríðarlegu höggi sem ekki er enn ljóst hversu illa leikur íslenskan efnahag. Ítarlega er fjallað um bankahrunið, aðgerðir stjórn- valda og stöðuna í efnahagsmálum í úttekt í dag. Farið er yfir það sem komið er til framkvæmda og hvað er fram- undan í endurreisnarstarfinu. Sést brátt í gegnum reykinn RÍKISSTARFSMENN»6 NÝR FORSETI Í MEÐBYR»8 Barack Obama gaf fyrirheit vonar í kosningabaráttunni og talaði um breytingar. Hann talaði án þeirrar kaldhæðni, sem oft býr að baki pólitískri umræðu, og bandarískur almenn- ingur virðist tilbúinn að taka hann á orðinu. Sá mikli stuðningur, sem hann nýtur um þessar mundir, helg- ast áreiðanlega meðal annars af því að stór hluti Bandaríkjamanna bíður þess að forsetatíð Bush ljúki. En hann má líka rekja til vonar um endurnýjun í banda- rískum stjórnmálum á tímum óvissu í efnahagsmálum og á alþjóðavettvangi. Vandamálin, sem Obama tekur við, eru hins vegar meiri en svo að einn maður geti leyst úr þeim og hinn nýi forseti þarf að gæta þess að vonirnar breytist ekki í von- brigði láti árangurinn á sér standa. Obama gefur fyrirheit vonar og endurnýjunar Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir engar áætlanir liggja fyrir um fækkun ríkisstarfsmanna. „Ráðu- neytin þurfa vissulega að draga saman seglin en þeim er í meg- inatriðum í sjálfsvald sett hvern- ig markmiðum um sparnað er náð.“ „Þegar kreppir að er grund- vallaratriði að þétta öryggisnetið í samfélaginu. Það gerum við ekki með því að fækka opinber- um starfsmönnum,“ segir Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB. Fækkar í vinnu hjá ríkinu? „ÞAÐ á ekki að bæta tjónið með því að sækja það til þeirra sem ollu því heldur á að velta því yfir á okkur, á almenning, enn einu sinni. Þeir sem kveiktu í húsinu ætla að beina athyglinni að ung- lingnum sem hrækti á gang- stéttina. Auðstéttin vill að öll andstaða sé brotin á bak aftur með lögreglukylfum og gasi en neitar sjálf að axla alla ábyrgð. Um leið og auðstéttin axlar sína ábyrgð, og ríkisstjórnin og eftirlitsstofnanir hennar, þá hætta þessi mótmæli sjálf- krafa,“ skrifar Einar Már Guðmundsson rithöfund- ur í grein sinni, Krydd- legin Baugshjörtu, í Morgunblaðinu í dag. | 24 Þá hætta þessi mótmæli sjálfkrafa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.