Morgunblaðið - 18.01.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.01.2009, Blaðsíða 22
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Árni Rúnar: „Bryndís er fimm árum eldri, svo eigum við aðra systur sem er tíu árum eldri. Við systkinin vor- um góð saman, auðvitað rífast systkini stundum en við vorum nokkuð góðir vinir. Við urðum sér- staklega góðir vinir svona eftir að ég var ekki lengur unglingur. Mamma dó árið 1999. Þá var mik- ill styrkur í að hafa Bryndísi og líka Kötu systur. Ég var þá 17 ára en Bryndís 22 ára. Ég held að böndin hafi styrkst þarna. Unglingurinn í mér var að minnka á þessum tíma, ég leitaði inn í fjölskylduna og þá treystust böndin. Við ólumst að mestu leyti upp í Grafarvoginum, fluttum þangað úr Breiðholtinu þegar ég var fimm ára. Varðandi tónlist, þá man ég alltaf eftir því þegar ég rændi af henni plötu með Guns N’ Roses. Þannig kynntist ég hljómsveitinni en platan var Appetite for Destruction. Kosningasjónvarp í tjaldi Þegar ég var lítill var ég alltaf að skrúfa eitthvað í sundur, sem var mjög skemmtilegt. Hún mun líklega segja að ég hafi skrúfað eitthvað í sundur og þannig skemmt það en ég held ég hafi bara gert það betra. Bryndís fékk snemma áhuga á pólitík. Einu sinni tjaldaði hún úti í garði með einhverjum vinkonum sínum og ætlaði að vera þar eina nótt. Hún var með lítið ferða- sjónvarp með sér sem pabbi hafði keypt í Ameríku og notaði það til að fylgjast með kosningasjónvarpinu. Stelpunum þótti þetta svo leiðinlegt að þær fóru allar. En ég sat þarna eftir með henni að horfa á kosninga- sjónvarp, fimm eða sex ára gamall. Svo minnir mig að þetta hafi endað með því að ég varð lasinn eftir að hafa verið í tjaldinu. Ég hef fylgst með henni í pólitík- inni. Hún stendur sig mjög vel. Hún heldur í sínar skoðanir, sem er mjög gott. Ég er alltaf stoltur þegar ég sé hvað hún heldur sínu striki, hennar skoðanir breytast ekki í einhverri hendingu. Mér finnst það mjög flott. Skíðakona með sannfæringarkraft Hún hefur mikinn áhuga á því að sannfæra fólk um ágæti skoðana sinna og hún er líka góð í því. Það er fínt að tala við hana því hún er heldur ekki feimin við að segja nei- kvæðar hliðar skoðana sinna líka. Maður fær góða mynd af hlutunum eftir að hafa talað við hana. Ég reyni að sækja upplýsingar til henn- ar og finnst ég heppin að hafa hana til að hjálpa við að móta mér skoð- anir. Hún var alltaf mikið á skíðum og æfði lengi. Hún fer ekki lengur eins mikið á skíði en henni þykir gaman að fara að veiða. Fara út á báti eða sitja við einhverja á og veiða. Hún á líka fína veiðistöng. Það er langt síðan ég hef farið með henni en við höfum farið að veiða saman. Við fór- um líka stundum með pabba að veiða þegar við vorum lítil. Það var skemmtilegt og áhuginn sprettur kannski upp úr því. Henni þykir mjög gaman að ferðast og er búin að fara út um allt. Hún kaupir sér ekki flatskjá heldur kýs frekar reynsluna og heldur í ferðalög. Hún og fjölskylda hennar eyddu til dæm- is þarsíðustu jólum hjá okkur úti í New York en ég og kærastan mín vorum þá búsett þar. Við höfum alltaf eytt jólunum saman þar til núna síðast, þá vorum við ekki sam- an í mat á aðfangadagskvöld en ég kom til hennar seinna um kvöldið. Nálægð við miðbæinn Við Bryndís höldum góðu sam- bandi, hittumst reglulega og tölum oft saman í síma. Hún býr líka á miðbæjarsvæðinu eins og ég. Það er mjög fínt upp á sambandið. Það er alltaf stutt að fara á milli. Ég borða oft heima hjá þeim, rölti kannski í heimsókn en svo endar maður í mat. Það er skemmtilegt að fylgjast með henni í móðurhlutverkinu og hún er líka mjög góð í því. Strák- urinn hennar er alveg eins og Bryndís þegar hún var lítil, af myndum að dæma. Ég held að hann sé jafnvel líka líkur henni í karakter. Bryndís er opinn karakt- er, hún lýsir sér allavega þannig gagnvart mér. Við tölum saman á mjög hreinskilinn hátt. Ég segi henni þegar ég er ósammála henni og hún lætur sömuleiðis vita ef hún er ósammála mér. Ég hjálpaði til þegar hún fór í prófkjör fyrir al- þingiskosningarnar síðustu og reyndi að gera mitt besta. Við gerðum saman safnplötu með ýmissi tónlist. Hún var með ákveð- ið málefni, sem hana langaði að vekja athygli á, þannig að við gerð- um safnplötu sem hún gaf í tengslum við prófkjörið. Ég var að gefa henni tvær plötur sem mig langar að hún hlusti á. Við erum ekki alltaf sammála um tónlist en ég reyni oft að fá hana til að hlusta á einhverjar plötur; ýti að henni einhverju sem mér líkar við og dettur í hug að henni lítist á. Ég reyni að sannfæra hana um tónlist en hún reynir að sannfæra mig um pólitísk mál. Ég hefði kannski átt að gefa henni Chinese Democracy [nýjustu plötu GN’R]? Hún hefur stutt vel við bakið á mér í tónlist- inni. Hún er dugleg að skrifa á bloggið sitt ef ég geri eitthvað sem henni þykir markvert. Svo mætir hún líka á tónleika sem er gott. Það er mjög mikilvægt að sjá einhverja sem maður þekkir að dansa.“ Ferðalangur með opinn huga Systkinin Árni Rúnar og Bryndís Ísfold Hlöðversbörn eru bæði fram- takssöm, hann í tónlistinni en hún í stjórnmálunum. Þau eru ekki aðeins tengd nánum fjölskylduböndum heldur einnig vinaböndum, sem hafa styrkst í áranna rás. ‘‘HÚN HEFUR MIKINNÁHUGA Á ÞVÍ AÐ SANN-FÆRA FÓLK UM ÁGÆTISKOÐANA SINNA OG HÚN ER LÍKA GÓÐ Í ÞVÍ. 22 Tengsl MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 Árni Rúnar Hlöðversson fæddist 9. febrúar 1982 í Reykjavík. Hann er sonur Sigríðar Guðrúnar Símonardóttur leikskólakennara, sem nú er látin, og Hlöðvers Hlöðverssonar, fyrrverandi sendibílstjóra. Árni Rúnar og Bryndís Ísfold eiga ennfremur hálfsysturina Katrínu Björk Svavarsdóttur, f. 1972. Árni er í sambandi með Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur myndlistarkonu. Hann hefur lengi starfað sem tónlistarmaður, til dæmis í hjómsveitunum Hair- doctor og FM Belfast. Síðarnefnda sveitin hefur einmitt vakið mikla at- hygli fyrir nýjustu plötu sína, How to Make Friends, sem hefur hlotið góða dóma og prýddi innlenda popplista yfir bestu plötur ársins. BRYNDÍS ÍSFOLD HLÖÐVERSDÓTTIR Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir fæddist í Reykjavík 7. janúar 1977. Eiginmaður hennar er Torfi Frans Ólafsson, framleiðslustjóri Eve Online hjá CCP. Saman eiga þau soninn Konráð Bjart, f. 2006. Bryndís starfar sem varaborgarfulltrúi fyrir Samfylkinguna í Reykjavík og er ennfremur nemi við Háskóla Íslands. Hún starfaði um tíma í fjölmiðlum og er nú bloggari á Eyjunni, brynd- isisfold.eyjan.is. Hún hefur lengi starf- að að stjórnmálum og var m.a. formað- ur Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík og varaformaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar. ÁRNI HAUKUR HLÖÐVERSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.