Morgunblaðið - 18.01.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.01.2009, Blaðsíða 32
32 Kreppan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 Þ etta hefur liðið ótrúlega hratt,“ segir Geir H. Haarde forsætisráðherra í upphafi samtals um þá rúmu 100 daga sem liðnir eru frá setningu neyðarlaganna. Það mikilvægasta í upphafi þess tíma segir Geir vera að tekist hafi að bjarga innlenda bankakerfinu. ,,Ef ekki hefði verið gripið til þessara neyð- arlaga og ákveðinna ráðstafana í kjölfarið hefði verið hætta á því að innlenda bankakerfið færi sömu leið og aðrir hlutar bankanna. Sem betur er hér núna starfhæft bankakerfi, að vísu ekki eins öflugt og það þyrfti að vera, en markvisst er unnið að því að það standi sig stöðugt betur í því að þjóna einstaklingum og fyrirtækjum,“ segir Geir og heldur áfram. „Síðan höfum við glímt við hinar þjóðhagslegu afleiðingar af þessu mikla hruni. Áhrifin eru bæði innlend og erlend. Það er gríðarleg efnahagskreppa í lönd- unum í kringum okkur þó að það komi ekki allt- af fram í umræðum hér og fréttum. Mörg lönd eru að glíma við svipuð vandamál og við þó að þau séu hlutfallslega af annarri stærðargráðu. Við náðum fljótlega samstarfi við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn sem reynist okkur mjög mik- ilvægt. Nú eru nokkur Evrópusambandsríki komin í slíkt samstarf líka en það er mikilvægt að hafa verið snemma á ferðinni í því ferli. Ég tel að við höfum komið okkar málum að því leyti í var, höfum tryggt okkur lánafyrirgreiðslu og tæknilega aðstoð við að hrinda í framkvæmd þeirri efnahagsáætlun sem er í gangi milli okk- ar og sjóðsins. Þetta var mjög mikilvægt.“ Geir segir það sömuleiðis hafa skipt miklu að hafa náð að klára fjárlagafrumvarpið, fjár- aukalagafrumvarpið og lög um ráðstafanir í ríkisfjármálum fyrir jólin. Með þessum aðgerð- um og öðrum sé búið að ljúka fyrsta fasa þess verkefnis að kljást við afleiðingar bankahruns- ins. Grípur Geir því næst til myndlíkingar. „Þegar þrjár stórar byggingar falla til jarðar gýs upp mikill reykmökkur sem menn sjá ekki út úr fyrst í stað. Þegar rykið sest og reykurinn hverfur fá menn betri yfirsýn. Ég tel að við séum fyrir nokkru komin inn í það ástand. Framundan er þá annar fasi sem er að byggja upp og endurreisa.“ Mistökin áreiðanlega einhver Forsætisráðherra segir að þjóðarbúið hafi orðið fyrir miklu áfalli. Þó ekki stærra en svo að þjóðartekjurnar minnka um það sem nemur hagvexti síðustu þriggja ára. Hægt sé að ná því til baka nokkuð hratt ef vel spilast úr málum. „Á meðan við erum að glíma við mestu erf- iðleikana er ljóst að áhrifin eru mikil á venju- legt fólk og fyrirtækin í landinu. Við sjáum nú meiri uppsagnir og atvinnuleysi en við eigum að venjast og aðrir neikvæðir þættir hafa slæm áhrif á afkomu í fyrirtækjarekstri. Ýmislegt annað er mun jákvæðara og við gerum okkur vonir um að verðbólga gangi hratt niður sem og vextirnir og þá muni starfsumhverfi bæði fyr- irtækja og einstaklinga batna til muna. Það er afar mikilvægt að við gerum allt sem við getum til að sem fæstir lendi á atvinnuleysisskrá og tryggja að þeir verði þar sem styst hver um sig.“ Eitt og annað er því að baki, segir forsætis- ráðherra. Búið sé að leggja grunn að ákveðinni uppbyggingu en mjög margt sé eftir. Geir segir stjórnvöld án efa hafa gert ýmis mistök frá því neyðarlögin voru sett fyrir hundrað dögum en telur engin þeirra hafa verið stóralvarleg. Hafa verði í huga að stjórnkerfið hafi aldrei áður staðið frammi fyrir sambærilegu verkefni. „Okkur hefur tekist að leysa vandamálin eitt af öðru en erfiðast er hvað þetta hefur verið margþætt. Við höfum þurft að glíma við mörg vandamál samtímis. Núna eru þessi mál varð- andi Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og hina þjóð- hagslegu stöðu í ákveðnum farvegi. Síðan eru skilanefndirnar að störfum við að gera upp gömlu bankana en vitað er að það mun taka mjög langan tíma. Eitt helsta verkefni nefnd- anna er að tryggja samstarf við skuldareig- endur og um leið er verið að byggja upp nýju bankana sem ný fyrirtæki.“ Icesave-deilan „ömurleg“ Deilan um Icesave-reikningana hefur senni- lega valdið stjórnvöldum hvað mestum vanda á síðustu mánuðum. Sem kunnugt er brugðust bresk yfirvöld afar harkalega við stöðunni og bæði stjórnvöld og bankarnir hafa íhugað mál á hendur Bretum. Gamla Kaupþing hefur ákveð- ið að höfða mál vegna aðgerða breska fjármála- eftirlitsins gagnvart Kaupthing Singer & Friedlander en lögfróðir menn ráðlögðu stjórn- völdum að fara ekki svo langt vegna beitingar ákvæða hryðjuverkalaga gegn íslenskum hags- munum. Geir segir þá niðurstöðu hafa verið vonbrigði en ríkið sé að skoða hvaða aðra möguleika það hefur. Samningar í Icesave- deilunni hafa enn ekki verið frágengnir. „Við þurfum að gæta hagsmuna Íslands en það liggur fyrir að við erum króuð af í þeim efn- um og eigum okkur ekki bandamenn meðal annarra þjóða um túlkun á þeim evrópsku reglum sem við höfum undirgengist. Það virðist vera breið samstaða um það meðal Evr- ópuþjóða, m.a. á Norðurlöndum, að þetta mál verði að klára,“ segir Geir og vonast til að samningar takist. Greinilegt er á honum að Ice- save-deilan er farin að reyna á þolrifin. „Þetta er eitthvert ömurlegasta mál sem við stjórnmálamenn höfum fengið í fangið og er ekki búið til með pólitískum ákvörðunum. Ice- save verður til úti á markaðnum en það fellur í hlut ríkisins að leysa málið. Aðalatriðið er að búa þannig um hnútana að eignir Landsbank- ans geti dekkað þennan kostnað. Um það er mikil óvissa og getur tekið nokkur ár að komast til botns í því, eftir því sem tekst að selja eignir bankans fyrir sannvirði. Þess vegna er mik- ilvægt að við semjum um að fyrstu árin verði afborganalaus. Við þessar aðstæður er mik- ilvægt að vera ekki knúinn til að selja eignir bankans. Verkefni skilanefndanna er að fá eins mikil verðmæti út úr gömlu bönkunum og nokkur kostur er,“ segir Geir. Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir að ferli vaxta- Betri yfirsýn þegar  GEIR H. HAARDE FORSÆTISRÁÐHERRA SEGIR AÐ TEKIST HAFI AÐ KOMA ÍSLANDI Í VAR EN ERF- IÐIR TÍMAR SÉU FRAMUNDAN  SEGIR ICESAVE- DEILUNA EITT HIÐ „ÖMURLEGASTA MÁL“ SEM STJÓRNMÁLAMENN HAFI FENGIÐ Í HENDUR Hundrað dagar Mikið hefur mætt á Geir H. Haarde fors Morgunblaðið/Kristinn 24. október Paul Thomsen (t.h.) kynnir að- gerðaáætlun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, IMF. Morgunblaðið/Kristinn 28. október Davíð Oddsson seðlabankastjóri kynnir hækkun stýrivaxta úr 12% upp í 18%. Morgunblaðið/Ómar 9. nóvember Fáni Bónuss dreginn að húni á Alþingishúsinu. Fánamaðurinn var gómaður. Morgunblaðið/Ómar 14. nóvember Geir og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir kynna efnahagsáætlun stjórnvalda. Morgunblaðið/RAX 18. nóvember Mótmælin héldu áfram á Aust- urvelli að frumkvæði Harðar Torfasonar. Morgunblaðið/Golli 24. nóvember Flestir ráðherrar létu sjá sig á fjölsóttum borgarafundi í Háskólabíói. Morgunblaðið/Árni Sæberg 1. desember Hörð mótmæli í anddyri Seðla- bankans þar sem hrópað var: Davíð burt! línum um hvaða fjármagn verður hægt að fá, hvaða fyrirtækjum verður haldið á floti og hvernig tekið verður á fjármálum heimilanna. Sóknarfæri í útflutningi „Síðan er margt sem Íslendingar ráða í raun- inni ekki við. Það ríkir alþjóðleg fjármálakreppa og hún gæti haft veruleg áhrif hér á landi, og því miður til hins verra, ofan á allt sem þegar hefur gerst. Ef útflutningsatvinnuvegirnir lenda í vandræðum torveldar það og seinkar allri upp- byggingu hér á landi. Við höfum helst sókn- arfæri í útflutningi þar sem innlend eftirspurn dregst verulega saman, og verður í raun að gera það. Við ættum að hafa þessi sóknarfæri vegna falls á genginu. En það er óvissa um hvernig ára mun á útflutningsmörkuðum.“ Töluverð verðlækkun hefur orðið á áli og fiski en á móti bendir Gylfi á að verð á innfluttum vörum eins og olíu og bensíni hafi lækkað. Óvissan sé engu að síðar til staðar, ekki síst hvernig hægt verður að fjármagna útflutning. Kaupendur erlendis séu einnig í fjárþröng. Gylfi telur jafnframt nauðsynlegt að vinna Gylfi nefnir nokkur mál sem eru óleyst á þessum tíma síðan neyðarlögin voru sett. Lítið sé búið að gera í þeirri staðreynd að stór hluti fyrirtækja landsins sé með mjög slæma lausa- fjárstöðu og jafnvel neikvæða eiginfjárstöðu. Hið sama megi segja um fjölmörg heimili. Stjórnvöld hafa þurft að glíma við hvern vandann á fætur öðrum og ekki séð mikið til sól- ar. Gylfi telur það geta verið gilda afsökun fyrir því að hafa ekki náð að leysa öll mál. „Fljótlega þarf að koma með einhverja trú- verðuga áætlun um hvernig eigi að bregðast við, þannig að þeir sem eru í vandræðum sjái hvað er framundan og geti unnið úr sínum málum í samræmi við það. Þegar svona mörg fyrirtæki eru í vandræðum þá þorir í raun enginn að gera neitt. Allir eru að hugsa um að halda sér á floti og taka enga áhættu. Við þær aðstæður verður ekki mikil uppbygging. Stofnun nýrra fyr- irtækja er eitt af því sem þarf að gerast til að allt það fólk sem missir vinnuna út af gjald- þrotum og samdrætti geti fengið vinnu aftur.“ Til að atvinnuleysi verði ekki til langs tíma kallar Gylfi eftir frekari aðgerðum og skýrum G ylfi Magnússon, dósent í hag- fræði við Háskóla Íslands, var meðal þeirra sem vöruðu við hruni bankanna. Hann segir nokkur atriði standa upp úr í því sem búið sé að gera. Í fyrsta lagi stofnun nýrra banka á rústum þeirra gömlu. Bráðnauðsynlegt hafi verið að halda greiðslumiðlun og lágmarks- bankaþjónustu gangandi en nýju bankarnir séu reyndar ekki mjög burðugir. Í öðru lagi nefnir hann stuðning Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og samninga sem gerðir voru við erlenda seðla- banka í tengslum við aðkomu sjóðsins. Það hafi verið mikilvægt og bráðnauðsynlegt skref. „Það er búið að berja saman einhver fjárlög fyrir þetta ár, sem eru líklega eins þokkaleg og hægt er að óska eftir. Hallinn á ríkissjóði er mikill en það hefði gert dýfuna enn skarpari ef reynt hefði verið að skila hallaminni eða jafnvel hallalausum fjárlögum. Þó er ljóst að enn á eftir að ganga mikið á í ríkisfjármálum á næstu ár- um, bæði vegna þess að koma þarf rekstrinum nálægt núllinu á 2-3 árum og síðan eru óhemju skuldir sem greiða þarf af.“ Skipta út þeim sem sig  GYLFI MAGNÚSSON, DÓSENT Í HAGFRÆÐI, SEGIR FLEIRI SLÆMAR FRÉTTIR FRAMUNDAN  LITLAR LÍKUR SÉU ÞÓ Á ÖÐRU BANKAHRUNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.