Morgunblaðið - 18.01.2009, Side 23

Morgunblaðið - 18.01.2009, Side 23
Morgunblaðið/Golli 23 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 Bryndís Ísfold: „Árni var alltaf ofsa- lega afslappaður og kátur og með þægilega nærveru. Hann var yngsta barn og var því ekki jafn mikið beðinn um að vaska upp! Við systurnar höfð- um allavega stundum orð á því. Þó svo að hann sé félagslyndur og eigi góða vini hefur hann alltaf verið mikill grúskari. Hann var stundum tvo, þrjá tíma að rífa hluti í sundur, tölvur og ýmis tæki. Tók hljómborðið í sundur Ég gaf honum einu sinni hljómborð sem ég hafði fengið í jólagjöf árið áð- ur. Hann sýndi því svo mikinn áhuga og mér fannst ég voðalega góð systir. Síðar um daginn kom ég að honum kampakátum inni í herbergi, þar sem hann var búinn að taka hljómborðið í sundur niður í frumeindir! Hann skildi ekki af hverju ég var svona miður mín. Hann var mikið í því að skrúfa í sundur og setja aftur saman, reyndar veit ég nú ekki hvort hljóm- borðið hefur nokkurn tímann ratað saman aftur. Þetta var þegar Árni var svona sjö ára gamall. Hann er mjög fær í allri tækni og er búinn að búa til allskyns forrit sem hann notar í tónlistinni í dag. Hann er bæði fær að forrita og líka fær í þessu vélræna þó hann sé ekki menntaður í því. Alveg frá því að hann var lítill var hann að taka hluti í sundur og setja þá aftur saman, og þá oft á nýjan hátt. Árni hefur aldrei farið þessa hefð- bundnu leið að hlutunum. Við ólumst upp í tiltölulega íhaldssömu umhverfi og allir fóru fremur hefðbundnar leið- ir en þegar vinir hans fóru í mennta- skóla stofnaði hann tölvufyrirtæki! Ég held hann hafi ekki einu sinni ver- ið orðinn lögráða þegar hann stofnaði það. Hann var alltaf á þessari braut, að forrita og búa til heimasíður og einhver kerfi. Hann var undrabarn á þessu sviði. Hann vissi alveg hvað hann var að gera og það dugði honum alveg þó aðrir væru mikið að spyrja hann út úr um fyrirætlanir hans. Ef honum er heitt í hamsi er hann tilbúinn að vinna fram á nótt eða á sunnudegi ef því er að skipta. Hann hefur sýn á það sem hann vill gera og framkvæmir hana. Hann er skapandi og einlægur í sköpun sinni. Það er gaman að vera í kringum þannig fólk. Jafningjar og traust fjöl- skyldubönd Okkar vinasamband varð strax mjög náið þegar foreldrar okkar skildu en þá var Árni aðeins 10 ára gamall. Svo þegar mamma dó upplifði ég mikla ábyrgðarkennd gagnvart honum, en hann var þá 17 en ég 22 ára. Eftir þetta hefur setningin: „Þú ert ekki mamma mín“ komið nokkr- um sinnum fyrir. En vina- og fjöl- skylduböndin treystust mjög þarna. Seinna meir höfum við orðið meiri jafningjar og miklu meiri stoð og stytta hvort annars. Hann hefur reynst mér mjög góður vinur. Við höfum góðan skilning hvort á öðru. Ef ég er eitthvað óhress finnst mér gott að vera í kringum hann. Ég verð líka að taka fram að ég er ákaflega ánægð með það að hann hef- ur valið sér alveg frábæra kærustu. Mér þykir það tvímælalaust einn af hans kostum! Fordómalaus og greiðvikinn Árni er rólegur og yfirvegaður og ég hef aldrei orðið vör við að hann líti niður á neinn. Hann er ekkert í því að flokka fólk heldur tekur hverjum og einum eins og hann er. Hann er svo fordómalaus. Hann er líka greiðvik- inn og er tilbúinn að leggja sitthvað á sig fyrir aðra án þess að ætlast til þess að fá eitthvað í staðinn. Samskipti okkar eru ekki mjög formföst. Ég heyri samt í honum næstum því á hverjum degi. Við för- um oft á kaffihús eða borðum saman. Samskiptin eru afslöppuð og það þarf ekki að vera neitt sérstakt tilefni til þess að við hittumst. Stundum förum við í sund saman á morgnana ef við erum bæði vöknuð snemma. Það er mjög sterkur þráður á milli okkar. Fyrir mér er hann líka góður speg- ill á pólitíkina. Við erum með sömu grunngildi en erum ekki alltaf sam- mála. Við ræðum stjórnmál frekar mikið og þá til dæmis einhverjar ákvarðanir sem ég stend frammi fyr- ir. Ég er stolt af honum. Það er mjög gaman að heyra lag með honum í út- varpinu og svo hafði vinur minn í Hol- landi samband og sagðist hafa heyrt lag með hljómsveitinni í útvarpi í Austurríki! Það er gaman að hann hafi fengið viðurkenningu á því sem hann er búinn að vera að gera.“ Fordómalaus tækjagaur ‘‘ÁRNI ER RÓLEGUR OGYFIRVEGAÐUR OG ÉGHEF ALDREI ORÐIÐ VÖRVIÐ AÐ HANN LÍTI NIÐ- UR Á NEINN.                                                                            !" #  %  &                 '   (            )*   +   , $ - ,   #               ! "  # $#%&&  "  . +         '  ///"  " " "    # '(&& Finnsk-íslenska viðskiptaráðið 0 - ' 1 2 # 3 1 )     4 3 5 3 6 7 & 5 . 8 ) * + , * - .  / - ( SK AP AR IN N AU GL ÝS IN GA ST OF A

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.