Morgunblaðið - 18.01.2009, Síða 20

Morgunblaðið - 18.01.2009, Síða 20
20 Leikhús MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is A nna Kristín Arngríms- dóttir fagnar fjörutíu ára leikafmæli um þessar mundir og leik- ur eitt aðalhlutverkið í leikritinu Heiður sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu 24. janúar. Leikritið fjallar um hjónabandið, ástina og ábyrgð einstaklinga á eigin hamingju. „Þetta er í rauninni þroskasaga,“ segir Anna Kristín. „Hjónin í leikritinu hafa verið gift í rúm þrjátíu ár og svo bankar þriðji aðilinn upp á og lífið skekkist. Langt hjónaband merkir ekki endilega full- komið hjónaband. Það er mikil glíma og skylmingar að vera með annarri manneskju því nóg er nú glíman við eigið sjálf. Þetta leikrit fjallar um þessa glímu og fólk sem þarf að end- urskoða líf sitt og endurmeta hlut- ina.“ Auk Önnu Kristínar leika í verkinu Arnar Jónsson, María Ell- ingsen og Sólveig Arnarsdóttir. Leikstjóri er Bjarni Haukur Þórs- son. „Ég ætla að verða leikkona“ Anna Kristín hefur leikið ótal hlutverk og afar fjölbreytt á löngum og farsælum ferli. Löngun hennar til að verða leikkona vaknaði strax á barnsaldri. „Það var blómlegt leik- listarlíf á Dalvík þar sem ég ólst upp. Við krakkarnir fórum á hverja einustu leiksýningu rétt eins og full- orðna fólkið. Fyrsta minning mín er sminklyktin af frænda mínum sem var áhugaleikari. Við systkinin, sem erum átta, vorum með leiksýningar í kjallaranum heima og buðum gest- um. Ég man eftir því að hafa staðið í kjallaratröppunum og sagt mjög virðulega við skólabróður minn sem hafði brotist að húsinu í blindbyl til að komast á leiksýningu: „Því miður, það er búið að aflýsa!“ Þegar ég var níu ára var ég beðin um að leika gamla konu í skóla- leikriti um Gilitrutt. Ég var yngst í leikhópnum. Skólastjórinn tók mynd af mér í hlutverkinu og gaf mér. Ég fór roggin heim með myndina mína og gekk inn í stofuna. Það voru frostrósir á glugganum. Ég skrifaði á glerið: „Ég ætla að verða leik- kona“. Á þessari stundu var ég búin að skuldbinda mig. Ég vissi hvað ég vildi.“ Ekki hægt að skapa án einlægni Anna Kristín lauk prófi frá Leik- listarskóla LR árið 1968. Rétt áður en hún útskrifaðist bauðst henni hlutverk í sjónvarpsleikritinu Romm handa Rósalind eftir Jökul Jakobsson. „Gísli Halldórsson var einn af kennurum mínum í leiklist- arskólanum. Hann bauð mér hlut- verkið og þegar ég gekk Tjarnargöt- una, þar sem skólinn var til húsa, og vestur í bæ, þar sem ég bjó, þá treindi ég hvert spor og hélt þétt ut- an um handritið sem var í brúnum poka. Þegar ég kom heim gerði ég mig fína, læsti að mér, kveikti á kertum og byrjaði að lesa.“ Romm handa Rósalind var fyrsta íslenska leikritið sem var sér- staklega sett upp fyrir sjónvarp. Verkið gerist á verkstæði þar sem gamall skósmiður staupar sig á rommi og gefur Rósalind, fatlaðri stúlku sem býr í nágrenninu, með sér meðan þau ræða um líf sitt. „Í huganum er þessi tími umvafinn ljóma og jafnskýr og gærdagurinn,“ segir Anna Kristín um vinnuferlið. „Þetta var ómetanleg reynsla fyrir unga leikkonu. Gísli var strangur og agaður leikstjóri og Þorsteinn Ö. Stephensen, sem var aðalleikari sýningarinnar, leiðbeindi mér á sinn nærgætna hátt. Þarna lærði ég að það er ekki hægt að skapa neitt án einlægni. Maður þarf sömuleiðis að hafa aga og ástríðu, en ástríðan skiptir miklu máli því að hún er hvati til allra verka.“ Árið 1968 hóf Anna Kristín störf hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þar lék hún meðal annars Ástu í Skugga- Sveini, Kathy í Hitabylgju og Láru í Kertaljósi. Árið 1973 réðst hún til Þjóðleikhússins og hefur starfað þar síðan. Meðal hlutverka hennar þar eru Regan í Lé konungi, Kassandra í Óresteiu, Jelena í Kæra Jelena, Írena í Mávinum, frú Bastían í Kardimommubænum og Sunneva í Tröllakirkju. „Eitt af því sem til þarf við að skapa trúverðuga persónu á sviði er að sagan sem sögð er með leikritinu sé góð. Það eru ekki alltaf stóru hlutverkin sem hafa veitt mér mesta gleði eða fullnægju. Það er allur gangur á því, það fer eftir eðli sýningar, hvernig sýningin verður til og hversu mikil sköpun er í gangi.“ Að standa með sinni manneskju Spurð um eftirlætishlutverk segir hún: „Margir hafa svarað því til að það sé alltaf hlutverkið sem maður sé að leika hverju sinni en það er ekki alltaf þannig. Mér hefur gengið misjafnlega að kynnast manneskj- unni sem ég á að leika, átta mig á bakgrunni hennar og standa með henni til að geta gert hana trúverð- uga. Leikarinn verður alltaf að standa með sinni manneskju hver sem hún er, það skiptir ekki máli hvort hún er góð eða vond og maður verður að fylgja henni alla leið. Þeg- ar maður er að skapa vakna enda- lausar spurningar og stundum finn- ur maður mikinn fjársjóð. Að vera leikari í langan tíma er eins og að vera á stöðugu ferðalagi. Vegurinn er stundum holóttur og það gengur á ýmsu en ástríðan og lífskrafturinn rekur mann áfram og ef maður hrasar þá stendur maður upp. Verkfæri mitt er ég sjálf. Ég þarf að nota líkama minn, rödd og sál. En Morgunblaðið/Ómar Anna Kristín Arngrímsdóttir „Leikarinn verður alltaf að standa með sinni manneskju hver sem hún er, það skiptir ekki máli hvort hún er góð eða vond og maður verður að fylgja henni alla leið.“ Fedra Í hlutverki Önónu í Fedru eftir Jean Racine árið 1999.Ruplum og rænum Í hlutverki sjóræningja í Snædrottningunni 1994. Með á myndinni er Randver Þorláksson. ‘‘EITT AF ÞVÍ SEM TILÞARF VIÐ AÐ SKAPATRÚVERÐUGA PERSÓNUÁ SVIÐI ER AÐ SAGAN SEM SÖGÐ ER MEÐ LEIKRITINU SÉ GÓÐ Verkfæri mitt er ég sjálf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.