Morgunblaðið - 18.01.2009, Síða 34

Morgunblaðið - 18.01.2009, Síða 34
Innfæddir hafa átt undir högg að sækja í ensku úrvalsdeildinni undanfarinmisseri og á síðasta ári staðfestu kannanir að einungis 35% allra spark- enda í deildinni voru gjaldgengir í enska landsliðið. Ekkert lið hefur unnið af jafnmiklum þrótti gegn þessari þróun og Aston Villa og sé aðalliðshópur félagsins á þessum vetri skoðaður kemur í ljós að 62,5% leikmanna eru ensk, fimmtán af 24. Það sem meira er þessir menn skila sér í ríkum mæli inn í byrjunarliðið. Í sigrinum á WBA um síðustu helgi byrj- uðu hvorki fleiri né færri en átta Eng- lendingar inná. Aðeins Daninn Martin Laursen, Bandaríkjamaðurinn Brad Frie- del og Búlgarinn Stiliyan Petrov stungu í stúf. Þess má þó geta að Norðmað- urinn John Carew og Hollending- urinn Wilfred Bouma voru fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Raunar er merkilegt uppgjör í aðsigi en flest bendir til þess að baráttan um fjórða og síðasta lausa sætið í Meistaradeild Evrópu á næstu sparktíð muni standa á milli Aston Villa og Arsenal sem hefur um árabil verið á hinum enda mælikvarðans. Þar er Theo Walcott eini Englendingurinn sem leikur að staðaldri. 34 Knattspyrna MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is É g ætla að verða knatt- spyrnumaður.“ „En ef það gengur ekki?“ „Það mun ganga. Mig langar ekki að gera neitt annað.“ „En þú verður að vera raunsær, Ashley. Það hlýtur eitthvað fleira að höfða til þín?“ „Nei, ekkert. Ég ætla að verða knattspyrnumaður.“ Þannig svaraði Ashley Young ráð- gjafa nokkrum sem skólayfirvöld í bænum Stevenage í Hertfordskíri höfðu skikkað hann til að hitta þegar hann var sextán ára. Líkast til hafa þau óttast að ungi maðurinn væri bú- inn að týna sér í draumnum, ekki síst í ljósi þess að ungmennaakademían hjá Watford, þar sem hann hafði æft, var rétt búin að vísa honum frá. En Young var viss í sinni sök. Hann spýtti bara í lófana og linnti ekki látum fyrr en Watford tók við honum á nýjan leik, tæpu ári síðar. Og nú var ekki um ungliðasamning að ræða heldur fullgildan atvinnusamn- ing. Slíkar höfðu framfarirnar orðið. Seldur fyrir metfé Þar á bæ áttu menn ekki eftir að iðrast þeirrar ákvörðunar því tæpum fimm árum síðar – í janúar 2007 – varð Young dýrasti leikmaðurinn sem seldur hefur verið frá Watford þegar Aston Villa borgaði 9,6 millj- ónir sterlingspunda fyrir þjónustu hans. Dýrasti leikmaðurinn til að yf- irgefa Watford fram að því var Paul Furlong sem Chelsea keypti á 2,3 m.p. vorið 1994. Young er jafnframt dýrasti maðurinn sem Villa hefur nokkurn tíma fest kaup á. Þetta hefur verið einbeittur ár- gangur í barnaskólanum í Stevenage því á næsta borði við Young sat eng- inn annar en ríkjandi heimsmeistari í kappakstri, Lewis Hamilton. Léku þeir saman knattspyrnu með skóla- liðinu. „Hann var þokkalegur leik- maður,“ rifjaði Young upp í samtali við breska dagblaðið The Independ- ent nýverið. En þegar gengið var á hann eyddi Young umræðunni. „Ég nenni ekki að tala um þetta. Hann gerir sitt og ég geri mitt.“ Svo mörg voru þau orð. Þau geta verið stór, íþróttaegóin. Young ræðir fjálglega um ástríðu sína í viðtalinu. „Frá því ég gekk til liðs við Stevenage Colts, fimm ára gamall, langaði mig ekki að gera neitt annað en spila fótbolta. Ég sparkaði í allt sem á vegi mínum varð, steina, dósir, bræður mína,“ rifjar hann upp skríkjandi. Ian Wright var fyrirmyndin Young fæddist 9. júlí 1985. Móðir hans er ensk en faðirinn frá Jamaíka. Hann er næstelstur fjögurra bræðra og tveir þeir yngri freista þess nú að feta í fótspor hans, Lewis, sem þegar er kominn í aðalliðshóp Watford, og Kyle sem einnig er á mála hjá liðinu hans Eltons Johns. En það var samt annað og stærra Lundúnafélag sem heillaði þá bræður alla í upphafi – Arsenal. „Pabbi er Tottenham-aðdáandi en við bræð- urnir fylgdum allir Arsenal að mál- um. Hetjan mín og fyrirmynd utan vallar sem innan var Ian Wright enda lék ég sem framherji upp alla yngri flokkana.“ Spurður hvort hann hafi ennþá taugar til Arsenal svarar Young neit- andi. „Maður víkur slíkum tilfinn- ingum til hliðar þegar maður skrifar undir sinn fyrsta atvinnusamning. Arsenal er eins og hvert annað lið. Ég viðurkenni þó að mér þykir skemmti- legast að spila á Emirates-leikvang- inum og Old Trafford.“ Það er einmitt á síðarnefnda vell- inum sem Young glímir við sinn erf- iðasta andstæðing til þessa, Wes Brown. „Ég spilaði þrisvar á móti honum í fyrra og komst ekkert áleið- is. Hann les leikinn vel.“ Skoraði í sínum fyrsta leik Young lék sinn fyrsta leik fyrir Watford átján ára – og skoraði. Það var þó ekki fyrr en veturinn 2005-06 að hann lét til sín taka fyrir alvöru, þegar félagið vann sér sæti í úrvals- deildinni undir stjórn Aidys Boothro- yds. „Hann gaf mér leyfi til að fara út á völl og njóta mín. Aidy hefur sömu maður-á-mann-hæfileikana og Mart- in O’Neill. Þeir kunna báðir á leik- menn sína og fylla þá sjálfstrausti.“ Watford-liðið virkaði ekki í efstu deild en það breytti ekki því að í jan- úarglugganum fyrir tveimur árum biðu félög í röðum eftir því að kaupa Young. West Ham bauð vel og Wat- ford samþykkti fyrir sitt leyti. En Yo- ung var ekki spenntur fyrir þeim skiptum enda Íslendingaliðið í afleitri stöðu í deildinni um þær mundir. Þá kom Villa inn í myndina. Young byrjaði rólega í miðlönd- unum enda þótt hann skoraði strax í sínum fyrsta leik. Það var ekki fyrr en Martin O’Neill færði hann út á vinstri vænginn að hann fór á flug. Hraði hans, tækni og sendingahæfni njóta sín til fulls þar og það er engin tilviljun að Young lagði upp næstflest mörk allra leikmanna í úrvalsdeild- inni á liðinni leiktíð, sautján að tölu. Aðeins Cesc Fàbregas hjá Arsenal var honum fremri. Young er líka að færa sig upp á skaftið í markaskorun. Í fyrra skor- aði hann átta mörk en hefur þegar gert sjö á yfirstandandi sparktíð. Myndi stökkva á fjórða sætið Síðastliðið vor var kappinn valinn í úrvalslið vetrarins, annar tveggja leikmanna sem ekki komu frá topp- liðunum fjórum. Hinn var David James, markvörður Portsmouth. Yo- ung hefur í þrígang verið valinn leik- maður mánaðarins í úrvalsdeildinni. Síðast nú í desember, svo sem gert var heyrinkunnugt á föstudag. Framganga hans hefur ekki farið framhjá stórveldunum í spark- heimum og Real Madrid sýndi kapp- anum áhuga fyrir skemmstu. Þess má þó geta að Young skrifaði í nóv- ember undir nýjan fjögurra ára samning við Villa og sýnir ekki á sér neitt fararsnið. Aston Villa hefur eflst verulega undir stjórn O’Neills. Liðið hafnaði í sjötta sæti í fyrra og nú er ljóst að það ætlar sér að berjast um fjórða sætið sem gefur þátttökurétt í sjálfri Meistaradeild Evrópu næsta vetur. „Markmiðið er að gera betur en í fyrra og ef þú byðir mér fjórða sætið núna myndi ég líklega bíta af þér höndina,“ sagði Young galvaskur við The Independent. Gengi liðsins veltur ekki síst á frammistöðu hans sjálfs og miðherj- ans Gabriels Agbonlahors, sem eru óðum að hasla sér völl sem eitt æð- islegasta tvíeykið í ensku knattspyrn- unni. Paul Merson, fyrrverandi leik- maður Villa og Arsenal, segir þá félaga hafa gert liðið ákaflega skemmtilegt á að horfa. Þeir trylli lýðinn. „Það er unun að horfa á Gabby og Ashley. Mér er ljóst að knattspyrna er hópíþrótt en þeir eiga stóran þátt í því að liðið er í Meist- aradeildarsæti,“ sagði hann á dög- unum við vef félagsins. „Þeir hafa verið algjörlega frábær- ir. Þeir búa yfir svo miklum æsku- móði og hraða. Í mínum huga koma þeir báðir til álita sem leikmaður árs- ins í úrvalsdeildinni ef fram heldur sem horfir.“ Betri en Theo Walcott? Merson bætir því við að Young sé í sérflokki og að sínu áliti sé hann betri en Theo Walcott. „Ég skil ekki hvers vegna hann er ekki í enska landslið- inu.“ Fabio Capello landsliðseinvaldur hefur farið fögrum orðum um Young en virðist ekki treysta honum ennþá í slaginn. Það gerði hins vegar forveri hans, Steve McClaren, en frægt var þegar hann hringdi í Young haustið 2007 til að tilkynna honum að hann væri kominn í landsliðshópinn. Halló. Halló, er þetta Ashley? Jamm. Ashley, þetta er Steve McClaren. Ertu viss? Já, já, þetta er ég. Young roðnar enn þegar þetta símtal er rifjað upp. Ertu viss!!!? Alls hefur hann leikið fjóra leiki fyr- ir hönd þjóðar sinnar. Young kveðst hafa orð- ið fyrir vonbrigðum þegar hann var ekki valinn í hópinn fyrir leikina í undankeppni HM í haust en lætur það ekki slá sig út af lag- inu. „Ég hef engar áhyggjur af þessu. Leiki ég vel fyrir Aston Villa munu menn veita mér athygli.“ Reuters Sprækur Ashley Young hefur farið á kostum í liði Aston Villa. Hin tápmikla æska Ashley Young, hinn fjörlegi útherji Aston Villa, var fyrir helgi út- nefndur leikmaður mánaðarins í ensku úr- valsdeildinni í desem- ber en enginn hefur í annan tíma hlotið þann heiður í þrígang á sama almanaksárinu. Skjól innfæddra Enskir Steve Sidwell og Gabriel Agbon- lahor, leikmenn Aston Villa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.