Morgunblaðið - 18.01.2009, Page 36

Morgunblaðið - 18.01.2009, Page 36
36 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 www.solskinsdrengurinn.is Verkefnið er styrkt af H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA „Í þessari stórkostlegu mynd sjáum við hvernig þrautseigja, þolinmæði – og móðurást lyfta huliðshjálminum og opna dyr á vegg þar sem engar dyr virtust vera. Það er óhætt að hvetja alla til að gera sér ferð í kvikmyndahús til fundar við Sólskinsdrenginn. Það svíkur engan.“ – Eiður Guðnason sendiherra „Hittir beint í hjartastað.“ – Dóri DNA, DV 6. V ið lútum valdi, sem er algert, það getur enginn efað. Valdi, sem ræður alfarið, skilmálalaust. Við gætum steytt hnefana á móti nótt- inni, þegar hún nálgast, og heimtað að hún biði eða sneri aftur. Við gætum öskrað mótmælum upp á morgunbirt- una, ef við vildum hafa náttmyrkrið áfram. Í hvorugu tilviki værum við annað en viðundur í heimsku. Við mætum og þreifum á hljóðu en algeru valdi á hverju andartaki. Hvorki vit né vilji manns á neitt at- kvæði um hegðun þess og ráðstafanir. Og fær aldrei, gildir einu hversu langt og hátt maðurinn nær í vís- indum og tækni. Hvers eðlis er það hinsta vald, sem allt lýtur? Er það blint eða sjáandi, lifandi hugsun eða tiltekjur dauðra afla? Gæti verið hjartsláttur á bak við taktsláttinn, sem alheimsbáknið dansar eftir? Eða er þar ekki annað en tröllslega voldug véla- brögð líflausrar, ægilegrar tölvuskessu, sem hefur hannað sig sjálf og spýtir út úr sér með allslausum, dauðum svip þessari þrautskipulögðu milljarðamergð af hnöttum í geimnum? Og ekki síður þrautskipulagðri milljarðamergð af frumum í líkama okkar hvers og eins? Þær furðuverur, frumurnar, hafa það framyfir sól- ina og öll stjörnudjásnin, að þær eru lifandi. Og lífið í einni örveru er meira undur en heill hnött- ur, jafnvel sólkerfi eða vetrarbraut án lífs. Menn hafa verið að spyrja og vilja rannsaka, hvort einhver merki um líf séu finnanleg á Mars. Ef þar fyndist ein lifandi örvera þætti hún meira undur en all- ur dauðinn í og á þeim hnetti. Og frumurnar allar í líkama okkar – þær skipta tug- um milljarða í hverju okkar, segja vísindin (ég hef enga þeirra séð, þú víst ekki heldur!) – þær þreyta sinn dans við hljóðan taktslátt einhvers sprota. Hjartaslögin bergmála þann taktslátt. Frumurnar okkar lúta hver um sig og hver með ann- arri því valdboði að láta okkur lifa. Það er þeirra önn og iðja frá getnaðarstund til and- látsstundar. Vald líka þar, áþreifanlega nákomið og nærgöngult þér sem mér. Vald, sem lífið lýtur. Og dauðinn. Eða er það kannski sjálft ekki annað en dauðinn í blindum, náköldum leik við sjálfan sig? Morgunsólin milda og bjarta, Jesús Kristur, á og er svarið við því. Leit og svör Pistlar sr. Sigurbjörns Einarssonar, sem Morgun- blaðið birti á sunnudögum á síðasta ári, vöktu mikla ánægju meðal lesenda. Um það samdist, milli sr. Sigur- björns og Morgunblaðsins, að hann héldi áfram þess- um skrifum og hafði hann gengið frá nýjum skammti áður en hann lést. Sigurbjörn Einarsson » Við gætum steytt hnefana ámóti nóttinni, þegar hún nálg- ast, og heimtað að hún biði eða sneri aftur. Við gætum öskrað mótmælum upp á morgunbirtuna, ef við vildum hafa náttmyrkrið áfram. Í hvorugu tilviki værum við annað en viðundur í heimsku. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 var sam- þykkt í borgarstjórn í byrjun janúar. Áætl- unin var unnin á grundvelli aðgerða- áætlunar vegna efna- hagsástandsins, sem borgarfulltrúar allra flokka sameinuðust um í byrjun október. Í aðgerðaáætluninni er áhersla lögð á að standa vörð um grunnþjónustu borgarinnar, störf og verðskrár. Þær áherslur end- urspeglast í fjárhagsáætluninni sem hefur það að meginmarkmiði að tryggja umrædda þætti með ábyrgri fjármálastjórn, stöðugleika í rekstri og raunsæi í áætlanagerð. Reykjavíkurborg fer ekki, fremur en önnur sveitarfélög, varhluta af erfiðum efnahagsaðstæðum. Til marks um alvarleika stöðunnar má nefna að áætlað er að skatttekjur lækki um tæpan fimmtung að raun- virði milli áranna 2008 og 2009. Á sama tíma minnka tekjur borg- arinnar vegna sölu byggingarréttar og lóða, auk þess sem útgjöld vegna velferðarmála aukast verulega. Úr þessari stöðu er unnið með aðhaldi, sparnaði og hagræðingu í þágu al- mannahagsmuna. Fjárhagsáætlunin er lögð fram án halla og án skatta- hækkana. Þetta er mikilvægt og í samræmi við fyrirheit um að leita allra leiða til að fjármagna rekstur grunnþjónustunnar án þess að leggja frekari álögur á borgarbúa. Hallarekstur myndi einnig með óvið- unandi hætti rýra lausafjárstöðuna og skerða þannig lánstraust borg- arinnar og fyrirtækja hennar. Með þessum áherslum og sam- stilltu átaki stjórnenda, starfsmanna og borgarfulltrúa verður staðinn vörður um grunnþjónustuna með því að hagræða verulega í stjórnsýsl- unni og alls staðar þar sem því verð- ur við komið. Þetta verður meðal annars gert með því að endurskoða öll rekstrarútgjöld, stórfelldu að- haldi í innkaupum, endurskoðun samninga og með því að draga úr styrkveitingum. Laun borgarfull- trúa og æðstu stjórnenda verða lækkuð og kostnaður vegna yf- irvinnu verður endurskoðaður sam- hliða því sem dregið verður úr ný- ráðningum. Þá stefnir Reykjavíkurborg að lántöku til að fjármagna mannaflsfrekar fram- kvæmdir og axla þannig ábyrgð til að viðhalda atvinnustigi en slík lán- taka er auðvitað háð því að ásætt- anleg lánakjör fáist. Í stuttu máli sýnir fjárhagsáætlun fyrir árið 2009 fram á ábyrgð, árang- ur og framsýni í rekstri Reykjavík- urborgar. Sá árangur er ekki síst því að þakka hversu farsællega var stað- ið að undirbúningi áætlunarinnar. Öll borgarstjórn Reykjavíkur hefur verið samstiga í að standa við þessar aðstæður vörð um grunnþjónustuna og það sem mestu skiptir fyrir íbúa. Sú áhersla hefur krafist þátttöku allra borgarfulltrúa þar sem meiri- hluti og minnihluti hafa lagt til hliðar hefðbundinn ágreining og sameinað krafta sína í þágu borgarbúa. Við erum mjög stolt af þessum vinnubrögðum, teljum þau hafa skil- að miklum árangri og vonum að þau séu komin til að vera á vettvangi borgarstjórnar. Með sameinuðu átaki munum við tryggja að Reykja- vík verði áfram borg tækifæra, vel- ferðar og lífsgæða. Forgangsraðað í þágu þess sem mestu skiptir Hanna Birna Krist- jánsdóttir og Óskar Bergsson skrifa um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar » Öll borgarstjórn Reykjavíkur hefur verið samstiga í að standa við þessar að- stæður vörð um grunn- þjónustuna og það sem mestu skiptir fyrir íbúa. Hanna Birna Kristjánsdóttir Höfundar eru borgarstjóri og formaður borgarráðs. Óskar Bergsson Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.