Morgunblaðið - 18.01.2009, Qupperneq 50
Tækið sem sló í gegn vestan
hafs á síðasta ára slær í gegn
hér á þessu: vasavídeóvél. Víst
eru allir með farsíma með
myndavél og ótalmargir með
stafrænar myndavélar líka í
vasanum, en vasavíedóvél er
annað og meira; miklu meiri gæði og
einfaldari í notkun – svippa upp vélinni, smella
fingri á einn takka og síðan er stungið í samband til
að senda myndskeiðið á YouTube, í tölvupósti eða
hvaðeina. Leggið Flip, Vado og Zx1 á minnið.
Svo er um að gera að fara að taka góðærisgræj-
urnar, sem þú varðst að kaupa eins og hinir, upp úr
kössunum og komast að því hvernig þær
virka. Dósaopnara og saumavél væri líka
skynsamlegt að eiga.
50 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009
Arnar Tómasson, hárgreiðslumaður hjá Salon Reykjavík; Nína Björk Gunnarsdóttir,
ljósmyndari og stílisti; Nadia Banine úr Innlit/útlit og Árni Matthíasson blaðamaður.
Álitsgjafar
Hvað verður í tísku 2009?
Hvert ár á sína tískustrauma og verður 2009 engin undantekning á því. Ingveldur
Geirsdóttir spáði og spekúleraði í því sem straumarnir munu færa okkur á nýhöfnu
ári með hjálp valinkunnra karla og kvenna.
„Sítt hár,“ segir einn,
„stutt hár mun ryðja
sér til rúms í æ ríkara
mæli,“ segir annar,
„hártískan er fjöl-
breytt,“ segir sá
þriðji og hefur lík-
lega réttast fyrir sér.
Hársérfræðingar
segja Londontískuna
vera með skarpar útlínur á
meðan Parísartískan sé með
mýkri og léttari klippingar, en það sem er þeim
sameiginlegt er að toppar eru ráðandi í klippingum,
sama hvort þær eru síðar eða stuttar.
Sem hárfyrirmyndir eru fyrirsætan Agyness
Deyn og leikkonan Katie Holmes nefndar á nafn.
Mikil fylling má sjást í síðu hári, líka krullur og liðir í
anda sjötta áratugarins.
Vinsælustu hárlitirnir heita eftir kaffidrykkjum,
kökukremum og málmtegundum. Mikilvægast er
samt að vera með glansandi
og heilbrigt hár með
miklum gljáa, það spilar
líka stóra rullu að nota
hárvörur rétt til að ná
fram réttu útliti.
Andlitsfarðinn á
að vera mjúkur og
enn eitt árið eiga
konur að vera þann-
ig málaðar að þær líti
ekki út fyrir að vera
það … bömmer.
Hár og förðun
Ekki þarf að skipta út fataskápnum þetta árið því tískan er fjöl-
breytt sem fyrr þótt ákveðnar línur verði meira áberandi en aðrar.
Andi sjötta áratugarins svífur nú yfir vötnum sem
þýðir að konur eiga að vera kvenlegar og
töfrandi. Aðsniðin pils, kvenlegar blússur,
hnepptar peysur, klæðskerasniðnir jakkar,
víðar buxur og buxur niðurmjóar að ökkla
sáust mikið á tískupöllunum fyrir fyrrihluta
ársins. Með sumrinu léttast línurnar, efnin verða léttari; fljótandi og
gegnsæ. Háglansefni eru móðins og málmlitir auk þess sem perlusaumur
og slaufur hafa sést sem skraut á fatnaði.
Í fylgihlutunum eru skartgripir risastórir, æði sem byrjaði á seinasta
ári en verður tekið enn lengra núna. Töskur halda líka áfram að vera
stórar og glannalegri skór en fyrr tröllríða öllu, 20 cm hælar þykja víst
lítið mál. Flottir hattar mega líka fara að sjást meira.
Annars verður hver og einn að muna að klassísk föt sem fara þeim
sem klæðist þeim vel eru alltaf í tísku.
Föt og fylgihlutir
Í mat eru litlir snobbskammtar með framandi hráefni dottnir úr tísku. Í stað-
inn er það gamli góði heimilismaturinn sem nær aftur fyrri vinsældum.
Huggulegir veitingastaðir sem bera fram slíkan mat í góðum skömmtum á
viðráðanlegu verði verða þeir heitustu í ár.
Slow Food-æði mun líka renna á landann enda allir orðnir at-
vinnulausir og hafa tíma til að vera meðvitaðir neytendur,
rækta sitt eigið hráefni, dunda sér við að elda góðan mat og
borða í rólegheitum við eldhúsborðið. Í kjölfarið verður
skyndibiti og allt sem kallast super eða extra úti í kuldanum.
Sushi heldur líka fyrri vinsældum sínum og slátur kemur
enn sterkara inn en á seinasta ári auk ýsunnar sem klikkar
ekki með kartöflum.
Matur
Ferðalög
Enginn verður maður með mönnum
nema hann verði með sitt nærumhverfi
á hreinu. Það er ekkert töff að geta talið
upp sýslurnar í Bandaríkjunum ef þú
veist ekkert um sýslurnar í eigin landi.
Ferðalög innanlands eru því málið.
Sumarfríið á að fara í að njóta náttúr-
unnar, velta sér nakinn upp úr dögginni,
sofa undir stjörnuhimni, borða heima-
smurt nesti og fræðast um Ísland. Lág-
stemmd rómantík í tjaldi er eitthvað
sem ætti að fá hvern sem er til að end-
urnýja orkuna í fríinu. Biðjum bara um
gott sumar þó að rigning og rok geti
líka verið ansi kósí ef tjaldið helst þurrt.
Ódýrar sólalandaferðir munu líka
rokka; Mallorca og Benidorm, Sex on
the Beach og sólarvörn.
Sparsemi og nægjusemi verða viðhorf ársins auk reiði. Það er líka bannað
að hafa ekki skoðun eða standa á sama. Það á að meta það sem maður á
og gera það besta úr því. Ekki gleyma svo ástinni.
Sparsemi mun líka einkenna lífsstílinn, bílar verða eldri, konur
yngri … djók … bílatískan breytist, eldri árgerðir sjást á götunum og
það er harðbannað að láta sjá sig á flottræfilslegum jeppa. Það verður í
lagi að klæðast sömu flíkinni oftar en tvisvar og notuð föt halda velli þó
að þær búðir sem selja þau mættu
alveg lækka verðið.
Plastpokum í matvörubúðum
verður rutt úr vegi því landinn
fer að ganga með taupoka á
sér ólíkt fyrri tímum. Hús-
gögn og annað innbú á helst að
fá ókeypis frá foreldrum eða frænd-
fólki, gefa gömlum hlutum nýtt líf,
eða þá að kaupa það á lágu verði í
Góða hirðinum eða Ikea.
Minna verður drukkið af áfengi,
fólk fer að kunna sér hóf og reykingafólki fækkar enn frekar. Brugg
verður þó stærsta áhugamál ársins og fólk fer að skiptast á upp-
skriftum til að ná sem mestu prómilli af alkóhóli út úr lítranum.
Viðhorf og lífsstíll
Tæki og tól
Það verður jákvæða fólkið og ráðagóða sem sogar að sér
aðdáendur í hópum. Þeir sem halda partí eins og það sé
góðæri en á kreppukjörum njóta líka vinsælda. Peningar
skapa samt engum vini, það þarf orðið meira til. Nýjar
stjörnur munu fæðast á landinu og Séð og heyrt fyllast
af áður óþekktum andlitum enda peningadrengirnir
sem prýddu það áður allir fallnir eða farnir úr landi.
Erlendis verða upprisnar stjörnur mest áberandi,
stúlkur eins og Amy Winehouse og Britney Spe-
ars fylla áfram
hvern slúð-
urdálkinn á fæt-
ur öðrum en nú
fyrir afrek sín en
ekki erfitt einka-
líf.
Fólk
Að herma eftir
Ólafi Ragnari í
Nætur- og Dag-
vaktinni er alveg
þreytt. „Já sæll“
og „guggur“ er
bara einfaldlega
hallærislegt. Kreppufrasar fljúga í
staðinn manna á milli. Frasar eins og
„gott í kreppunni“ og „þetta er nú
meira svona 2007“ (vísað í góðærið)
munu heyrast á hverju horni. „Helvítis
fokking fokk“ kom sterkt inn í lok sein-
asta árs og verður líklega vinsælt fram
á árið, a.m.k. á meðan ástandið er hel-
vítis fokking fokk.
Frasar