Morgunblaðið - 18.01.2009, Blaðsíða 52
52 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009
• Vitum af fjölda fyrirtækja í öllum atvinnugreinum sem vilja skoða
sameiningar með hagræðingu í huga.
• Traust jarðvinnufyrirtæki á Austurlandi. Góð verkefni framundan.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að sérverslun með vinsælar
tæknivörur. Ársvelta 200 mkr. Viðkomandi þyrfti að leggja fram 15 mkr.
• Rótgróið vinnuvélafyrirtæki með langtímasamning um föst þjónustu-
verkefni. Mjög góður hagnaður. Skuldlaust fyrirtæki.
• Heildverslunin Tinna óskar eftir meðeiganda-samstarfsmanni.
Tinna selur prjónagarn og skyldar vörur í yfir 50 verslanir um land allt.
Mjög góður rekstur í miklum vexti. Skuldlaust fyrirtæki.
• Rótgróið innflutnings- og þjónustufyrirtæki með vörur fyrir sjávarútveg.
Ársvelta 320 mkr. EBITDA 48 mkr.
• Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 600 mkr.
• Eitt vinsælasta vínveitingahús landsins. Ársvelta 250 mkr. EBITDA 90
mkr. Engar skuldir. Mjög hagstætt dæmi fyrir fjárfesta.
• Rótgróin umboðs- og heildverslun á Austurlandi. Ársvelta 100 mkr.
Góður hagnaður. Auðveld kaup fyrir duglegt fólk.
Suðurlandsbraut 4, 7. hæð • Sími 414 1200
Netfang: kontakt@kontakt.is • www.kontakt.is
Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is
Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is
Höskuldur Frímannsson rekstrarhagfræðingur, hoskuldur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson hdl. sigurdur@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson, lögg. fasteignasali, tas@kontakt.is
stærðfræði - íslenska - danska - enska - náttúrufræði
- Íslenskar rannskóknir sýna að nemendur sem eru fyrir neðan 6 á
samræmdu prófunum eiga í erfiðleikum með framhaldsnámið.
- Það er ennþá tækifæri til að styrkja stöðu sína fyrir vorið.
- Hjá okkur starfa kennarar sem náð hafa mjög góðum árangri með
nemendur á samræmdum prófum.
Einnig námsaðstoð við nemendur framhalds- og háskóla
Innritun í síma 557 9233 frá kl.17-19 virka daga
og á vef okkar www.namsadstod.is
Nemendaþjónustan sf. Álfabakka 12, Mjódd.
NÁMSAÐSTOÐ
fyrir samræmdu prófin í 10.bekk
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
H
ljómsveitin Jack Lond-
on lagði land undir fót
fyrir ári og hélt til Chi-
cago þar sem hún bjó í
kristilegri kommúnu á
meðan hún hljóðritaði fyrstu breið-
skífu sína sem kemur út um þessar
mundir.
Unnar Gísli Sigurmundsson, gít-
arleikari og söngvari sveitarinnar,
segir að þeir félagar hafi komist í
kynni við Glenn Kaiser í einni af
heimsóknum hans hingað til lands, en
þá var Jack London fengin til að hita
upp fyrir hann. „Í framhaldi af því
varð okkur vel til vina og því fannst
okkur spennandi að fara til Chicago
að taka upp. Það var líka ódýrt að
vera þar þó ævintýraþráin hafi
kannski haft mest að segja,“ segir
Unnar Gísli.
Búið í kommúnu
Þeir félagar fóru út um miðjan jan-
úar fyrir ári og dvöldu á vegum sam-
taka sem kallast Jesus People USA,
en Glenn Kaiser er einmitt meðal
meðlima í þeim. Þau samtök reka
heimili fyrir heimilislausa sem Unnar
Gísli lýsir sem einskonar kommúnu,
enda eiga allir allt saman og deila
öllu, en alls búa um 800 manns í hús-
næði á vegum samtakanna.
Unnar Gísli segir að það hafi verið
mjög merkilegt að koma þarna út,
enda er aðsetur samtakanna í útjaðri
borgarinnar, í Uptown-hverfinu þar
sem félagsleg bágindi hafa verið mikil
og þörfin fyrir aðstoð því rík. „Það
fyrsta sem við fundum fyrir var hvað
það er rosalega kalt í Chicago, miklu
kaldara en okkur grunaði. Í hverfinu
var líka svo lítið af hvítu fólki, maður
sá ekki nema blökkumenn og fólk frá
Suður-Ameríku og Suðaustur-Asíu.“
Hlýja og kurteisi
Kjör margra eru aum á þessum
slóðum í Chicago en líka talsvert um
glæpi. „Maður lærði það fljótt að
horfast ekki í augu við neinn og
ganga hratt framhjá ákveðnum hús-
um þar sem gengi héldu til,“ segir
Unnar Gísli og bætir við að menn
hefðu líka þurft að hafa varann á sér
ef þeir hittu unga blökkumenn í
skjannahvítum peysum og hvítum
skóm því þeir voru alla jafna félagar í
glæpagengjum. Að því sögðu þá seg-
ir hann að þeir félagar hafi ekki
mætt öðru en hlýju og það hafi komið
sér mjög á óvart hve margir af því
útigangs- og drykkjufólki sem þeir
hittu voru kurteisir og vinsamlegir.
„Það voru auðvitað uppákomur og
eitt sinn kom til dæmis maður inn í
húsið þar sem við bjuggum og var að
leita að konunni sinni. Hann fann
hana ekki og ætlaði því að drepa alla
í húsinu, en róaðist svo niður.“
Jesus People USA eru kristileg
samtök og þeir félagar í Jack London
tóku þátt í samkomum og léku meira
að segja í einni slíkri. Unnar Gísli
segir að það hafi verið merkilegt að
sjá hve trúin var hversdagsleg fyrir
öllum, menn voru ekki að klæða sig
upp á til að fara í messu; menn mættu
bara á bolnum og inniskónum ef því
var að skipta.
Þótt mannlífið hafi verið fjölskrúð-
ugt þarna úti og skemmtilegt að
skoða það segir Unnar Gísli að þeir
hafi verið úti til að taka upp plötu og
það hafi líka verið unnið við hana af
krafti þann mánuð sem þeir dvöldust
þarna úti. Upptökurnar gengu líka
mjög vel að hans sögn, en fólk úr
kommúnunni kemur líka við sögu,
lagði til bakraddir og auka hljóðfæra-
leik.
Mikil músík
„Það er mikil músík í kommún-
unni, ég held að það séu að minnsta
kosti tíu hljómsveitir þar og mjög
ólíkar. Þannig var ein hljómsveit
rosalega hippaleg, önnur lék bara
blóðugt pönk og allt þar á milli.“
Kommúnan sem þeir félagar
dvöldust í byggist upp á samhjálp og
Unnar Gísli segir að þeir hafi farið út
með það fyrir augum að taka þátt í
starfinu, en ekki varð eins mikið úr
því og til stóð. „Við vorum tólf tíma á
dag í stúdíóinu þannig að það var
ekki mikil orka eftir. Okkur stendur
þó til boða að fara út og prófa að vera
í kommúnunni í mánuð til reynslu.
Ég veit þó ekki hvernig maður myndi
meika það að vera þarna úti. Þá daga
sem maður er extra umburðarlyndur
er þetta örugglega ekkert mál en
aðra daga er það kannski óhugsandi.
Þetta er þó rosalega gott fyrir þá sem
eru að reyna að brjótast út úr rugl-
inu, að fá fótfestu í lífinu, enda eru
þeir settir í að hjálpa öllum allan dag-
inn, að létta öðrum lífið, og ná þá
jafnvægi sjálfir.“
Kommúnan Aðsetur samtakanna Jesus People USA er í útjarði borg-
arinnar, þar eru félagsleg bágindi mikil og þörf fyrir aðstoð rík.
Hljómsveitin Meðlimir Jack London sendu nýverið frá sér sína fyrstu breiðskífu, White Suit Getting Brown. Í vinnunni Unnið var að krafti við upptökur á meðan dvalið var í Chicago.
Jack London rokkar
Bjuggu í kristilegri kommúnu í Chicago á vegum Jesus
People USA Fyrsta plata sveitarinnar er nýkomin út