Morgunblaðið - 16.02.2009, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 6. F E B R Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
45. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
EVRÓVISJÓNFORKEPPNINNI LOKIÐ
JÓHANNA ÓTVÍRÆÐUR
SIGURVEGARI
TÓNLEIKAR Í LISTASAFNI ÍSLANDS
Mikilvirks tónlistar-
manns minnst
Díana Guðjónsdóttir, þjálfari
Hauka, er ósátt við meðferðina sem
mál Ramune Pekarskyte fékk hjá
aganefnd HSÍ. Stjarnan og FH
leika til úrslita í bikarkeppninni.
ÍÞRÓTTIR
Þjálfari Hauka
ósáttur við HSÍ
Björgvin Björgvinsson náði ekki að
ljúka keppni í sviginu á HM í
Frakklandi. Hnémeiðsli Gísla Rafns
Guðmundssonar reyndust alvar-
legri en í fyrstu var haldið.
Meiðsli Gísla
Rafns alvarleg
Aron Einar Gunnarsson skoraði sitt
fyrsta mark fyrir enska liðið Cov-
entry. Akureyringurinn vonast til
þess að eignast armbandsúr knatt-
spyrnustjórans Chris Colemans.
Aron vill fá arm-
bandsúr Colemans
STJARNAN skráði nafn sitt í sögubækurnar í
gær þegar liðið sigraði KR 78:76 í úrslitum bik-
arkeppninnar í körfuknattleik karla. Þetta er í
fyrsta sinn sem Stjarnan sigrar í þessari keppni
og liðið hafði aldrei áður komist í úrslit keppn-
innar. „Enginn spáði okkur sigri,“ sagði Teitur
Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, í gær. KR hafði
fyrir leikinn í gær aðeins tapað einum leik á
tímabilinu í öllum keppnum á vegum KKÍ.
Kvennalið KR landaði sigri í úrslitaleiknum gegn
Keflavík, 76:60. Þetta í 10. bikartitill KR og sá
fyrsti frá árinu 2002. | Íþróttir
Morgunblaðið/hag
„ENGINN SPÁÐI
OKKUR SIGRI“
Kvennalið KR fagnaði en vonbrigði hjá karlaliðinu
Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur
og Önnu Sigríði Einarsdóttur
BREYTT lyfjaverðlag mun bæði hafa í för
með sér hækkanir og lækkanir fyrir neyt-
endur. Einstaklingar sem hafa ekki verið
með lyfjaskírteini
fyrir maga- og
þunglyndislyf koma
til með að greiða
talsvert minna. Þeir
sem eru með lyfja-
skírteini koma hins
vegar til með að
greiða 10% meira.
Lágmarks-
greiðslur almennra
greiðenda hækka úr
1.700 kr. í 1.900 og
hámarkið úr 4.950 í
5.450 kr. Þá mun 30
daga afgreiðslutak-
mörkun vegna veirulyfja og mígrenilyfja til
dæmis verða afnumin. Niðurgreidd lyf fyrir
börn og atvinnulausa, frekari lækkun smá-
söluálagningar og lækkun heildsöluverðs er
meginatriði í reglugerð sem heilbrigðisráð-
herra kynnti í gær og miðar að því að lækka
lyfjakostnað ríkisins um einn milljarð.
Útboðin skuldbinda spítalann
Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir á hjarta-
deild Landspítalans, segir sjálfsagt að skoða
alla möguleika varðandi blóðfitulækkandi lyf.
„Það gera sér allir grein fyrir að það þarf að
leita allra leiða til að spara og hagræða.“
Landspítalinn sé skuldbundinn til að hafa
útboð og taka hagstæðustu lyfin sem spít-
alanum bjóðast. Það séu hins vegar ekki allt-
af ódýrustu lyfin úti í þjóðfélaginu. Yfir þetta
verði farið á næstu vikum. „Það verður meg-
inmarkmið hjá okkur áfram að nota bestu lyf
sem við teljum að nái sama árangri.“ Litið sé
til Norðurlandanna í þessu sambandi, en
skoða þurfi þó hvern lyfjaflokk fyrir sig. Sú
staða geti því vissulega komið upp að sjúk-
lingur sé á einu lyfi á meðan á sjúkrahúsdvöl
stendur og fái svo annað lyf er út er komið.
Flestir
greiði
minna
Gera ráð fyrir eins
milljarðs lækkun
Í HNOTSKURN
»Lyfjanotkunbarna og
fólks á fullum
atvinnuleysis-
bótum verður
niðurgreidd.
»Heildsölu-og smásölu-
álagning lyfja
verður lækkuð.
Vilja ná milljarðs lækkun | 4
Nýr fjármálaráðherra Simbabve,
Tendai Biti, segir að seðlabanki
landsins eigi einna mesta sök á
efnahagsvand-
anum í landinu
en þar er mesta
verðbólga í
heimi, að því er
segir í frétt BBC.
Seðla-
bankastjóri Sim-
babve er liðs-
maður Roberts
Mugabe forseta.
Biti, sem er úr
röðum liðsmanna Morgans Tsvang-
irais, nýs forsætisráðherra lands-
ins, sagði að seðlabankinn væri „rú-
inn trausti“. Hann hyggst leggja
fram nýtt fjárlagafrumvarp og
hvatti vestræn ríki til að veita Sim-
babve fjárstuðning. »12
Kennir seðlabanka um
vandann í Simbabve
Tendai Biti
Skógareigendur telja að þeir eigi
það kolefni sem binst í trjánum á
sama hátt og þeir eiga viðinn sem
framleiddur er í skóginum. Björn
Jónsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands skógarbænda, segir hag-
kvæmt að rækta skóg til að binda
kolefni og það sé því eðlilegt að
menn velti því fyrir sér hver eigi
þessa bindingu, sem geti orðið
verðmæti í viðræðum um kolefn-
iskvóta.
Björn segir þessa umræðu á byrj-
unarstigi, samtökin hafi skipað
nefnd til að skoða þessi mál og
muni ræða þau á sínum vettvangi á
næstu mánuðum. »9
Hver á kolefnisbindinguna?
,,Ég hygg að margir myndu þá
annaðhvort lækka laun á móti hækk-
ununum eða gera einhverjar aðrar
ráðstafanir,“ seg-
ir Vilhjálmur Eg-
ilsson, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka atvinnu-
lífsins, um afleið-
ingar þess ef
kemur til launa-
hækkana um
mánaðamótin,
eins og gildandi
samningar kveða
á um. Skiptar skoðanir eru innan
verkalýðshreyfingarinnar um hvort
rétt sé að fresta endurskoðun samn-
inga. Nokkur verkalýðsfélög taka
það ekki í mál. »14
Sumir myndu lækka laun á
móti hækkunum 1. mars
Vilhjálmur
Egilsson.