Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009 Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is PAUL Nikolov ætlar að sækjast eftir 1.-3. sæti í forvali Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs (VG) í Reykjavíkur- kjördæmunum. Paul er fyrsti varaþingmaður VG í Reykjavíkur- kjördæmi norður og hefur tvisvar tekið sæti á Alþingi á yfirstandandi kjörtímabili. Hann ætlar að leggja áherslu á að skapa ný störf í landinu sem eru um- hverfisvæn og kröftug og geta bætt ímynd Íslands. Má þar nefna störf í uppbyggingu á innviðum íslensks samfélags og á sviðum tækni og vís- inda. Hann ætlar einnig að leggja áherslu á málefni innflytjenda og flóttamanna og endurnýjun almenn- ingssamgangna og skipulagsmál. Paul Nikolov í 1.-3. sæti Samfylking og Vinstri hreyfingin – grænt framboð hafa komið sér saman um að alþingiskosningar fari fram laugardaginn 25. apríl næstkomandi. Morgunblaðið mun daglega birta fréttir sem tengjast framboðum, próf- kjörum, kosningafundum o.fl. Kosningar 2009 BIRNA Lárusdóttir ætlar að bjóða sig fram í 1.-2. sæti á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Hún hefur starf- að að stjórnmálum undir merkjum Sjálfstæðisflokks- ins í rúman ára- tug, fyrst og fremst á sveitar- stjórnarstiginu en einnig á landsvísu. Hún er varaþing- maður flokksins í NV-kjördæmi og skipar í dag 5. sæti listans. Birna hefur setið í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar frá 1998 og lengst af gegnt embætti forseta bæjarstjórnar. Í gegnum tíðina hefur hún sinnt fjölmörgum nefndastörfum, bæði í héraði og á landsvísu. Birna sækist eftir 1.-2. sætinu KARL Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vígði í gær nýtt safnaðarheimili Kársnessóknar í Kópavogi, rétt hjá Kópavogskirkju, að Hábraut 1A. „Menn vilja meina að þetta verði mikil lyftistöng fyrir safnaðarstarfið,“ sagði Árni Tómasson, for- maður byggingarnefndar safnaðarheimilisins, í sam- tali við mbl.is í gær. Hann flutti ræðu við vígslu safn- aðarheimilisins ásamt Kristínu Líndal, sem er formaður sóknarnefndar Kársnessóknar. Þá sungu kirkjukórinn og Kársneskórinn einnig af þessu til- efni. Sagði Árni að það hefði verið mikil ánægja ríkjandi við vígslu safnaðarheimilsins. Hið nýja safnaðarheimili er á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni er 135 fermetra salur sem Tónlist- arskóli Kópavogs leigir, tæknirými upp á 35 fer- metra og 545 fermetra bílastæðahús. Á efri hæð, sem er 530 fermetrar að stærð, eru tveir salir, kennslu- stofa og kapella, fimm skrifstofur, eldhús og fleira. Byggingarnefnd fyrir húsið var skipuð árið 2004 en framkvæmdum lauk á síðasta ári. GASSA arkitektar hönnuðu hið nýja safn- aðarheimili. Um verkfræðihluta sáu Conís verk- fræðistofa, RTS rafverktakar og Mannvit verk- fræðistofa. jonpetur@mbl.is „Mikil lyftistöng fyrir safnaðarstarfið“ Biskup vígði nýtt safnaðarheimili Kársnessóknar Morgunblaðið/Árni Sæberg Vígsla Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vígði nýja safnaðarheimilið í Kópavogi í gær. Hér er hann ásamt séra Ægi Fr. Sigurgeirssyni, sóknarpresti í Kópavogskirkju, og hluta kóranna sem sungu við athöfnina. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hjá kirkjunni Safnaðarheimili Kársnessóknar er á tveimur hæðum og er rétt hjá Kópavogskirkju. Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „HVAÐ þarf til að tilheyra eigin samfélagi?“ Þessari spurningu velti Freyja Haraldsdóttir, þroska- þjálfanemi, upp í erindi sínu á ráð- stefnu sem bar heitið „Skóli án að- greiningar: Erum við á réttri leið í völundarhúsinu?“ sem fram fór í vik- unni fyrir fullu húsi. Svarið við spurningu sinni segir Freyja vera: „Það að tilheyra eigin samfélagi fel- ur í sér að maður fái tækifæri til þess að taka þátt í skólasamfélaginu, fjöl- skyldulífi, tómstundum og eiga vini. Ég finn, sem fötluð manneskja, að með því að hafa gengið í almennum skóla og verið viðurkennd af um- hverfi mínu finnst mér ég hafa fullan rétt til að taka þátt í samfélaginu og finnst ég tilheyra því,“ segir Freyja. Að sögn Freyju eru það mannrétt- indi allra barna að fara í sinn heima- skóla, hvort sem þau eru fötluð með margbreytilegar þarfir eða ekki. „Við megum ekki missa sjónir af þeim réttindum og fara að afsaka skólana of mikið. Vegna þess að skól- unum ber að taka á móti nemendum með margbreytilegar þarfir, láta þeim líða vel og gefa þeim tækifæri til þess að læra og þroskast eins og öðrum börnum.“ Freyja gerði í erindi sínu ýmsar hindranir fyrir skóla án aðgrein- ingar að umtalsefni. „Að mínu viti er hugmyndafræðin um skóla án að- greiningar ekki tekin nægilega mik- ið inn í kennaramenntunina í dag. Ég held að kennaranemar þurfi að fá miklu betri kynningu á þörfum nem- enda með margbreytilegar þarfir sem og kynningu á þeim úrræðum sem eru í boði,“ segir Freyja. Bendir hún á að viðhorf bæði starfsfólks og nemenda í garð nemenda með marg- breytilegar þarfir skipti sköpum. „Við getum unnið mikið með við- horfið með því t.d. að flétta lífsleikni mun betur inn í almennu náms- skrána.“ Niðurskurður kostar síðar Spurð hvort hún hafi áhyggjur af því að niðurskurður í skólum muni koma niður á hugmyndinni um skóla án aðgreiningar segist Freyja binda vonir við að svo verði ekki. „Skerð- ingar á fjármálum til skólamála munu koma niður á öllum nem- endum, en ekki síst á þeim sem þurfa meiri aðstoð en aðrir. Það að t.d. fjölga nemendum í bekkjum, taka út valgreinarnar og draga úr þjónustu við nemendur er mjög alvarlegt mál. Verði það niðurstaða stjórnvalda þá mun það skapa miklu meiri vanda og meiri kostnað í framtíðinni, vegna þess að við verjum svo stórum hluta ævi okkar í skólanum. Þar erum við að þroskast og eignast vini, læra reglur samfélagsins og viðmið. Ef okkur líður ekki vel þar þá náum við ekki þeim þroska og þeirri þekkingu sem við ættum að ná. Þannig að það er ekki bara skaðlegt fyrir ein- staklinginn og lífsgæði hans heldur samfélagið í heild sinni.“  Hugmyndafræðin um skóla án aðgreiningar er ekki tekin nægilega mikið inn í kennaramenntunina í dag  Erum við á réttri leið í völundarhúsinu? Skólinn staður til að þroskast Fyrirmynd Freyja Haraldsdóttir flutti erindi á vel sóttri ráðstefnu um skóla án aðgreiningar. ÖGMUNDUR Jónasson heil- brigðisráðherra býður sig fram í 2. sæti á lista Vinstri grænna í Suðvesturkjör- dæmi. „Þetta geri ég eftir að ég fékk staðfest að Guð- fríður Lilja Grét- arsdóttir væri reiðubúin að sækjast eftir fyrsta sæti á listanum. Þá tók ég þessa ákvörðun,“ segir Ögmundur. Í dag eru Vinstri grænir með einn þingmann í Suðvesturkjördæmi sem er Ögmundur sjálfur og gæti annað sæti á listanum því vel verið baráttu- sæti. „Ég er mjög vongóður um að við fáum að minnsta kosti tvo menn kjörna í þessu kjördæmi og Guðfríð- ur Lilja er að mínum dómi sterkur kandídat og mjög vel að því komin að leiða listann,“ segir Ögmundur og kveðst stoltur verði sér treyst til að skipa annað sæti listans. Ákvörðunin sé þó ekki þeirra þar sem endanleg niðurröðun á lista fari fram í forvali. „Ég vona hins vegar að þetta verði niðurstaðan og yrði mjög ánægður ef svo yrði.“ annaei@mbl.is Ögmundur í baráttu- sæti? Ögmundur Jónasson Býður sig fram í 2. sæti Vinstri grænna ENDURMENNTUN Háskóla Ís- lands (HÍ) fer í dag af stað með fjög- urra kvölda námskeið fyrir almenn- ing um áhrif þess að Ísland sæki um inngöngu í Evrópusambandið (ESB). Þar mun Maria Elvira Mendez Pi- nedo, lektor við lögfræðideild HÍ, veita almenna fræðslu um Evrópu- sambandið, EES og muninn á ESB og EES. Í tilkynningu frá HÍ segir að dregnir verði fram kostir og gallar aðildar, þannig að Íslendingar geti betur gert sér grein fyrir því hvað er í húfi - og hvort hagsmunum Íslands yrði betur borgið innan eða utan ESB. Elvira hefur verið búsett á Ís- landi frá árinu 2001 og starfað sem lektor við lögfræðideild HÍ frá árinu 2007. Áður starfaði hún hjá Evrópu- sambandinu en hefur einnig verið ráðgjafi heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins í Evrópurétti. Ísland og ESB á mannamáli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.