Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 24
24 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009 ANN Richards, fjölmiðlafulltrúi Konunglegu óp- erunnar í Covent Garden í Lund- únum, greinir frá því í viðtali við sænska blaðið Dagens Nyheter að til standi að óperuhúsið láti semja fyrir sig óperu um glæsimeyna amerísku Önnu Nicole Smith, sem vann sér það til frægðar að giftast öldnum miljarðamæringi og erfa eftir hann fúlgur fjár. Sjálf dó Anna á voveif- legan hátt í hittifyrra. „Okkur lang- ar að setja upp spennandi og áhuga- verð nútímaverk til að breikka verkefnavalið,“ segir Ann Richards. „Óperan um Önnu mun fjalla um líf hennar og fólkið sem hafði áhrif á hana. Það er saga um konu sem hitt- ir eldri herramann,“ segir Elaine Padmore, leikstjóri sýningarinnar, í sama viðtali og bætir við: „Þetta er átakanlega sorgleg saga, rétt eins og í óperu Puccinis, Stúlkan í gullna vestrinu. Óperan verður spegill á samtíma okkar, Ameríku fyrir tíð Obama.“ Padmore segir að verkið verði tíðarandaópera, eins og urðu vinsælar í Þýskalandi á þriðja ára- tug síðustu aldar. „En þótt líf Önnu Nicole hafi verið opinberað í slúðurblöðum, þýðir það ekki að óperan verði einhver smekk- leysa,“ segir leikstjórinn. Ekkert kemur fram um það hver semji tón- listina. Ópera um Önnu Ni- cole Smith Óperan verður samtíðarspegill Anna Nicole Smith RAGNHEIÐUR Steindórsdóttir, leikkona var út- nefnd bæjar- listamaður Sel- tjarnarness fyrir árið 2009 á laug- ardaginn við há- tíðlega athöfn. Ragnheiður út- skrifaðist frá The Bristol Old Vic Theatre School árið 1975. Hún hefur verið fastráðin við Þjóðleikhúsið frá árinu 1983 en á einnig að baki fjöl- mörg hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þá hefur Ragnheiður leikið í mörgum útvarpsleikritum, sjónvarpsþáttum og í kvikmyndum. Nafnbót bæjarlistamanns fylgir starfsstyrkur og ætlar Ragnheiður að takast það mikla verkefni á hend- ur að lesa Passíusálma Hallgríms Péturssonar í Seltjarnarneskirkju á föstudaginn langa. Þá mun hún koma fram við ýmis tilefni og uppá- komur í bæjarfélaginu á árinu. Þetta er í þrettánda skipti sem bæjarlistamaður er útnefndur á Sel- tjarnarnesi. Fráfarandi bæjar- listamaður er Kristín Gunnlaugs- dóttir myndlistarmaður en meðal fyrri bæjarlistamanna eru Bubbi Morthens tónlistarmaður, Gunnar Kvaran sellóleikari, Auður Haf- steinsdóttir fiðluleikari, Jóhann Helgason tónlistarmaður og Mar- grét Helga Jóhannsdóttir leikkona. Ragnheiður Steindórsdóttir Þrettándi bæjarlista- maðurinn GUÐRÚN Erla Geirsdóttir, fjallar um leit að gleymdum kvensnillingum í myndlist- arsögunni í hádegisfyrirlestri Opna listaháskólans í dag, 16. febrúar, kl. 12.30 í húsnæði myndlistardeildar LHÍ, Laug- arnesvegi 91. Guðrún ætlar að bregða ljósi á það hvers vegna svo fáar kon- ur er að finna í listasögubók- um. Hún mun greina frá því sem kemur í ljós þegar ekki er látið staðar numið við þá klisju að ástæða þess sé sú að þær fengu ekki tækifæri til að afla sér þeirrar þjálfunar, færni og reynslu sem þurfi til að verða fram- úrskarandi í myndlistinni. Myndlist Gleymdir kvensnill- ingar í myndlist Guðrún Erla Geirsdóttir TÓNLISTARFÉLAG Mos- fellsbæjar stendur fyrir Tangókvöldi í Hlégarði í Mos- fellsbæ annað kvöld, 17. febr- úar. Þar munu Fimm í Tangó leika finnska og íslenska tangótónlist. Meðlimir Fimm í Tangó eru; Ágúst Ólafsson söngvari, Ástríður Alda Sig- urðardóttir á píanó, Íris Dögg Gísladóttir fiðluleikari, Kristín Lárusdóttir sellóleikari og Vadim Fedorov sem leikur á harmoniku. Tangóparið Ozgur og Demir dansar tangó við nokkur lög. Húsið verður opnað kl. 20.30 og er miðaverð 1500 kr., selt er við innganginn. Tónlist Fimm í Tangó leika tangótónlist Ágúst Ólafsson LÚÐRASVEIT Reykjavíkur heldur tónleika í Neskirkju á morgun, þriðjudaginn 17. febr- úar. Efni sveitarinnar á tónleik- unum verður að þessu sinni kvikmyndatónlist, en leikin verður tónlist eftir Ennio Morricone, Nino Rota og Jerry Goldsmith. Tónlistin sem flutt verður er m.a. úr kvikmyndum eins og Guðföðurnum, Chaplin- myndum, Jurrassic Park, Nuovo Cinema Para- diso, The Mission, The Wind and the Lion að ógleymdum spagettívestrum. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30, ókeypis er inn á þá en veitingar verða seldar í hléi. Tónlist Lúðrasveit leikur kvikmyndatónlist Charlie Chaplin Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is UM ÁRABIL var Richard Tal- kowsky sellóleikari mikilvirkur tón- listarmaður í íslensku tónlistarlífi. Hann fluttist hingað frá Bandaríkj- um, lék með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands og spilaði kammermúsík. Hann lést um aldur fram í ágúst 2007. Í tilefni af afmælisdegi Rich- ards á morgun halda vinir hans og samstarfsmenn tónleika í Listasafni Íslands þar sem meðal annars verða flutt tvö ný verk saman í minningu hans. Í tilefni af tónleikunum kemur vinkona Richards og margra ís- lensku tónlistarmannanna, Beth Levin píanóleikari, hingað og spilar kammermúsík með hópnum á tón- leikunum. Beth spilaði með Richard og Einari Jóhannessyni í Tríói Bo- realis á sínum tíma. Helga Þórarinsdóttir víóluleikari er einn skipuleggjenda tónleikanna. Sterk klíka tónlistarfólks „Við Laufey Sigurðardóttir fiðlu- leikari, Nora Kornblueh sellóleikari og Richard vorum öll í námi í Bost- on á sama tíma, undir lok áttunda áratugarins. Beth Levin var þar líka. Við kynntumst öll og þetta varð sterk klíka. Einhvern tíma kom Richard svo hingað til að spila kammermúsík með okkur, að mig minnir 1980. Þá vantaði alltaf sell- ista í Sinfóníuhljómsveitina og við fengum hann til að koma og vera. Þá var hann hér í nokkur ár. Héðan fór hann til Barcelona til að spila með Sinfóníuhljómsveitinni þar, en kom hingað aftur. Hér átti hann svo marga vini. Nora fluttist hingað líka en þau tvö voru eins og systk- ini. Richard var gyðingur og fannst stundum hljómsveitarstjórinn í Barcelona vera neikvæður gagnvart sér. Ég held að hér hafi hann fund- ið mikinn frið og vináttu.“ Trio Borealis, sem Richard spil- aði í með Einari og Beth kom víða fram. „Þau ferðuðust mjög mikið og fóru meðal annars til Suður- Ameríku og Norðurlandanna. Það var Richard sem skipulagði það. Þeir Einar voru ákaflega góðir vin- ir.“ Hann kveikti í fólki Helga segir að Richard hafi verið mjög greindur maður og það hafi verið sérstaklega gaman að spila með honum. „Hann var mikill heimsborgari. Ég sagði oft við hann hvað hann bætti miklu við íslenska tónlistarlífið. Þegar við vorum að æfa ný verkefni kom svo mikið frá honum, því hann spilaði alltaf allt frá hjartanu. Hann hlustaði mikið á tónlist, og hlustaði mikið á söng. Mér finnst hann kannski besta dæmið um það hvað útlendingur getur auðgað okkar anda. Við erum stundum svo dauf, en fólk eins og hann kveikir í okkur og maður fer að nálgast verkefni sín öðruvísi. Mér finnst hann hafa sýnt hvað það er mikilvægt fyrir okkur að hafa fjölbreytni í samfélagi okkar. Í hljómsveitinni er oft hugsað til hans og margir minnast hans. Þótt hann hafi verið hljóðlátur maður átti hann mjög marga vini.“ Spilaði alltaf af öllu hjarta Vinir og samstarfsmenn Richards Tal- kowskys halda tónleika í minningu hans Richard Talkowsky „Ég held að hér hafi hann fundið mikinn frið og vin- áttu,“ segir Helga Þórarinsdóttir um vin sinn og samstarfsmann. Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is FRANSKA útgáfan af bók Elínar Pálmadóttur Fransí biskví, Frönsku Íslandssjómennirnir, er tilnefnd til hinna virtu bókaverðlauna L’Academie de la marine í Frakklandi. Bókaútgáfan Thélés í París keypti einka- réttinn á útgáfu bókarinnar í franskri þýðingu og hef- ur dreift henni í frönskumælandi löndum og á vefnum. Verðlaunin eru veitt nýútkomnum bókum er varða hafið en markmiðið er að glæða áhuga almennings og ást á hafinu. „Ég geri mér ekki neinar vonir en er ákaflega stolt yfir að vera valin í svo virðulegan bókmenntaflokk í Frakklandi,“ segir Elín. „Og mér þótti vænt um þegar með tilkynningunni um tilnefningu bókarinnar fylgdu ummælin: Auðvitað er þetta alveg frábær bók.“ Franska sjávar-akademían einbeitir sér að útgáfu- störfum, verðlaunaveitingum, samkeppnum og öllu því sem getur ýtt undir nýjungar, rannsóknir og tilraunir í hvers konar sjávargreinum. Dómnefnd hefur störf í byrjun mars. Veitt eru að- alverðlaun Prix Beau livre, þrjár til fjórar bækur fá auk þess heiðursorður og nokkrar fleiri lofsamleg með- mæli. Upprunalega bókin á íslensku, Fransí biskví, Ís- landssjómennirnir, var gefin út hjá Almenna bóka- félaginu árið 1989, var þá tilnefnd til fyrstu íslensku bókmenntaverðlaunanna og varð metsölubók. Hún seldist upp og hefur verið ófáanleg síðan. Elín hefur ekki viljað að bókin væri endurprentuð án þess að hún hefði tíma til að yfirfara hana. Nú hefur hún áhuga á að fá hana útgefna enda áhuginn á þessu efni mikill og sí- vaxandi. Franskir fiskimenn Morgunblaðið/Kristinn Elín Pálmadóttir „Ég geri mér ekki neinar vonir en er ákaflega stolt yfir að vera valin.“ Bók Elínar Pálmadóttur tilnefnd til verðlauna Efnisskrá tónleikanna er mjög fal- leg að sögn Helgu. Laufey, Beth og Einar spila Tríó eftir Katsjatúrjan; Einar, Helga og Beth spila tríó eftir Schumann og svo spila Sigrún Eð- valdsdóttir, Zbigniew Dubik, Helga, Bryndís Halla Gylfadóttir og Beth Píanókvintett eftir Schu- mann. „En svo erum við með tvö verk samin í minningu Richards. Annað þeirra er eftir Óliver Kentish og heitir Kaddich, og er fyrir fjögur selló og bassa. Richard kenndi mikið á selló á Spáni á sumrin og þar samdi Vilaprinyó Marti verk í minningu hans, fyrir fjögur selló. Sellódeildin í Sinfóníuhljómsveit- inni ákvað að skipta þessu með sér, það vildu allir vera með, þann- ig að næstum öll sellóin í Sinfó spila. Nær öll sellóin í Sinfó spila með „Ég gaf þeim sverð og þeir sneru því í sárinu.“ 31 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.