Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Öll veðlán með Tilgangslítið er að ganga frá greiðsluaðlögun sem tekur ekki öll veðlán með, segir Árni Páll Árnason alþingismaður Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is LAGA verður skuldastöðu þeirra sem eru verst settir að greiðslugetu hvers og eins að mati Árna Páls Árnasonar, al- þingismanns Samfylkingarinn- ar og formanns allsherjarnefndar Alþingis. „Þess vegna er ég þeirrar skoð- unar að það sé til- gangslítið að ganga frá lögum um greiðsluaðlög- un sem fela ekki í sér að öll veðlán séu tekin með,“ segir Árni Páll. Frumvarp ríkisstjórnarinnar til laga um greiðsluaðlögun hefur verið sent til allsherjarnefndar Alþingis. Í því er kveðið á um að fólk í veruleg- um greiðsluerfiðleikum geti leitað nauðasamninga til greiðsluaðlögun- ar, ef sýnt er fram á að viðkomandi verði um ófyrirséða framtíð ófær um að standa í skilum með skuldbind- ingar sínar. Samkvæmt frumvarpinu nær það einungis til veðskulda við- komandi ef þær eru í eigu Íbúðalána- sjóðs eða fjármálafyrirtækja í eigu ríkisins. Lífeyrissjóðslán og lán sparisjóða og fleiri eru því undan- skilin samkvæmt frumvarpinu. „Ég á erfitt með að sjá að þetta frumvarp gegni því samfélagslega hlutverki sem það þarf nauðsynlega að gera, ef það nær ekki yfir allar veðskuldir. Ef það verður ekki gert enda bankarnir uppi með ógrynni óseljanlegra eigna og töpuð lán.“ Árni Páll segist ekki geta sagt hvenær allsherjarnefnd muni af- greiða málið. Álitamálin skýrist von- andi í dag. Tíminn hafi til þessa farið í að hlusta á sjónarmið þeirra sem mætt hafi fyrir nefndina og vinna úr athugasemdum. Í HNOTSKURN » Dómsmálaráðherra lagðifyrir rúmri viku fram frumvarp um breytingu á lög- um um gjaldþrotaskipti o.fl., svonefnda greiðsluaðlögun. » Samkvæmt frumvarpinunær greiðsluaðlögun til veðskulda sem eru í eigu Íbúðalánasjóðs eða fjármála- fyrirtækja í eigu ríkisins. Árni Páll Árnason ENGAR jákvæðar fréttir var að fá af leit skipa á vegum Hafrannsóknastofnunar að loðnu í gær, samkvæmt upp- lýsingum frá Þorsteini Sigurðssyni, fiskifræðingi og sviðsstjóra á stofnuninni. Þorsteinn sagði um miðjan dag í gær að rannsókn- arskipið Árni Friðriksson hefði verið að leita út af Suð- austurlandi og ekkert fundið. Þá hefði skip frá Vest- mannaeyjum, sem tekur þátt í leitinni að loðnunni, verið inni á Ísafjarðardjúpi vegna brælu og verið að bíða eftir veðri til að skoða vestursvæðin. Sagði Þorsteinn því að engar jákvæðar fréttir væri að fá af loðnuleitinni, enn sem komið er. Bæjarráð Vestmannaeyja skoraði í gær á sjávarút- vegsráðherra að gefa tafarlaust út 30-50 þúsund tonna upphafskvóta í loðnu. Segir í greinargerð ráðsins að Vestmannaeyjabær hafi fullan skilning á mikilvægi þess að umgangast sjávarauðlindina af virðingu. „Hinsvegar liggur nú fyrir að ástandið í efnahagslífi þjóðarinnar kall- ar á að einskis sé látið ófreistað í að skapa þjóðarbúinu tekjur,“ segir í greinargerð bæjarráðsins. „Varlega áætl- að má gera ráð fyrir að 30 til 50 þúsund tonna upphafs- kvóti myndi skapa þjóðarbúinu gjaldeyristekjur upp á 4 til 6 milljarða og hleypa miklu lífi í atvinnulíf þjóðarinnar. gretar@mbl.is Loðnan finnst ekki enn Bæjarráð Vestmannaeyja hvetur sjávarútvegsráðherra til þess að gefa út 30 til 50 þúsund tonna upphafskvóta „EF þið viljið í raun kasta ís- lensku krónunni þá standa ýmsir kostir til boða aðrir en evran, þar á meðal danska og norska krónan og Bandaríkja- dalur - og, jú, breska pundið. Þið ættuð að hugsa ykkur vel um áður en þið gerið eitthvað sem þið sjáið eftir.“ Þannig ávarpar breski Evr- ópuþingmaðurinn David Hannan Íslendinga á bloggvef blaðsins Telegraph. Hannan situr á Evr- ópuþinginu fyrir Íhaldsflokkinn og hefur látið íslensk málefni til sín taka og gagnrýnt Gordon Brown, forsætisráðherra. gummi@mbl.is Leggur til að Ísland taki upp pundið Daniel Hannan OPINN borgarafundur verður haldinn í Háskólabíói kl. 20 í kvöld. Borgarafundir hafa verið haldnir reglulega síðustu mánuði og að þessu sinni er yfirskrift fundarins: Staðan – Stefnan – Framtíðin. Frummælendur fundarins verða Haraldur L. Haraldsson hagfræð- ingur, Andrés Magnússon geðlækn- ir og Aðalheiður Ámundadóttir laganemi. Auk þeirra hefur ríkisstjórn Ís- lands og formönnum þeirra þing- flokka sem ekki eiga aðild að rík- isstjórn verið boðin þátttaka í pallborðsumræðunum. Öllum þing- mönnum hefur einnig verið sér- staklega boðið. Fundarform verður með sama sniði og áður. Þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og fundargestir úr sal fá að tjá sig eða spyrja þátt- takendur í pallborði spurninga. Hver aðili hefur tvær mínútur til að tjá sig, svo fundargestir eru hvattir til að vera vel undirbúnir. Ræða stöðu og framtíð DÓMARAR á Íslandsmeistaramóti kaffibar- þjóna, sem fram fór á Blómatorgi Kringlunnar í gær, fylgdust áhugasamir með keppendum sýna listir sínar. Og ekki virtust gestir og gangandi sýna keppendunum 19 minni áhuga. Það var Pálmar Þór Hlöðversson sem hampaði Íslandsmeistaratitlinum að þessu sinni og tekur hann þátt í heimsmeistaramótinu sem fram fer í Atlanta í Bandaríkjunum um miðjan apríl. Pálm- ar Þór, sem einnig varð Íslandsmeistari í fyrra, var verðlaunaður fyrir besta espresso- og besta capuccino-drykkinn. Verðlaun fyrir besta frjálsa drykkinn hlaut að þessu sinni Ingibjörg Ferrer, en Bjarmi Fannar Irmuson hlaut verðlaun í mjólkurlistakeppninni. Íslandsmeistaramót kaffibarþjóna Keppt í kúnstum kaffilistarinnar Morgunblaðið/Árni Sæberg ASÍ fagnar frum- varpi um greiðsluaðlögun en gagnrýnir mis- munun sem sam- tökin segja að fel- ist í því að þetta úrræði nái ekki til allra veðskulda. Gylfi Arn- björnsson, forseti ASÍ, segir að samtökin hafi lengi tal- ið mjög mikilvægt að greiðsluaðlög- un nái fram að ganga. „Það eru okk- ur mikil vonbrigði hvernig veðskuldir eru meðhöndlaðar í bráðabirgðaákvæði þar sem fyrir þá sem áttu viðskipti við Íbúðalánasjóð og fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins myndist önnur og betri réttarstaða en þá sem áttu viðskipti við fjármála- stofnanir í eigu annarra. Við teljum þetta óviðunandi réttarstöðu svo ekki sé talað um ef ríkið tæki upp á því að selja banka í eigu ríkisins. Þar með breyttist réttarstaða viðskipta- vinanna.“ Gagnrýnir mismunun Gylfi Arnbjörnsson ÖGMUNDUR Jónasson, heilbrigð- isráðherra, vildi í gær lítið tjá sig um fyrirhugaðan 2,7 milljarða nið- urskurð hjá LSH að öðru leyti en því að hann hefði af þessu þungar áhyggjur. Sagðist hann treysta ráðamönnum spítalans til að haga þessu þannig að sem minnst skerð- ing yrði á þjónustu. Kjarajöfnun yrði höfð að leiðarljósi svo nið- urskurðurinn bitnaði minnst á fólki með lægstu launin. Ráðherra mun funda með starfsfólki LSH í dag. Ræðir niður- skurð við starfsfólk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.