Morgunblaðið - 16.02.2009, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
Ótrúleg sértilboð - aðeins örfá sæti!
Heimsferðir bjóða þér aðgang að
bestu skíðasvæðum Austurríkis, s.s.
Flachau, Lungau og Zell am See.
Bjóðum nú frábært sértilboð á
flugsætum 21. og 28. febrúar (ath.
28. feb. aðeins aðra leið) og á
flugsætum og gistingu 21. febrúar.
Aðeins örfá sæti laus og mjög
takmörkuð gisting!
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 49.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum, 21. febrúar. Aðra leið með
sköttum kr. 19.990, sértilboð 28. febrúar.
Verð kr. 119.990
Vikuferð, hálft fæði.
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Skihotel Speiereck í Lungau með hálfu
fæði í 7 nætur. Sértilboð 21. febrúar.
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Hotel Unterberghof í Flachau með hálfu
fæði í 7 nætur eða á Hotel Neue Post í Zell
am See með hálfu fæði í 7 nætur kr.
30.000 aukalega. Sértilboð 21. febrúar.
Beint morgunflug!
Skíðaveisla í Austurríki
í febrúar frá kr. 49.990
* Netverð á mann. Flugsæti aðra leið með
sköttum, sértilboð 28. febrúar.
Sigrún Erna Geirsdóttir
sigrunerna@mbl.is
NÝ reglugerð gerir verulegar
breytingar á niðurgreiðslum vegna
lyfjakostnaðar sjúklinga. Með
breytingunum munu lyfjaútgjöld
sjúkratrygginga lækka um einn
milljarð á ársgrundvelli. Ætlunin er
að færa lyfjanotkun Íslendinga nær
því sem tíðkast annars staðar á
Norðurlöndum. Niðurgreiðslum
lyfja verður beint að ódýrari lyfjum
en notuð hafa verið.
Lyfjaútgjöld fjölskyldna lækka
Breyttri neyslu maga- og blóð-
fitulækkandi lyfja er ætlað að
spara 450 til 550 milljónir króna en
báðir lyfjaflokkarnir eru mikið not-
aðir. Lyfin auka lífsgæði sjúklinga
verulega en heilsuhagfræðilega
þykir ekki verjandi að nota dýrustu
lyfin nema í undantekning-
artilvikum. Ef sjúklingur þyrfti á
dýrari lyfjunum að halda fengi
hann þau en þá þyrfti að leggja
fram rökstudda undanþágubeiðni.
Lyfjakostnaður vegna barna mun
breytast og verða lyf þeirra nið-
urgreidd á sama hátt og lyf elli- og
örorkulífeyrisþega. Hið sama mun
gilda um einstaklinga á fullum at-
vinnuleysisbótum. Segir í rökstuðn-
ingi að fylgifiskur atvinnuleysis geti
verið heilsubrestur sem, ásamt
minnkandi tekjum og félagslegum
örðugleikum, bitni harkalega á
þeim sem misst hafa vinnuna.
Breytingin vegna barnanna mun
kosta ríkið um 80 milljónir á ári en
ekki er hægt að áætla kostnað
vegna þeirra sem eru á atvinnu-
leysisbótum þar sem tölur um at-
vinnuleysi lágu ekki fyrir í lok árs-
ins. Ætlar heilbrigðisráðuneytið að
fylgjast grannt með þróun mála
hvað þessa flokka varðar og breyta
eða endurskoða þennan þátt reglu-
gerðarinnar ef í ljós kemur að
breytingin hefur ekki tilætluð áhrif.
Breytingar á þökum og gólf-
um
Breyting verður á skiptingu
lyfjaverðs milli sjúklings og al-
mannatrygginga en greiðsluþökin
hafa ekki breyst frá 1. janúar 2001.
Vísitalan hefur síðan hækkað um
60% og lyfjareikningur Trygg-
ingastofnunar um 32%. Ætlar ráðu-
neytið að breytingin á þökum og
gólfum dragi úr lyfjakostnaðar-
aukningu sjúkratrygginga um 400
milljónir króna.
Heildsöluverð lækkað
Þá hefur lyfjagreiðslunefnd
lækkað heildsöluverð og smásölu-
álagningu. Þessari aðgerð er ætlað
að skila um 610 milljónum króna á
ársgrundvelli. Líklegt er að við-
ræður hefjist síðar á árinu um
frekari lækkun álagningar. Reglu-
gerðin tekur ennfremur fyrir þung-
lyndis-, veiru- og mígrenilyf en há-
marksafgreiðsluregla verður aflögð.
Þetta þýðir að sjúklingar geta nú
fengið ávísuð lyf til lengri tíma með
tilheyrandi minni kostnaði. Viðbót-
arútgjöldin sem af þessu hljótast
eru 110 til 140 milljónir króna.
Vilja ná milljarðs lækkun
Notkun ódýrari lyfja í fyrirrúmi Lyfjanotkun barna og fólks á fullum
atvinnuleysisbótum niðurgreidd Breyting verður á skiptingu lyfjaverðs
Lækkun Heilbrigðisráðuneytið kynnti í gær nýja reglugerð sem ætlað er að lækka lyfjakostnað um milljarð.
Smásöluálagning lækkuð 1. janúar og 1. júlí
Greiðsluþök og -gólf sjúklinga hækkuð um 10%
Ódýrustu lyfin almennt niðurgreidd
Atorvastatin í 100 daga kostar sjúkling 4.950
Simvastatin kostar almennan sjúkling 2.192 kr.
SIGBJÖRN Gunnars-
son fyrrverandi al-
þingismaður er látinn,
57 ára að aldri. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akur-
eyri í gær.
Foreldrar Sig-
björns voru Gunnar
Steindórsson kennari
og Guðrún Sigbjörns-
dóttir trygginga-
fulltrúi.
Sigbjörn lauk stúd-
entsprófi frá MA 1972
og stundaði nám í lög-
fræði við Háskóla Ís-
lands 1974-1975.
Hann starfaði sem kennari við
Gagnfræðaskóla Akureyrar 1972-
1974 og 1975-1976. Hann var kaup-
maður á Akureyri 1976-1991. Árið
1991 var Sigbjörn kjörinn á Al-
þingi fyrir Alþýðuflokkinn í Norð-
urlandskjördæmi eystra. og sat á
þingi til 1995. Hann vann að ýms-
um verkefnum 1995-1996 en var
sveitarstjóri Skútu-
staðahrepps í Mý-
vatnssveit árin 1997
til 2005. Hann var
ráðinn sveitarstjóri
Þingeyjarsveitar árið
2006 og gegndi því
starfi fram á mitt ár
2008.
Sigbjörn gegndi
ýmsum trúnaðarstörf-
um. Hann var til að
mynda í aðalstjórn
Knattspyrnufélags
Akureyrar um tíma
sem og í stjórn Golf-
klúbbs Akureyrar og
Golfklúbbs Mývatns-
sveitar. Þá sat hann í íþróttaráði
Akureyrar og í stjórn Knatt-
tspyrnusambands Íslands um
skeið.
Sigbjörn kvæntist Guðbjörgu
Þorvaldsdóttur verslunarmanni ár-
ið 1972. Þau eiga fjögur börn,
þrjár dætur og einn son, auk þess
sem hann átti einn son fyrir.
Andlát
Sigbjörn Gunnarsson KRISTINN Örn Jóhannesson, sembýður sig fram til formanns VR fyrir
kjörtímabilið 2009-2011, sakar for-
mann VR og trúnaðarmenn um að
hafa viðhaft óheiðarleg vinnubrögð.
Í fréttatilkynningu segist hann hafa
skilað fullnægjandi gögnum ásamt
ósk um allsherjarkosningu að
morgni 12. febrúar. Kjörstjórn VR
staðfesti svo lögmæti framboðsins
skömmu eftir hádegi sama dag.
„Ég harma þau vinnubrögð for-
manns VR og trúnaðarmanna að
senda frá sér upplýsingar um „göll-
uð“ mótframboð gegn listum sam-
þykktum á Nýársfundi með þeim
hætti að illgreinanlegt, ef ekki
ómögulegt, er að greina um hvaða
framboð er að ræða. Sem fyrr segir
hafa engar athugasemdir verið gerð-
ar við lögmæti míns frjálsa framboðs
til formanns VR. Svo virðist sem til-
kynningar VR séu viljandi settar
fram með þeim hætti að þær kasti
rýrð á öll framboð sem fram hafa
komið. Eru slík vinnubrögð í senn
ódrengileg, óheiðarleg og þeim sem
að standa til mikillar minnkunar.
Hvaða heilindi standa að baki slíkum
vinnubrögðum?“
Ósáttur við VR
FRUMTÖK,
samtök fram-
leiðenda frum-
lyfja, gera alvar-
legar athuga-
semdir við
stuttan aðlög-
unartíma sem
gefinn er til
lækkunar lyfja-
kostnaðar. „Það
gefur augaleið
að við höfum fullan skilning á þeirri
afstöðu að ná fram sparnaði,“ segir
Jakob Falur Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Frumtaka.
Eigi sparnaðaraðgerðirnar hins
vegar að taka gildi í mars sé þessi
stutti tími til að bregðast við óá-
sættanlegur. „Mér sýnist að verið
sé að taka upp eins konar ríkislyf í
flokki maga- og blóðþrýstingslækk-
andi lyfja,“ segir Jakob Falur og
telur viðbúið að þung og mikil
stjórnsýsla verði í kringum lyfja-
skírteinaútgáfu. Það megi ekki
gleymast að gríðarlegur árangur
hafi náðst sl. ár í að lækka verð og
heildsöluverð á Íslandi sé nú sam-
bærilegt við nágrannalöndin.
Enginn
aðlögunartími
Jakob Falur
Garðarsson
,,ÉG myndi segja
að ákveðið and-
varaleysi meðan
allt lék í lyndi
hafi valdið því að
við fórum ekki
út í það fyrr að
beina fólki að
ódýrari lyfjum,“
segir Ögmundur
Jónasson, heilbrigðisráðherra, en
hin Norðurlöndin hófu þessar að-
gerðir þegar árið 2005.
Þá segir Ögmundur að þessu
megi líkja við umferðina. Áður hafi
fólk keyrt milli staða í Rolls Royce
en nú þurfi að nota fjölskyldubíl-
inn.
Höfðað til lækna
,,Með þessum aðgerðum erum við
líka að höfða til lækna og fá þá til
að þroska kostnaðarvitundina,“
segir Ögmundur. Hann segist vera
bjartsýnn á samstarfið við læknana
því allir átti sig á breyttum að-
stæðum í þjóðfélaginu og þörfinni
á að spara. Hann segist því ekki
óttast að undanþágubeiðnir vegna
dýrari lyfja verði vandamál. Þá
hafi hann trú á að sjúklingar verði
meðvitaðir um breytt fyrirkomulag
og láti lækna vita að betri kjör séu
í boði, ef þeim finnst þeir borga
meira en nauðsynlegt er.
sigrunerna@mbl.is
Kostnaðarvit-
undin innrætt