Morgunblaðið - 16.02.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
RÍFLEGA tíu þúsund störf munu tapast umfram
þau nýju störf sem verða til á næstu tveimur til
þremur árum, að mati hagdeildar ASÍ. Ef ferða-
þjónusta þróast með svipuðum hætti og undanfar-
in ár gætu orðið til hátt í 2.000 störf í þeirri grein.
Þetta kemur m.a. fram í skýrslu hagdeildar ASÍ
um horfur í efnahagsmálum 2009-2011.
Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar
ASÍ, sagði þegar skýrslan var kynnt í seinustu
viku að á tímabilinu 2009-2011 gætu tapast um
18.000 störf. Á árinu 2008, áður en hremming-
arnar hófust, hefðu um tvö þúsund verið atvinnu-
laus. Þörf fyrir ný störf á vinnumarkaði, ungt fólk
sem væri að hefja atvinnuþátttöku, jafngilti um
7.000 störfum.
Þrátt fyrir ástandið verða til ný störf á vinnu-
markaði. Auk nýrra starfa í ferðaþjónustu benti
Ólafur Darri á að einnig gætu orðið til ný störf hjá
hinu opinbera og í atvinnugreinum sem færu ekki
illa út úr erfiðleikunum. Líklegt er talið að meiri
stöðugleiki verði á opinbera markaðnum en þeim
almenna og að störfum þar fjölgi nokkuð á tíma-
bilinu. Áætlað er að ríflega sjö þúsund útlendingar
hverfi af vinnumarkaði, miðað við síðasta haust.
Þá er gert ráð fyrir að brottfluttir Íslendingar um-
fram aðflutta geti orðið um 3.000.
Tólf þúsund án atvinnu 2011
„Þegar við tökum þetta saman þá erum við að
spá því að atvinnulausir á árinu 2011 gætu verið
nálægt tólf þúsundum. Það myndi þýða að at-
vinnuleysi sem hlutfall af þeim sem eru á vinnu-
markaði væri tæp 8%,“ sagði Ólafur Darri.
Hagdeild ASÍ telur að flest störf muni tapast í
verslun og þjónustu, eða allt að 10.000 störf.
gudni@mbl.is
Tapa tíu þúsund störfum
Áætlað að ríflega sjö þúsund útlendingar hverfi af vinnumarkaði frá sl. hausti
Gert er ráð fyrir að brottfluttir Íslendingar umfram aðflutta geti orðið um 3.000
VERULEGA hefur dregið úr byggingafram-
kvæmdum víðsvegar um landið en þó má sum-
staðar enn sjá byggingakrana hreyfast og harð-
duglega iðnaðarmenn að störfum. Á útboðsþingi,
sem haldið var í lok síðustu viku, kom fram að
kostnaður við yfirstandandi og væntanlegar verk-
framkvæmdir á þessu ári nemur 58 milljörðum en
í fyrra var upphæðin áætluð 130 milljarðar í upp-
hafi árs.
Morgunblaðið/RAX
Ekki algert frost í byggingariðnaðinum
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
KALLAÐ er eftir ákveðinni nýliðun innan
allra flokka þessa dagana. Telji Jón Baldvin
Hannibalsson sig vera þá nýliðun sem Samfylk-
ingin þurfi á að halda, þá er honum frjálst að
bjóða sig fram til formannsembættisins og láta
reyna á fylgi sitt. Þetta var viðhorf þeirra sam-
fylkingarmanna sem Morgunblaðið ræddi við í
gær. Eins virtust menn sammála um að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir nyti stuðnings sam-
fylkingarfólks í formannsembættinu.
„Það hefur verið mikill almennur stuðningur
við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem for-
mann innan Samfylkingarinnar,“ segir Árni
Páll Árnason, þingmaður flokksins. Lúðvík
Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylking-
arinnar er sama sinnis. „Bæði Ingibjörg og Jó-
hanna njóta fulls stuðnings í sínum störfum,“
segir Lúðvík. „Jóhanna sem forsætisráðherra
og Ingibjörg sem formaður flokksins.“
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra er
ekki sáttur við þau ummæli Jóns Baldvins að
Ingibjörg eigi að víkja úr formannsstólnum.
„Ummæli Jóns gerðu mig dapran,“ segir hann.
„Ingibjörg Sólrún er í veikindafríi og kemur
heim í næstu viku og ég tel að enginn eigi að
tala með þeim hætti sem fyrrverandi formaður
Alþýðufloksins gerði. Þetta er ólíkt þeim Jóni
sem ég hef unnið með. Það er alveg ljóst af
minni hálfu að ef Ingibjörg Sólrún vill gefa kost
á sér til að leiða áfram Samfylkinguna þá mun
ég styðja hana af heilum hug.“ Stuðningurinn
virðist víðar fyrir hendi því Ungir jafnaðar-
menn lýstu í gær yfir óskoruðum stuðningi við
Ingibjörgu Sólrúnu sem formann flokksins.
Stendur ekki fyrir neitt afl
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands, segir Jón Bald-
vin ekki virðast vera málsvari neins sérstaks
málstaðar innan Samfylkingarinnar. „Jón
Baldvin hefur verið að gefa yfirlýsingar um hitt
og þetta undanfarin ár. Hann stendur hins veg-
ar ekki fyrir neitt afl í flokknum, það að ég geti
séð.“ Það breyti hins vegar ekki því að Jón
Baldvin sé fyrrverandi formaður flokksins og
því óþægilegt fyrir flokkinn og mögulega for-
ystumenn hans líka að hann skuli taka þetta
mál upp með þessum hætti. „En ég get ekki séð
að á bak við hann sé nein sérstök hreyfing eða
armur í flokknum,“ segir Gunnar Helgi. Það
myndi því koma sér frekar á óvart næði Jón
Baldvin kjöri sem formaður Samfylking-
arinnar.
Hver staða Ingibjargar Sólrúnar sé, eða
hvort hún hafi hug á að halda formannsemb-
ættinu, kveðst hann ekki vita. „Ég held að hún
hafi leikið sterkan leik með því að víkja og vera
ekki í þessari ríkisstjórn. Síðan þarf hún að
kanna hvort hún eigi kost á að endurnýja sitt
umboð sem formaður á landsþingi flokksins.
Og af yfirlýsingum hennar að dæma virðist
frekar mega álykta að hún hafi hug á að halda
áfram.“
Ákvörðun um prófkjör Samfylkingarinnar í
Reykjavík verður tekin á fundi fulltrúaráðs
flokksins í kvöld.
Jóni frjálst að láta reyna á fylgið
Ingibjörg Sólrún nýtur stuðnings Samfylkingarfólks Ummæli óþægileg fyrir flokkinn
Jón Baldvin
Hannibalsson
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi for-
maður Alþýðuflokksins, telur stuðning við
Ingibjörgu ekki jafn mikinn og samfylking-
arfólk vill láta í veðri vaka. Honum hafi líka
verið full alvara með framboð til formanns
Samfylkingarinnar, sitji Ingibjörg Sólrún
áfram og gefi Jóhanna Sigurðardóttir ekki
kost á sér.
Jóhanna hafi mest fylgi til að taka við
stjórn Samfylkingarinnar og nauðsynlegt sé
að breyta um forystu í aðdraganda kosninga.
Ekki sé hins vegar við því að búast að Jó-
hanna gefi nein svör við því að hún ætli sér
að fara fram gegn sitjandi formanni.
„Ég sagði í umræddri ræðu á Alþýðu-
flokksfundinum í gær [fyrradag] að ég
styddi Jóhönnu Sigurðardóttur sem væri „de
facto“ orðin hinn pólitíski foringi Samfylk-
ingarinnar,“ segir Jón Baldvin. Málið sé hins
vegar nú í höndum Ingibjargar Sólrúnar.
„Spurningin er einföld, telur hún að hún og
við eigum að gera sömu kröfur til okkar jafn-
aðarmanna og við gerum til annarra. Ef hún
er þeirrar skoðunar við nánari íhugun þá
mun hún draga sig til baka.“
Skiptar skoðanir séu þó á þessum ummæl-
um sínum. „Einhver fór á netið og kom til
baka með þá skýrslu að 70% væru mér í vil
og 30% mjög andvíg. Stuðningur við Ingi-
björgu væri hins vegar sáralítill í hvorum
hópnum sem væri, en undirtektirnar við að
hún víki mjög miklar.“
Jóhanna með mest fylgi til að leiða flokkinn
GUÐRÚN Egilsdóttir, bóndi í
Holtsseli í Eyjafjarðarsveit, segir
að það gefi ágæta raun að nota
spíritus til að lækna júgurbólgu í
kúm. Guðrún hefur notað þessa að-
ferð undanfarin ár, en hún hefur í
allmörg ár verið notuð í Dan-
mörku, ekki síst í lífrænum búskap
þar sem notkun á pensilíni er
óheimil.
Aðferðin byggist á því að leysa
upp lækningajurtir í spíritus og
úða vökvanum upp í kjaftinn á
kúnum tvisvar á dag. Guðrún segir
að spírinn virki vel á kýrnar. Hún
segir að þetta lækni ekki alla júg-
urbólgu, en bendir á að pensilínið
vinni ekki heldur á allri júgur-
bólgu. „Ég hef sagt við menn að
þeir geti tekið spíritusinn með á
þorrablótið ef hann dugi ekki á
kýrnar,“ segir Guðrún.
Júgurbólga veldur kúabændum
miklu tjóni á hverju ári. Bæði
þurfa þeir að fella margar kýr sem
ekki ná sér og eins þurfa þeir að
kaupa lyf og dýralæknaþjónustu
fyrir margar milljónir á hverju ári.
Þá þurfa þeir að hella niður mjólk
meðan kýrnar eru á pensilínkúr.
Guðrún segir að einn kosturinn við
spíritusinn sé að hann spilli ekki
mjólkinni. egol@mbl.is
Læknar júg-
urbólgu með
spíritus
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Jóhanna
Sigurðardóttir
ÖGMUNDUR Jónasson heilbrigð-
isráðherra hefur staðfest að
ákvörðun fyrrverandi heilbrigð-
isráðherra, Guðlaugs Þórs Þórð-
arssonar, um St. Jósefsspítala verði
snúið við. „Sjúkrahúsið verður
starfrækt áfram sem sjúkrahús. Sú
áhersla sem menn ætluðu að leggja
á öldrunarþáttinn verður einnig
endurskoðuð,“ segir Ögmundur.
„Þetta er skoðað heildrænt með
tilliti til heilbrigðisstofnana á suð-
vesturhorninu. Ég hef átt samræð-
ur við fulltrúa Landspítalans og
sjúkrahússins í Reykjanesbæ, þar
sem ég hef viðrað þá skoðun mína
að fulltrúar allra þessara aðila
þurfi að stilla saman sína strengi,“
segir Ögmundur.
jonpetur@mbl.is
Ákvörðun
snúið við