Morgunblaðið - 16.02.2009, Side 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
VENJAN er sú að sé kveiktur eldur á byggðu
svæði þá er hann slökktur samstundis. Þetta
segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn á
höfuðborgarsvæðinu.
Athygli vakti hve lögregla var fljót til við-
bragðs í mótmælunum sem urðu á Lækjar-
torgi á laugardagskvöld og móttökurnar
harðari. „Þetta var annað umhverfi en verið
hefur,“ segir Geir Jón. „Þarna var kveiktur
eldur og verið að flytja eldsmat á staðinn.
Lögreglan stoppaði þær aðgerðir og það var
nóg til þess að hún þurfti að verja sig.“ Voru
tveir menn handteknir og hald lagt á bifreið,
sem notuð var til þess að flytja eldsmat að
torginu. Er mest lét, um miðnætti, var um
hundrað manns á Lækjartorgi og kveikti
fólkið ítrekað bál um leið og búið var að
slökkva í og hreinsa.
Geir Jón segir ástæðu þess að ekki var
gengið jafn hart fram við að slökkva elda í
búsáhaldabyltingunni í janúar þá að lög-
reglan hafi staðið frammi fyrir því að slíkt
myndi kosta meiri átök og hættan af eldinum
því ekki verið stærsta vandamálið.
Jón Geir segir tímasetningu mótmælanna á
laugardag hafa komið lögreglu á óvart. „Í jan-
úar tóku mótmælendur sjálfir af skarið með
að gera þetta ekki á föstudags- eða laugar-
dagskvöldum til að blanda ekki saman mót-
mælum og fólki sem er að koma út af öldur-
húsunum.“ Tímasetningin nú hafi því vissu-
lega haft sín áhrif á aðgerðir lögreglu.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Mótmæli Ítrekað var kveikt bál á Lækjartorgi á laugardagskvöld og slökkti lögregla eldana samstundis.
Tímasetningin hafði áhrif á aðgerðir
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
kvað síðastliðinn föstudag upp dóm
í máli sem byggingarfélagið Eykt
höfðaði í maí 2006 gegn fyrirtæk-
inu 101 Skuggahverfi. Um var að
ræða efndir á greiðslum og ábyrgð
á töfum sem urðu á einstökum
framvæmdum í háhýsum við
Skúlagötu í Reykjavík. Var í
stórum dráttum fallist á kröfur
Eyktar í niðurstöðu dómsins, en
auk þess var fallist á kröfur
Skuggahverfis um endurgreiðslur
að hluta.
Segir í dómnum að tilkvaddir
matsmenn telji að Eykt hafi í lang-
flestum tilvikum skilað verkhlutum
fyrir áætlaðan verktíma, og af-
hending á þeim örfáu sem skilað
var eftir áætlaðan verktíma hafi
aðeins dregist í fáa daga.
Samkvæmt dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur skal 101 Skuggahverfi
greiða Eykt liðlega 82 milljónir
króna með dráttarvöxtum vegna
framkvæmda sem lokið er. Eykt
fór hins vegar fram á að fá greidd-
ar um 136 milljónir auk dráttar-
vaxta.
Málavextir þessa máls eru í
stórum dráttum þeir, að vorið 2004
var orðið ljóst að ekki myndi tak-
ast að halda þeirri verkáætlun sem
verksamningur Eyktar og 101
Skuggahverfis gerði ráð fyrir.
Kenndi hvor aðili hinum um ástæð-
ur þess. Samkomulag náðist í apríl
2004 um nýja skiladaga íbúða og
nýja verkáætlun fyrir verkið í
heild. Eykt taldi að forsendur
þessa hefðu brugðist vegna atvika
sem 101 Skuggahverfi bæri ábyrgð
á, en forsvarsmenn Skuggahverfis
féllust hins vegar ekki á þá túlkun.
Því kom upp ágreiningur milli að-
ila um uppgjör verksamnings.
Rétt er að taka fram að í þessu
máli var ekki fjallað um flísar utan
á umræddum húsum við Skúlagöt-
una. Þar er um að ræða sérmál
sem eftir er að fjalla um fyrir
dómi. gretar@mbl.is
Eykt fær greitt
Matsmenn segja að Eykt hafi í langflestum
tilvikum skilað á réttum tíma við Skúlagötu
JÁKVÆÐ stemning og jarðvegur fyrir bjartsýni og von voru skilaboð sem
skipuleggjendur Kærleiksgöngu vildu koma á framfæri. En á sama tíma og
mótmælendur kveiktu elda og börðu í potta og pönnur á Lækjartorgi á
laugardagskvöld fór Kærleiksganga um miðborg Reykjavíkur. Gengið var
með kyndla í kringum Tjörnina við undirleik hljóðfæraleikara og kórar
Reykjavíkur sameinuðust við Reykjavíkurtjörn og tóku lagið undir stjórn
Harðar Áskelssonar.
Bjartsýnin í fyrirrúmi
í Kærleiksgöngu
Morgunblaðið/hag